Helgarblaðið - 30.04.1992, Blaðsíða 5
Helgar 5 blaðið
Fjandinn hafi það. Ég ætla
að stela vörubílnum mín-
um aftur af Mumma! Ég á
hann og hann hefur engan
rétt til að hafa hann!
/
ÍA'sr
Ég fel mig hérna bak við
rólurnar og þegar Mummi
lítur í aðra átt hleyp ég til,
gríp bílinn og hraða mér í
burtu.
Það ættu að vera nokkrir
Rauðakrosskassar á öllum
róluvöllum, svo maður geti
læðst upp að illmennunum
án þess að sjást.
■
Ypsilon
í Eið
Jón Oddsson hæstaréttarlög-
maður hélt erindi um mengun-
ina á Heiðarfjalli á fundi hjá
Herstöðvaandstæðingum ný-
lega.
Hann ræddi samskipti sín við
Eið Guðnason umhverfisráðherra,
en Jón er lögfræðingur landeig-
enda við Hciðarfjall. Sagði Jón
um umhverfisráðherra að það
væri athugandi hvort ekki ætti að
gera sérstaka undanþágu á ís-
lenskunni og skrá nafn ráðherrans
með ypsiloni.
Tólf þúsund
vinnuslys á
ári hverju
Starf vinnueftirlitsmanns
felst aðallega í almennu eft-
irliti með aðbúnaði, holl-
ustuþáttum og öryggi á
vinnustöðum. Hins vegar
skiptir það miklu máli varð-
andi vinnuvemd að fólk sé
sjálft meðvitað um eigin að-
búnað og öryggi á vinnu-
stöðum, segir Gylii Már
Guðjónsson, eftirlitsmaður
hjá Vinnueftirliti ríksins.
Ætla má að á ári hverju verði
hérlendis um tólf þúsund vinnuslys.
Það eru margfalt fieiri slys en þau
sem tilkynnt eru til Vinnueftirlitsins
á ári hverju þrátt fyrir að mikið hafi
verið gert til þess að brýna fyrir at-
vinnurekendum að tilkynna til
Vinnueftirlitsins öll slys; ekki að-
eins þau alvarlegu, heldur einnig
minniháttar óhöpp. Vanræksla í
þeim efnum getur haft áhrif á bóta-
skyldu og því mikilvægt fyrir báða
aðila, starfsmanninn og atvinnurek-
andinn, að slys eða óhöpp séu til-
Vinnueftirlitsmaður
kynnt til viðkomandi aðila. Athug-
un sem gerð var á Slysadeild Borg-
arspítalans á sínum tíma rennir
stoðum undir það að sú tala, tólf
þúsund vinnuslys á ári, sé ekki
fjarri sanni. Til marks um það má
nefna að á árinu 1990 barst 761 til-
kynning um vinnuslys til eftirlits-
ins. Samkvæmt skráningu Vinnu-
eftirlitsins létust átján einstaklingar
í vinnuslysum á árabilinu 1986-
1990 og eru þá frátalin þau dauða-
slys sem urðu við vinnu á legi og í
lofti.
Þá tilkynnti Heymar- og tal-
meinastöð Islands Vinnueflirlitinu
um 3.570 einstaklinga sem höfðu
tapað heym vegna hávaða við
vinnu á árabilinu 1981-1991.
Ef niðurstöðúr þeirrar rannsóknar
sem gerð var á Slysadeild Borgar-
spítalans eru bomar saman við nið-
urstöður rannsókna sem gerðar hafa
verið með hliðstæðum aðferðum í
Danmörku, kemur í ljós að vinnu-
slys em tíðari hér á landi. 1 Reykja-
vík urðu 1060 karlar og 250 konur,
miðað við 10 þúsund starfandi
menn, fyrir vinnuslysum á ári, en í
Arósum í Danmörku slösuðust 860
karlar og 220 konur, miðað við 10
þúsund starfandi menn. Hins vegar
hefúr komið í ljós við samanburð á
tilkynntum atvinnusjúkdómum,
sem gerður var á Norðurlöndunum
á tímabilinu 1980-1985, að þeir séu
í sama mæli þar og hérlendis.
