Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31 . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						vr-

24   MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 2003

Sport DV

Völsungur frá Húsavík vann sinn fyrsta íslandsmeistaratitil i meistaraflokki þegar

þeir lögðu Val í framlengdum úrslitaleik, 3-2, í íslandsmótinu innanhúss

Hermann hetjan

Njarðvíkvann

~ KR í bikarnum

Njarðvík vann KR,

99-83, í 32 liða úrslitum

bikar-keppni KKÍ&Lýsingar

í Njarðvík á laugardaginn.

Sigur Njarðvíkinga var

aldrei í hættu, þeir leiddu,

53-42, íhálfleikog 75-51

eftir þriðja leikhluta og það

var aðeins undir lokin sem

KR-ingar náðu að rétta sinn

hlut. Brandon Woudstra (á

myndinni hér að ofan) var

stigahæstur hjá Njarðvík

með 31 stig, Brenton

Birmingham skoraði 24 stig

og Friðrik Stefánsson skor-

aði 11 stig. Skarphéðinn

„   Ingason var með 27 stig

fyrir KR, Chris Woods

skoraði 23 stig og tók 18

fráköst og Magni

Hafsteinsson skoraði 13

stig.

Keflavík í

úrslit Hópbíla-

bikarkvenna

Keflavík tryggði sér sæti

í úrslitaleik Hópbflabikars

kvenna í körfuknattleik á

laugardaginn þegar liðið

bar sigurorð af ÍS, 68-41, í

Keflavík í undanúrslitum.

Erla Þorsteinsdóttir var

atkvæðamest hjá Kefl-

vfldngum með 18 stig og 15

fráköst, Birna Valgarðs-

dóttir og Erla Reynisdóttir

skoruðu 11 stig hvor og

Svava Ósk Stefánsdóttir

skoraði 10 stig. Stella Rún

Kristjánsdóttir skoraði 11

stig fyrir ÍS og Lovísa

Guðmundsdóttir skoraði 10

stig. Keflavik mætir KR eða

Grindavík í úrslitaleiknum

„   en þau lið mætast á

morgun í DHL-höllinni.

Ástralirunnu

Davis-bikarinn

Ástralir tyrggðu sér í gær

Davis-bikarinn í tennis

þegar þeir báru sigurorð af

Spánverjum, 3-1, í Mel-

v   bourne í Ástralíu. Það var

Mark Philippoussis sem

tryggði Áströlum sigurinn í

gær en hann vann

Spánverjann Juan Carlos

Ferrero í fimm settum. Áður

hafði Lleyton Hewitt unnið

Ferrero og Spánverjinn

Carlos Moya unnið

Philippoussis.

Ástralamir Wayne

Arthurs og Todd Wood-

bridge báru síðan sigurorð

af Alex Corretja og Feliciano

Lopez í tvíliðaleik og því

þurftu Lleyton Hewitt og

Carlos Moya ekki að spila   -

síðasta einliðaleikinn. Þetta-f

_j  var 28. sigur Ástrala í Davis-

bikarnum en þeir unnu

bikarinn síðast árið 1999.

Völsungur frá Húsavík og Valur

eru           fslandsmeistarar           í

innanhússknattspyrnu árið 2003.

Völsungur lagði Val, 3-2, í

dramatískum úrslitaleik hjá

körlunum en Valsstúlkur unnu

stórsigur á Eyjastúlkum í úrslitaleik

kvenna, 7-1.

Völsungur vann stórsigur á Fram,

4-0, í 8-liða úrslitum og fylgdi þeim

sigri eftir með góðum sigri á ÍA, 2-1,

í undanúrslitum. Valsmenn lögðu

aftur á móti Keflavík, 4-1, í 8-liða

úrslitum og lenti svo í kröppum

dansi gegn FH í undanúrslitum. Sá

leikur endaði í vítakeppni þar sem

Valsmenn höfðu að lokum sigur,

7-6.

Úrslitaleikurinn var bráðfjörugur

frá upphafi. Jóhann Hreiðarsson

kom Valsmönnum yfir eftir tæpa

mínútu með þrumufleyg sem

endaði efsti í markhorni Húsvíkinga.

Róbert Skarphéðinsson jafnaði

síðan metin fyrir Völsunga með

marki rétt fyrir leikhlé.

Bæði lið fóru sér hægt í seinni

hálfleik og allt stefndi í

framlengingu þegar Sigurbjörn

Hreiðarsson kom Valsmönnum yfir

þegar aðeins rúm mínúta var eftir af

leiknum. Það sættu Völsungar sig

illa við og hófu að sækja af kappi.

Þeir jöfnuðu síðan á dramatískan

hátt þegar aðeins fimm sekúndur

voru eftir af leiknum. Hermann

Aðalgeirsson, markvörður Völsunga,

fékk þá boltann á miðjum

vallarhelmingi Valsara og hann

þrumaði honum í bláhornið fram

hjá Ólafi Þór Gunnarssyni,

markverði Vals.

