Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31 . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						^

26   MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 2003

Sport DV

RúnarogMarel

á skotskónum

Rúnar Kristinsson og

Marel Baldvinsson voru á

skotskónum þegar Lokeren

vann góðan útisigur á

Antwerpen, 3-0, í belgísku

1. deildinni á laugardaginn.

Rúnar og Marel skoruðu

sitt markið hvor í leiknum

en auk þeirra var Arnar Þór

Viðarsson í liði Lokeren.

Arnar Grétarsson var ekki í

leikmannahópi Lokeren í

leiknum en hann hefur átt

við meiðsli að stríða í nára

að undanförnu.

Indriði Sigurðsson lék

allan leikinn fyrir Genk sem

tapaði fyrir Beveren, 3-1.

JalenRosetil

Toronto

Bakvörðurinn Jalen

Rose, sem leikið hefur með

Chicago Bulls í NBA-

deildinni undanfarin ár,

hefur verið skipt til Toronto

Raptors. Rose fer ásamt

framherjunum Donyell

Marshall og Lonny Baxter

til Toronto en Chicago

Bulls fær í staðinn fram-

herjana Antonio Davis,

Jerome Williams og Chris

Jefferies. Jalen Rose hefur

verið lykilmaður í Chicago-

liðinu undanfarin ár og

hefur skorað 13,3 stig að

meðaltali á þessu tímabili.

Frakkar sigur-

stranglegastir

Frakkar eru taldir

líklegastir til að vinna EM á

.samkvæmt enskum veð-

bönkum. Á eftir þeim koma

síðan ítalir, Hollendingar,

Portúgalar og Spánverja.

Englendingar eru í sjötta sæti

en Lettar þykja ólíklegastir

með hlutfallið 500.1.

Chelsea bar sigurorð af Manchester United í stórleik helgarinnar á Stamford

Bridge í gær og komst á topp ensku úrvalsdeildarinnar

Orðnir að mönnum

Chelsea komst á topp ensku

úrvalsdeildarinnar í gær þegar liðið

bar sigurorð af Manchester United,

1-0, á Stamford Bridge. Það var

miðjumaðurinn Frank Lampard

sem skoraði sigurmarkið úr

vítaspyrnu eftir hálftímaleik en

vítaspyrnan var dæmd eftir að Roy

Keane og Joe Cole rákust saman

með þeim afleiðingum að Cole féll.

Sigur Chelsea var sanngjarn og þó

hann sé ekki ávísun á titil næsta vor

þá gefur hann fyrirheit um

framhaldið og er ákveðin yfirlýsing

frá hungruðum leikmönnum

Chelsea um að þeir séu orðnir að

mönnum.

Skýr skilaboð

„Ég held að við höfum sent

öðrum liðum í deildinni skýr

skilaboð með þessum sigri en það

er samt mikið eftir. Þessi sigur

styrkir okkur andlega sérstaklega í

ljósi frábærrar frammistöðu

liðsins. Það var mikið talað um

þennan leik áður en hann hófst og

hann var stærsta prófraun okkar til

þessa á tímabilinu," sagði John

Terry, fyrirliði Chelsea, eftir leikinn

en hann og félagar hans í vörn

Chelsea náðu að halda Ruud Van

Nistelrooy og Diego Forlan í

skefjum.

„Það er frábært að ná að halda

markinu hreinu gegn liði eins og

Manchester United. Það er aldrei

hægt að slaka á gegn þeim en það

gerir það enn skemmtilegra að

hafa haldið hreinu," sagði Terry.

Bíðum þangað til í vor

Alex Ferguson, knattspyrnustjóri

Manchester United, var ekki sáttur

við vítaspyrnuna sem var dæmd á

hans menn en sagði jafnframt að

úrslit leiksins hefðu ekki mikla

þýðingu þar sem enn væri

nóvember.

