Dagblaðið - 17.09.1975, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 17.09.1975, Blaðsíða 5
Hagblaðið. Miðvikudagur 17. september 1975. 5 „d 01 i$\ JÐ U BULL- r S' Sl VE KY IT R1 Tlf rui t A ^Ujyi" Nú er klippt og klippt — en engin stefnubreyting, segir gœzlan Flestir munu telja að breytt hafi verið um stefnu i togvira- klippingum og var nú siðast i fyrradag klippt á togvira þýzks togara á Deildargrunni norðvest- ur af landinu.Hálfdán Henrýsson hjá Landhelgisgæzlunni vildi alls ekki kannast við að breytt hefði verið um stefnu gagnvart Þjóð- verjunum, þeir væru ekki eins vprir um sig og áður, þegar þeir voru alltaf löngu búnir að hifa áð- ur en varðskipin voru komin nógu nærri til að klippa. —BH- — rœtt við Ingimar, rétt nýkominn úr frœgðarför til Mallorka með hljómsveit sína Það má með sanni segja, að hljómsveit Ingi- mars Eydal hafi farið hina mestu fræðgarför til Mallorka í sumar. Eins og les'endur DAGBLAÐS- INS muna eflaust var sagt f rá því í síðustu viku, að hljómsveitin hafi leik- ið fyrir ríkisarfa Spánar og fleiri tigna gesti. Við náðum tali af Ingimari Eydal, þegar hann kom til landsins á sunnudags- kvöldið. „Þetta atvikaðist allt þann- ig,” sagði Ingimar og hóstaði djúpt, þvi að hann kvefaðist illi- lega á Mallorka, ,,að eigendur Jack E1 Negro, klúbbsins, sem við spiluðum á, buðu Carlos rikisarfa og fleiri tignum gest- um til veizlu i klúbbnum. Þessi veizla var að sjálfsögðu algjör- lega lokuð almenningi, en eig- endurnir bjuggust við þvi að tignarfólkið yrði búið að ljúka sér af um tólfleytið um kvöldið, svo að við vorum beðin um að vera mætt á staðinn og tilbúin að spila upp úr tólf. En þegar til kom vildi krón- prinsinn dansa og óskaði eftir að klúbburinn yrði opnaður fyrir almenning. Spænska lögreglan og öryggisverðir prinsins voru ekkert geysilega hrifnir af þvi, en prinsinn fékk vitanlega sinu framgengt. Nú, prinsinn hafði heyrt af is- lenzkri hljómsveit, sem léki þarna i klúbbnum, og vildi endi- lega heyra i henni. Við vorum þvi beðin um að leika i smá- tima, en þessi smátimi dróst upp i klukkustund. Fólkið virtist skemmta sér hið bezta, og Konstantin fyrrverandi Grikkjakonungur og Carlos krónprins dönsuðu bullsveittir á skyrtunum. Þegar við höfðum loksins lok- ið við að skemmta fólkinu, var okkur boðið upp á þann stór- kostlegasta málsverð, sem við höfðum nokkru sinni bragðað.” Siðan spurðum við Ingimar, hvort hann ætti ekki einhverjar myndir frá þessum atburði til að sýna lesendum. „Nei, nei, myndataka var stranglega bönnuð og allt öryggiseftirlit var geysilega strangt. Enskur blaðamaður hafði samband við mig daginn eftir þennan atburð og bað mig um upplýsingar um allt, sem þarna gerðist. Ég gaf honum þær i mesta sakleysi, en seinna kom svo i ljós, að ég hafði enga heim- ild til þess, og allt, sem ég hafði sagt um krónprinsinn og hefðar- fólkið, hafði verið samvizku- samlega klippt út úr fréttinni.” —ÁT— inbera nái ekki að stela af þvi um helmingi þess sem það raunverulega á að fá útborgað þegar sparimerkin eru leyst út. Sem raunverulegt dæmi má nefna að ef ein króna er lögð inn i marz 1969 og visitalan hækkar um 326% fást með 4% vöxtum greiddar út hjá veðdeild Lands- bankans (þvi opinbera) tvær krónur og sjötiu i stað fimm og fjörutiu, sem er hin rétta út- koma, ef starfsmenn veðdeildar innar kynnu að reikna út visi- töiubætur.Hið opinbera stundar þvi þjófnað á sparimerkjafé unga fólksins og greiðir út að- eins um 50% af þvi sem það á rétt á. —BH það Sumir virðast ganga í heilaga bara til að nó út sparimerkjunum Svo sem flestum er kunnugt er stundað talsvert hér á landi að fólk gifti sig til að leysa út sparimerki sem eru bundin til 26 ára aldurs nema fólk sé i skóla eða gift. Mætti e.t.v. kalla þetta að giftast til fjár. Dæmin þekkjast aðallega um það að piltar hafi fundið ein- hverja stúlku og fengið hana til að giftast sér og hafi hún hlotið að launum einhvern hluta út- leystu peninganna. Einnig getur þetta komið brúðinni og brúð- gumanum til góða ef þau hyggj- ast bæði leysa út sparimerkin sin og geta það ekki á annan hátt. Þá er þetta gagnkvæmt hagsmunamál þeirra beggja. 1 borgardómi fengum við þær upplýsingar að oftá tiðum héldu skrifstofustúlkurnar, þegar brúðhjónin tilvonandi koma á skrifstofuna, að þarna gæti að- eins verið um að ræða brúðkaup til að losa um sparimerkin sem rikissjóður tekur af mönnum i 10 ár frá 16 ára aldri.Náttúrlega er þó aldrei hægt að fullyrða um slikt. Yfirborgardómari, sem oftast gefur saman, kvaðst þó halda að sjaldnast eða aldrei hafi til- gangurinn með hjónabandinu verið sá einn að fá leyst út sparimerkin sin.Afar fágætt sé að hjón sæki um skilnað innan eins árs frá giftingunni, svo að ekki er að minnsta kosti sótt um skilnað alveg strax, þótt kannski hafi aðeins verið um að ræða „sparimerkjabrúðkaup”. Reyndar er það engin furða þótt fólk gifti sig til að leysa út skyldusparnaðinn svo að hið op- Nei, þetta eru engin mistök! Einhverjum kann að verða að orði að þeim sé farið að förlast eitthvað, Ijósmyndurunum okkar. Svo er þó ekki. Björgvin Pálsson tók þessa DB- mynd af einu af skipum Ríkisskips. Hann tók mynd af polli á bryggj- unni, og þetta varð út- koman, hálfgerð skrum- skæling af skipi, — og á hvolfi í þokkabót! BYRJENDANÁMSKEIÐ í JUDO hefst fimmtudaginn 18. september kl. 19.00 Kennt verður að Brautarholti 18, undir stjórn Michal Vachun á mónudögum milli kl. 19 og 20 Innritun ó sama tíma Judofélag Reykjavíkur Sími 16288

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.