Völsungar héldu uppteknum

hætti í framlengingunni og það var

áðurnefndur Hermann sem skoraði

eina markið í framlengingunni með

öðrum þrumufleyg og við honum

áttu Valsmenn ekkert svar.

Völsungar fögnuðu hreint

ógurlega í leikslok og skal engan

undra þar sem árangur þeirra var

mjög óvæntur en þó fyllilega

verðskuldaður. Hið unga lið

Húsvfkinga tapaði fyrsta leik sínum í

mótinu gegn FH en litu svo aldrei til

baka og unnu titilinn.

Létt hjjáValsstúlkum

Úrslitaleikurinn í kvennaflokki

var ekki eins spennandi og

skemmtilegur en þar áttust við Valur

og ÍBV. Valsstúlkur lögðu ÍA í

undanúrslitum, 3-0, en ÍBV vann

góðan sigur á KR, 2-1.

Það var ljóst frá upphafi að

Valsstúlkur ætluðu sér titilinn því

þær réðu lögum og lofum á vellinum

frá upphafsflauti leiksins.

Mörkunum tók að rigna í

Laugardalshöllinni og markvórður

Eyjastúlkna var ekki öfundsverður af

hlutverki sfnu. Sjö sinnum mátti

hún gera sér það að góðu að hirða

knöttinn úr netmöskvunum á

meðan Guðbjörg Gunnarsdóttir,

markvörður Vals, þurfti aðeins einu

sinni að horfa á eftir boltanum fara

fram hjá sér.

Pála Marie Einarsdóttir og Laufey

Ólafsdóttir voru öflugar í liði Vals

með tvö mörk hvor. Dóra María

Lárusdóttir, Dóra Stefánsdóttir og

Guðbjörg Gunnarsdóttir settu svo

sitt markið hvor. Elena Einisdóttir

gerði eina mark ÍBV í leiknum.

Sætur fslandsmeistaratitill hjá

Valsstúlkum sem léku einkar vel á

mótinu og unnu alla leiki sína nema

einn þegar þær gerðu 2-2 jafntefli

gegn KR í riðlakeppninni.

henry@dv.is

íslandsmeistarar Völsungar fögnuðu ógurlega eftir að íslandsmeistaratitillinn var íhöfn og hér sést fyrirliði þeirra,

Arngrímur Arnarsson, hefja bikarinn góða á loft.

DV-mynd Pjetur

Árni Gautur Arason, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu

ákveður sig í dag hvort hann gangi til liðs við austurríska

félagið Sturm Graz

Stór og erfið ákvörðun

Landsliðsmarkvörður íslands í

knattspyrnu, Arni Gautur Arason,

mun ákveða sig í dag hvort hahn

ætli að ganga til liðs við

austurríska félagið Sturm Graz.

Árni var í Austurríki um helgina

þar sem hann ræddi við

forráðamenn félagsins, fór í

læknisskoðun og sá liðið spila er

þeir gerðu jafntefli gegn Pasching,

2-2. Arni sagði í samtali við DV

Sport í gær að ákvörðunin væri

erfið en þó væru meiri líkur en

minni að hann tæki tilboði

austurríska félagsins.

„Mér líst ágætlega á þetta allt

saman. Liðið er með glæsilegan völl

og allar aðstæður eru til

fyrirmyndar. Mér líst ágætlega á

liðið en það var mjög óheppið að

ná ekki sigri í þessum leik sem ég sá

gegn Pasching. Þeir hafa reyndar

verið í vandræðum í deildinni en

þeir segja mér hjá félaginu að þetta

sé allt á réttri leið," sagði Árni og

bætti við að læknisskoðunin hefði

gengið vel en hann væri samt

meiddur á öxl og gerði ráð fyrir að

gangast undir aðgerð á öxlinni í

Noregi á miðvikudag. Hann verður

væntanlega frá í 3-5 vikur í

kjölfarið.

Illa hefur gengið hjá Sturm Graz

í vetur og félagið er enn í

fallbaráttu. Það gerir ákvörðunina

erfiðari en ella fyrir Árna sem er

ekkert sérstaklega spenntur fyrir

því að leika f 2. deild í Austurrfki.

„Þetta er náttúrulega mjög stór

ákvörðun og það hjálpar ekki að

liðið sé í fallbaráttu. Við ætlum að

skoða borgina í dag og melta málið

en munurn.; gefa þeim svar á

morgun [í dag, innsk. blm.] hvort

ég taki tilboðinu. Það eru meiri

lfkur en minni að ég gangi að

tilboðinu enda er ekki margt annað

í spilunum hjá mér. Það er þó flest

skárra en að sitja á bekknum hjá

Rosenborg," sagði Árni en

samningurinn                         sem

Austurríkismennimir- hafa boðið

honum er til tveggja og hálfs árs.

henry@dv.is

I.   .    ,.     L'    '

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32