„Mér fannst vítaspyrnan vera

ódýr því að leikmaður þeirra var ekki

með vald á boltanum og var auk

þess á leið frá markinu. Það tók

okkur tíu mínútur að komast aftur

inn í leikinn en eftir það fannst mér

við hafa stjórn á honum. Okkur tókst

hins vegar ekki að skapa okkur nógu

mikið af færum og það gengur ekki í

leik sem þessum," sagði Ferguson.

Aðspurður um möguleika

Chelsea á meistaratitíinum sagði

Ferguson að það væri of snemmt að

segja.

„Það er of snemmt að segja á

þessu stigi tímabilsins. Við skulum

bíða til vorsins og þá get ég svarað

því. Þessi leikur hefði haft miklu

meiri þýðingu ef hann hefði verið

spilaður í mars eða apríl og ég

myndi hafa verulegar áhyggjur ef

það væri apríl og við værum fjórum

stigum á eftir Chelsea. Nú er hins

vegar nóg eftir af mótinu og fjögur

stig eru lítið sem ekki neitt. Eg þekki

mína menn og veit að reynsla þeirra

og karakter mun koma í ljós þegar

mestu máli skiptir," sagði Alex

Ferguson.

„Ég held að við höfum

sent öðrum liðum í

deildinni skýr skilaboð

með þessum sigri."

Allir mínir menn meistarar

Claudio Ranieri, knattspyrnu-

stjóri Chelsea, var í sjöunda himni

eftir leikinn.

„Við spiluðum mjög vel í fyrri

hálfleik og settum pressu á

Manchester United. Þeir sóttu meira

í síðari hálfleik þegar við urðum

varkárari. Ég get samt ekki verið

annað en ánægður. Þetta var frábær

leikur hjá mínum mönnum og þeir

eru allir meistarar í mínum huga. Við

erum á toppi deildarinnar í dag og ég

vona að við verðum þar í maí. Það

skal þó hafa í huga að Manchester

United og Arsenal geta auðveldlega

velt okkur úr sessi ef við pössum

okkur ekki," sagði Ranieri.   oskar@dv.is

Eriksson ekki sáttur við dráttinn á EM

Varar við Frðkkum


Gömul hetja Portúgalska goðsögnin Eusebio aðstoðaði þegar dregið varlriðla i

Evrópukeppninni I Portúgal I gær.

í gær var dregið í riðla í

úrslitakeppni Evrópukeppninnar í

Portúgal á næsta ári. Eins og

venjulega reyna menn að finna

„Dauðariðilinn" svokallaða en það

er að öllum líkindum D-riðilinn þar

sem Tékkar, Þjóðverjar og

Hollendingar eru ásamt vesalings

Lettum sem hefðu getað hugsað sér

auðveldari riðil í fyrsta sinn sem þeir

eru á stórmóti.

Englendingar og Evrópu-

meistararFrakka eru saman í riðli og

sagði Sven Göran Eriksson,

landsliðsþjálfari Englendinga, eftir

dráttinn að Frakkar væru það lið

serh  hann  hefði  helst  kosið   að

sleppa við.

„Ég veit ekki hvað menn halda

um franska liðið en þeir sem ætla að

dæma liðið út frá frammistöðu þess

í heimsmeistarakeppninni á síðasta

ári skulu hugsa sig tvisvar um. Þeir

eru með heimsklassaleikmenn í

hverri einustu stöðu. Þeir eru með

leikmenn eins og Zinedine Zidane,

Thierry Henry og Patrick Vieira og

þessir þrír ættu að nægja til að sýna

fram á styrk Frakkanna. Þeir

gjörsigruðu Þjóðverja um daginn og

sýndu þá hvers þeir eru megnugir,"

sagði Eriksson.                     oskar@dvjs

A-riðill

Portúgal, Spánn, Rússland

og Grikkland.

B-riðill

Frakkland, England, Króatía

og Sviss.

C-riðill

Svíþjóð, ítalía, Danmörk

og Búlgaría.

D-riðill

Tékkland,   Þýskaland,   Holland

og Lettland.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32