Dagblaðið - 12.09.1975, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 12.09.1975, Blaðsíða 1
M fl BIAÐIÐ v jálst, úháð datfblað mil“l Boggi bitbein £ T* aða /w"\ síða /í „ \ \ t 1. árg. —Föstudagur 12. september 1975 — 5. tbl. Hva slas iða erin aður mc di átti iður á h stór- ótelið? 83 ARA KONA ALEIN FLJUGANDI AÐ VESTAN LITFRÍÐ - OG UÓSHÆRÐ ,,Ég er að þessu, af þvi að mér þykir þetta bezta skemmtun,” sagði 83 ára flugkappinn ungfrú Marianne Hart. Dagblaðsmenn komu að henni rétt fyrir hádegið, þar sem hún var að gefa flugvallarstarfsmönnum fyrirmæli um, hve mikla oliu þeir ættu að setja á flugvélina hennar og hvernig. ,,Ég er að koma yfir Atlants- hafið frá Washington. Það er gott á Islandi, ef ekki er kalt,” sagði hún og hristi sig litið eitt i nepjunni. ,,Ég hef flogið i um 30 ár.” Ungfrú Hart hefur flogið yfir öll heimsins'höf. Hún hefur áður komið til Islands, alls sjö sinn- um. Hún er ein i véi sinni, svo að gott er, að konan er hin hress- asta þrátt fyrir hinn háa aldur, og lætur sér ekki allt fyrir brjösti brenna. —HH Marianne Hart við flugvél sina. I.ætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Hvaða mikilvægari störfum hafði þyrla Slysavarnafélagsins og Landhelgisgæzlunnar að sinna en að koma stórslösuðum manni i sjúkrahús? Þetta er spurningin, sem menn velta fyrir sér i dag, ekki sizt þeir Hornfirðingar, sem urðu vitni að sjúkraflutningum frá brezkum togara á miöunum þar út af. Sá slasaði var sjómaður af brezka togaranum Falstaff og hafði fengið griðarlegt höfuð- högg. Mjög vont var i sjóinn og hvasst, og ekki þótti vogandi að flytja hann milli skipa. Læknir frá eftirlitsskipinu Othello fór um borð i togarann, og Land- helgisgæzlan var beðin ásjár. Þyrlan GNÁ var að taka elds- neyti á Hornafirði, en fór að þvi loknu og sótti manninn og lækninn. Þeim var svo skutlað upp á hótel á Höfn, en siðan hélt þyrlan til annarra starfa. Tveim timum siðar kom litil flugvél aö sunnan, en karfan komst ekki inn i hana. Þá var enn beðið i klukkutima, og þeim slasaða þá komið suður með Fokkervél frá Flugfélaginu. Hjá Landhelgisgæzlunni var þvi svarað um mikilvægari verkefni þyrlunnar, að hún hefði verið ,,á patról og öðru, i tvö- földu verkefni.” Sagt var. að umboðsmanni brezkra togara hefði verið gcrt viðvart og lika ræðismanni Breta. og þeim falið að útvega sjúkraflugvél. En menn spyrja: Var það nægileg afsökun til þess að skilja slasaðan mann eftir á hótelinu, að visu meðlækni. Var ekki nær að fara á móti væntan- legri flugvél að sunnan eða koma manninum örugglega á sjúkrahús, ef þörf krafði? Hefði verið farið eins að, ef sjúkiing- urinn hefði verið islenzkur sjómaður? Dagblaðið spurði héraðs- lækninn á Hófn i morgun. hvað gert hefði verið við slasaða manninn á hótelinu, en hann hafði engin afskipti haft af málinu, var i sjúkravitjun fram i sveit, meðan beðið var eftir flugi fyrir sjúklinginn og þvrlan var ..á patról". —• —SHH NÆST Á MÁNUDAG Hún er ein af þeim, sem sýningargestir á ljósmvnda- sýningunni LJÓS '75 l'á að sjá þessa dagana. Mats Wibe Lund hitti þessa fallegu stúlku og festi hana tryggi- lega á liftfilmu Vegna mikils álags á prent- smiðju Blaðaprents hf. verður ekki unnt að prenta laugar- dagsútgáfu fyrir Dagblaðið að þessu sinni. Er þvi margvis- legt helgarefni i þessu eintaki Dagblaðsins. Vonandi verður i næstu viku og framvegis unnt Þrengsli í Blaðaprenti að prenta laugardagsblöð Dagblaðsins. I þetta sinn kem- ur næsta tölublað Dagblaðsins út á mánudaginn.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.