Nýtt dagblað - 14.03.1942, Blaðsíða 2

Nýtt dagblað - 14.03.1942, Blaðsíða 2
C-LISTINN EB SK ijSldasamk banna i ReykiaTik, f er listí alþýdunn- ar, lísfínn, sem berst fyrír hags~ muna~ og menn^ ingarmálum fólksíns C«lísiíaii er skf paður f ull frúum fjöldans, mönn^ unum, sem fólkið freysfír Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn — berst fyr- ir yfirráðum verkalýðsins og millistéttanna í. Reykjavík, en á móti því að milljónamæringarnir nýbökuðu drottni yíir þessum bæ og haldi áfram að gera íbúa hans að féþúfu fyrir sig, en neita þeim um ýms frumstæðustu lífs- og menningarskilyrði. Sósíalistaflokkurinn er flokkur alþýðunnar sjálfrar, flokkur fjöld ans, er sækir fram til menningar, mannréttinda og betra lífs. t>ess- vegna er listi hans líka alveg sér- staklega skipaður því fólki, sem hefur tiltrú allsherjarsamtaka fólksins á öllum hagsmuna- og menningarsviðum. Á lista hans — C-listanum — eru menn og kon- ur, sem eru formenn og trúnað- armenn stærstu fjöldasamtak- anna, sem til eru 1 Reykjavík, svo sem Dagsbrúnar, Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis, Máls og menningar, svo ekki sé talað um fjölda verklýðsfélaga eins og Iðju, Félag jámidnaðarmanna, Hió ísl, prentarafélag og önnur slík. Eins og kunnugt er, þá bjóða þessi fjöidasamtök ekki fram menn til kosninga og taka sjálf enga ákvörðun um stillingu þess- ara trúnaðarmanna þeirra á list- ana. En það, að einmitt Sósíal- istaflokkurinn hefur alla þessa forvígismenn þeirra innan sinna vébanda sýnir og sannar m. a. að hann er raunverulega Sam- einingarflokkur alþýðu. Hagsmuna- og menningarsamtök alþýðunnar treysta þessum mönn- um til að stjóma sínum eigin samtökum, samtökum, sem telja milli 10 og 20 þús. meðlima. Þessum mönnum er líka bezt treystandi til að stjórna bænum sem alþýðan, — verkalýðurinn og millistéttimar —ætla að vinna í þeirri baráttu, sem nú stendur yfir. C-listinn er listi alþýðunnar, listi fólksins sjálfs, skipaður þeim mönnum, sem fólkið treyst- ir. Þessvegna kjósa Reykvíbingai' C-listann á morgun. x C-llstínn Sigfús Sigurhjartarson ritstjóri. Björn Bjarnason form. „Iöju”, fél. verksm.fólks Katrín Pálsdóttir frú. Steinþór Guðmundsson kennari. Guðm, Snorri Jónsson form. Fél. járniðnaöarmanna. Stefán Ogmundsson Andrés Straumland í stjórn Hins ísl. prentarafél. forseti Samb. ísl. berklasjúkl. Petrína Jakobson skrifari. uoj. un í mnsdóttir verzlunarmær Oiaíur H. Guómundsson Sveinbjörn Guölaugsson form. Sveinafél. húsgagnasm. formaöur KRON. Jón Guðjónsson trésmíöameistari. Rósinkranz ívarsson sjómaður. Eðvarð Sigurðsson fjármálaritari „Dagsbrúnar”, Zophonías Jónsson pkrilstofumaður. Sigurvin Össurarson sjómaðmr.

x

Nýtt dagblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt dagblað
https://timarit.is/publication/258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.