Þótt ekki hafi farið fram rann-
sóknir á kostnaði vegna vinnuslysa
og atvinnusjúkdóma hér á landi er
engu að síður talið að kostnaðurinn
sé umtalsverður. Samkvæmt grein-
argerð sem Alþjóðavinnumálaskrif-
stofan í Genf hefur látið taka saman
um kostnað vegna vinnuslysa og at-
vinnusjúkdóma í nokkrum iðnríkj-
um varð niðurstaðan sú að þessi
kostnaður virðist vera á bilinu 1%-
3% af vergri landsframleiðslu.
Miðað við þessar niðurstöður er
kostnaðurinn hérlendis vegna
vinnuslysa og atvinnusjúkdóma á
bilinu 3,8-11,4 miljarðar króna.
Vinnuverndarár
Núgildandi lög um aðbúnað,
hollustu og öryggi á vinnustöðum
eru frá 1981 en fyrstu sérlögin um
vinnuvemdarmál voru sett árið
1928. Þótt ýmislegt hafi áunnist í
vinnuvemdarmálum eru mörg verk-
efni framundan. Það helsta er yfir-
standandi vinnuvemdarár sem hófst
í mars síðastliðnum og stendur til
sama mánaðar að ári í löndum Evr-
ópubandalagsins og EFTA. Mark-
mið vinnuvemdarársins er að alls
staðar í stómm og smáum fyrir-
tækjum sé hugað að því að aðbún-
aður sé góður, komið sé í veg fyrir
vinnuslys og atvinnusjúkdóma og
stuðlað að vellíðan hins vinnandi
manns. Aðalþema vinnuvemdarárs-
ins eru fjögur:
■ Hreint loft á vinnustað
■ Öryggi á vinnustað
■ Vellíðan á vinnustað
■ Vamir gegn hávaða og
titringi á vinnustað.
Þótt menn hafi vitað það í þrjár
aldir að vinna getur valdið heilsu-
tjóni, er mikilvægi andlegrar líðan-
ar fólks í vinnu nýlegt áhersluatriði
í vinnuvemd. Á síðasta áratug liafa
menn gefið því æ meiri gaum og er
ekki vafi á að í framtíðinni mun
meira verða um þetta hugsað en
hingað til.
Meðal þess sem unnið verður
sérstaklega að hérlendis á vinnu-
vemdarárinu er að lögð verður sér-
stök áhersla á að efla innra starf
fyrirtækjanna. Á hveijum vinnustað
þar sem eru tíu starfsmenn eða
fleiri verði skipaður öryggisvörður
og öryggistrúnaðarmaður, en ör-
yggisnefndir í þeim fyrirtækjum þar
sem starfsmenn em fimmtíu eða
fieiri og er þetta í samræmi við
gildandi lög.
Slysavarnir
En að hverju huga vinnueftirlits-
menn þegar þeir fara á vinnustaði?
Gylfi Már segir að þegar á vinnu-
staðina sé komið, í lians tilfelli á
byggingarsvæði, sé lögð áhersla á
að tryggja að komið sé í veg fyrir
fallhættu og unnið á góðum og
traustum vinnupöllum; að gengið sé
vel frá stigum og stigagötum; að
gengið sé vel og tryggilega frá
gmnnum og skurðum
svo að bömum og
öðrum stafi ekki
hætta af. Jafnframt er
litið á aðstöðu starfs-
manna; að hún sé
snyrtileg og hreinlæt-
isaðastaða sé fyrir
hendi. Síðast en ekki
síst ganga eftirlits-
menn eftir því að
menn noti hjálma, ör-
yggisskó og að hlífar
séu á vélum og verk-
fæmm, svo nokkuð
sé nefnt.
