Dagblaðið - 11.09.1975, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 11.09.1975, Blaðsíða 1
friálst, úháð dagblað ____________L.___ ig 1. árg. — Fimmtudagur 11. september 1975 — 4. tbl. 83322 Beinar línur: 85112 ~ 85119 Ritstjórn Ritstjórn 22078 Afgreiðsla — áskriftir Afgreiðsla 22050 Auglýsingar Áskriftir Notið beinu línurnar Auglýsingar þegar 83322 er á tali Hvar er nú þetta? Arnarnes? — Nei, i Grjótaþorpi — sjó grein ó bls. 3 um heimsókn í þorpið ÞAÐ VERDUR IKKERT ÞORSKASTRÍÐ'HB — sagði Roy Hattersley í morgun í viðtali við Dagblaðið „Ég held, að það verði ekkert nýtt þorskastríð," sagði Roy Hattersley að- stoðarutanríkisráðherra Breta í viðtali við Dag- blaðið í morgun. „Bæði ríkin hafa alltof mikilla hagsmuna að gæta, til þess að þau geti látið slíkt líðast." Hattersley sagðist ekki geta svarað þvi fyrir viðræðurnar, hvort Bretar mundu sætta sig viö neitt minna en áframhaldandi undanþágur til veiða innan 50 milna. „Bretarmunu fylgja sam- þykkt Efnahagsbandalagsins um, að ekki verði af framkvæmd toll- friðinda fyrir islenzkar sjávar- afurðir, fyrr en íslendingar hafa samið um landhelgismálið við öll riki i bandalaginu,” sagði hann. Þetta var svar hans við kröfum margra íslendinga um, að ekki verði samið við Breta, nema þeir sjái til þess, að Efnahagsbanda- lagið lækki þessa háu tolla. ,,Ég kem ekki til íslands til að undirbúa strið heldur semja,” sagði Roy Hattersley. Hann kvaðst vera „mjög bjart- sýnn” I upphafi viðræðnanna við íslendinga. Einar Agústsson utanrikisráð- herra kveðst vona, að Bretar hafi nú betri skilning en áður á nauð- syn Islendinga á útfærslu og verndun fiskimiða. Utanrikisráð- herra segir, að íslendingar „muni gefa mjög litið eftir.” Fundur fulltrúa Breta og Is- lendinga hófst i Ráðherra-, bústaðnum klukkan ellefu i morg- un. —HH f Islenzkar hand- boltastjörnur í slysi ytra: Sluppu allvel út úr bíl- flakinu Hurð skall nærri hælum hjá tveimur islenzkum hand- knattleiksmönnum i Vestur- Þýzkalandi á dögunum, þeim Axel Axelssyni og Ólafi H. Jónsson, og eiginkonu Axels, Kristbjörgu Magnús- dóttur. Þau lentu i bílslysi — en sluppu með minni háttar meiðsli. Hins vegar var fjórði maður i bilnum með þeim, Þjóðverji, og hann handleggsbrotnaði. Tildrög voru þau, að Axel, Ólafur og Kristbjörg voru á leið til Dankersen eftir leik og i dimmviðri á þjóðbraut missti þýzki ökumaðurinn stjórn á ^bilnum — hann þeyttist út af veginum og skall á tré. Billinn gjöreyði- lagðist — talinn ónýtur. Axel fékk þungt höfuðhögg — skall á framrúðuna, en það reyndist ekki alvarlegt. Ólafur fékk högg á siöu, og var aumur eftir. — Ekki munu þessi meiðsli hafa áhrif á handknattleik þeirra neitt að ráði. Kristbjörg slapp með minni háttar skrámur — en þýzki öku- maðurinn varð verst úti — handleggsbrotnaöi. —hsim. „Wanted" 5 kálfar Bóndinn á Olfarsfelli í Mos- fellssveit, Grimur Nordahl, tilkynnti Arbæjarlögreglunni i gær, að hann heföi týnt fimm kálfum á sunnudaginn og ekki séö urmul af þeim siðan. Lög- reglan fór á stúfana og gat til- kynnt Grfmi bónda skömmu siðar, að kálfarnir hans væru á beit skammt frá Geithálsi og gæti hann sótt þá þangað. —SHH „Ég er bjartsýnn," sagði Hattersley við komuna í Ráðherrabústaðinn klukkan ellefu í morgun. Einar Ágústsson sagðistvona, að Bretar skildu afstöðu íslendinga betur en áður. —Ljósmynd DAGBLAÐSINS Bjarnleifur. GAMAN AÐ VERA ISLENDING UR Á LENIN-LEIKVANGINUM r — sagði ambassador Islands, Hannes Jónsson ÞETTA VAR FÍNT HJÁ STRÁKUNUM — sagði Ásgeir Sigurvinsson í Belgíu Höfðum mikla yfirburði — Jóhannes Eðvaldsson í Glasgow íþróttir í opnu Bílstjórinn taldi sig hafa sofnað við stýrið: Strœtisvagn tvístraði smábflunum Tveir bilar hentust. sinn i hvora áttina i nótt, þegar strætisvagn kom aftan á þá án þess að slaka á ferðinni. Þetta var á mótum Laugavegar og Nóatúns klukkan rúmlega eitt. Þar stóðu Volkswagen 1600 og Mercedes Benz leigubíll við rautt ljós og biðu eftir grænu. / Strætisvagninn kom aftan á Volkswagenbilinn og kastaði honum á benzinn. Höggið var það mikið, að benzinn kastað- ist til hægri en Volkswageninn til vinstri, en strætisvagninn hélt sinu striki og stöðvaðist ekki fyrr en handan við gatna- mótin. Vagnstjórinn var einn i vagninum og taldi sjálfur, að hann myndi hafa dottað and- artak i þessari siðustu ferð dagsins. VARST ÞU EINN HINNA HEPPNU? — dregið í Happdrœtti Háskólans í gœr og við birtum auðvitað vinningaskrána — sjá bls. 16

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.