Gylfi Már er tré-
smiður að mennt og
hafði unnið við iðn
sína áður en hann
gerðist opinber starfs-
maður. Ástæðu þess
að hann réðst til
Vinnueftirlitsins þann
1. maí 1988 má rekja
til sérstaks vinnu-
vemdarátaks sem í
var ráðist í bygging-
ariðnaðinum sökum fjölda alvar-
legra fallslysa sem orðið höfðu í at-
vinnugreininni árið 1987 og á fyrri
hluta árs 1988. Þetta átak skilaði
meðal annars þeim árangri að
vinnupallar hafa batnað og alvar-
legum fallslysum fækkað að sama
skapi. Reyndar má segja að hluta
skýringarinnar á fækkun slysa í at-
vinnugreininni megi rekja til þess
að álag á byggingarmönnum hefur
minnkað frá því sem það var á
þessurn góðæristímum. Þá var
vinnutími byggingamianna mun
lengri en gerist og gengur um þess-
ar mundir auk þess sem mikið álag
fylgir því einatt að vinna mikið í
ákvæðisvinnu. „Það eykur auðvitað
slysahættuna þegar menn eru famir
Þessi abbúna&ur starfsmanna á vinnustaS er
ekki til fyrirmyndar og trúlega vildu fáir
vinna hjá atvinnurekanda sem bý&ur upp á
annaá eins.
Gylfi Már Guájánsson
vinnueftirlitsmabur.
Mynd: Kristinn.
að lýjast og vinna mikið undir
pressu.
Sem dæmi um áherslu Vinnuefl-
irlitsins á slysavamir má nefna að í
fyrra settu eflirlitsmenn stofnunar-
innar fram um 15.400 fyrirmæli og
ábendingar um slysavamir. En
hvað gerist, sé ekki farið að ábend-
ingum Vinnueflirlitsins og hefúr
eftirlitið eitthvert vald?
Gylfi Már segir að Vinnueftirlitið
geti stöðvað vinnu tafarlaust þar
sem hælta er á ferðum. Láti menn
sér ekki segjast er kallað á lögreglu.
Það er þó mjög fátítt. Aflur á móti
er mun algengara að eftirlitið banni
notkun véla eða vinnupalla þar til
viðeigandi ráðstafanir hafa verið
gerðar sem tryggja öryggi starfs-
manna. Meiri þolinmæði gætir
varðandi aðstöðu starfsmanna á
vinnustað. Aðstaðan er ekki inn-
sigluð fyrr en atvinnurekandinn
hefur hunsað ábendingar Vinnueft-
irlitsins í tvígang og er þá vinnan
einnig stöðvuð. Gylfi segir að þetta
hafi þeir því miður þurft að gera í
tugatali. En skýrar reglur kveða á
um það að viðunandi starfsmanna-
aðstaða sé fyrir hendi á byggingar-
vinnustöðum. Þar eð verkaskipting
byggingarfulltrúa og Vinnueflirlits-
ins í þessum málum hefur ekki ver-
ið nægilega skýr, hafa þessir aðilar
komið sér saman um hvemig staðið
skuli að eflirliti og úttektarskyldu
með starfsmannaaðstöðu á bygg-
ingarstað. Þegar er farið að vinna
samkvæim þessu í Reykjavík,
Kópavogi, Ákureyri, Hveragerði og
jafhvel víðar. Engu að síður telur
Gylfi að aðstaða byggingarmanna á
vinnustað sé enn nokkuð lakari hér-
lendis en gerist og gengur meðal
nágrannaþjóðanna.
Gylfi segir að þeir hjá Vinnueft-
irlitinu vilji fyrst og fremst vinna
sem leiðbeinendur og aðstoðar-
menn til að byggja upp öryggi á
vinnustöðum í stað þess að hafa á
sér einhverja lögregluímynd.
I sínu starfi koma vinnueftirlits-
menn víða við og meðal þess sem
Gylfi þarf að hafa eftirlit með má
nefna byggingar- og verktakastarf-
semi, trésmíðaverkstæði, gmnn-
skóla, sérskóla og verklegar fram-
kvæmdir sveitarfélaga. Þar eð hann
starfar í Reykjavíkurumdæmi er
svæðið nokkuð yfirgripsmikið, eða
sjálf höfuðborgin, Seltjamames,
Kópavogur, Hafnaríjörður, Garða-
bær, Mosfellsbær, Álftanes, Kjalar-
nes og Kjós. Auk þess að sinna eft-
irliti með vinnustöðum vinna eftir-
litsmenn að ýmsum úttektum á
starfsmannaaðstöðu, á vinnupöll-
um, úttektum vegna slysa eða
kvartana og sinna kennslu á hinum
ýmsu námskeiðum sem haldin em.
Fimmtudagurinn 30. apríl