Dagblaðið - 31.10.1975, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 31.10.1975, Blaðsíða 12
Hagblaðið. Föstudagur 31. október 1975. Pagblaðið. Föstudagur 31. október 1975. 13 12 ð íþróttir iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Möguleikar enskra nú jafnvel minnstir — eftir tapleik gegn Tékkum í Evrópukeppni landsliða í gœr Englendingar urðu fyrir miklu áfalli i gær þegar þeir töpuðu fyr- ir Tékkum i Bratisiava — 2-1 i Evrópukeppni iandsiiða. Já, rétt eins og i Póllandi fyrir heims- mcistarakeppnina i Þýzkalandi brugðust Englendingar á örlaga- stundu. t fremur lélegum leik þar sem Tékkar voru þó betri náðu Eng- lendingar forystu, Keegan, sem lék sem tengiliður, lék á þrjá varnarmenn Tékka.gaf siðan góð- an bolta á Channon, sem var óvaldaður innan vitateigs, Channon urðu ekki á nein mistök, lyfti boltanum örugglega yfir Viktor, markvörð Tékka. En hafi Englendingar haldið, að þetta yrði auðveldur leikur, þá skjátl- aðist þeim. Maxny útherji Tékk- anna var hreint óstöðvandi. Á 44. minútu gaf hann góðan bolta fyrir og Nehoda skallaði glæsilega framhjá Clemence i enska mark- inu. Strax á 2. minútu siðari hálf- leiks var Mazny enn á ferð — aft- ur gaf hann góðan bolta fyrir og Peter Gallies sendi boltann i mark Englendinga — staðan 2-1 og Tékkar höfðu skorað tvö mörk á 4 minútum. Var nú sem Eng- lendingar vöknuðu upp af vond- um draumi og fóru að sækja ákaft. En eins og svo oft áður gátu þeir ómögulega skorað. Allt kom fyrir ekki. Eftir þennan ósigur Englendinga minnkuðu mögu- leikar þeirra verulega. Litum á stöðuna i 1. riðli: England...........5 3 1 1 10-2 7 Tékkóslóvakia.......4 3 0 1 11-4 G Portúgal .........3 111 2-5 3 Kýpur........... 4004 0-12 0 Af þessu má ljóst vera, að möguleikar Tékka eru nú mestir en Portúgalir eiga lika mögu- leika. Þeir hafa tapað jafnmörg- um stigum og Englendingar en eiga bæði Tékka og Englendinga eftir i Lissabon og er ekki að efa að þá mun hart barizt. Leikirnir sem eftir eru: 12/11 Portúgal — Tékkóslóvakia 19/11 Portúgal — England 23/11 Kýpur — Tékkóslóvakia 3/12 Portúgal — Kýpur h.halls Eigum allgóða möguleika „Ég bíð spenntur eftir leikjun- um um helgina vegna þess, að ég held og trúi, að við eigum nokkuð góða möguleika á að vinna Eng- lendinga,” sagði dr. lngimar Jónsson, formaður Blaksam- bands tslands, i viðtali við Dag- blaðið i morgun. ,,Það hafa átt sér stað miklar framfarir i blaki hér á landi. Reyndar held ég að blakiþróttin standi á timamótum og i vetur springi þetta út.” Um helgina verða tveir lands-. leikir i blaki i iþróttahúsi Kennaraháskóla Islands. Þá mæta íslendingar i fyrsta sinn Englendingum. Eins og gefur að skilja eru Englendingar okkur óþekkt stærð. FYRSTI SIGUR IS- LANDS EÐA FÆREYJA? Fyrsta landskeppni islands og Færeyinga ibadminton verður i Laugardalshöllinni i kvöld og hefst kl. 20.00. Leiknir verða fimm lcikir — þrir i einliðaleik og tveir i tviliðaleik. Keppendur verða Haraldur Korneliusson, Friðleifur Stefánsson, óskar Guðmundsson, Steinar Petersen, Sigfús Ægir Árnason og Ottó Guðjónsson. Fyrir Færeyjar keppa Poul Michelsen, Hans D. Steenberg, Pétur Hansen, Egil Lyngsöe, Svend Steenberg — en varamenn verða Jan Joensen og Guðmund Niclasen. Myndin að neðan er af Færeyingunum. A laugardag veröur opið mót i íþróttahúsinu I Garðahreppi og keppa Færeyingarnir þar ásamt beztu badmintonmönnum ts- 1 lands og nokkrum A-flokks- mönnum. Það mót hefst kl. 13.30. Landskeppnin i kvöld er hin þriöja, sem islendingar leika — áður tapleikir gegn Norð- mönnum og Finnum, en Fær- eyingar leika i fyrsta skipti landskeppni I badminton. Eina viðmiðunin, sem við höf- um, eru leikir okkar við Skota. Við töpuðum fyrir Skotum 0-3, hrinurnar fóru 4-15, 11-15, 13-15. Þannig að ekki munaði miklu. Hins vegar léku Skotar og Eng- lendingar nýlega og sigruðu Skot- ar 3-1. Samkv. þessu ætti að vérða nokkuð jöfn barátta. Fyrri leikurinn verður á laugardag kl. 17.30 og sá siðari á sunnudag á sama tima. Liðið verður skipað eftirtöldum leikmönnum: Guðmundur Pálsson, Þrótti, hann er fyrirliði. Valdemar Jónasson, Þrótti Gunnar Arasón, Þrótti Páll Ólafsson, Vikingi Gestur Bárðarson, Vikingi Elias Nielsson, Vikingi Helgi Harðarson, IS Sigfús Haraldsson, IS Indriði Arnórsson, IS Liðsstjóri verður Halldór Jóns- son. Aðalfundur handboltamanna í Breiðabliki Handknattleiksdeild Breiða- bliks i Kópavogi heldur aðalfund sinn mánudaginn 4. nóvember n.k. og hefst fundurinn kl. 21. Fundurinn verður haldinn i sam- komusal Kársnesskóla. — sagði dr. Ingimar Jónsson um landsleiki íslands og Englands í blaki Höstmilen—og Lilja 3ja í kvennaflokki Konur voru um fimmti hluti keppenda og þar varð Lilja þriðja á 45 min. og 29 sek. og það er all- gott hjá konu i 11 km erfiðu skógarhlaupi. Rosita Wester- holm, Norrköpping, náði beztum tima kvennaanna — hljóp á 43.14 min. Veður var hið bezta, þegar hlaupið fór fram ,,og ég tók þetta meira sem æfingu, þvi ég er held- ur slök i skógahlaupum”, sagði Lilja, þegar Dagblaðið ræddi við hana um hlaupið. „Þetta var anzi erfitt hlaup — strembnar brekkur og margar þeirra langar. Fyrstu 6 km gengu þó vel, þó ég væri þreytt eftir all- ar brekkurnar — en siðustu fjórir km voru það versta i þessu 11 km hlaupi. Upp og niður i móti og mjóir stigar. Ég missteig mig, en hélt þó áfram”, sagði Lilja enn- fremur. Það cr mikiil fjöldi I skógarhlaup- unum i Sviþjóð eins og sést á þessum myndum. Þær voru tekn- ar i Höstmilen i Norrköping sl. sunnudag. Á minni myndinni er Lilja Guðmundsdóttir önnur og ekki að sjá nema allt séu karl- menn i hópnum nema hún. Neðri myndin var tekin, þegar hlaupið var nýhafið. Sigurvegari i hlaupinu var Partanen, sem er i sama félagi og Lilja og Rosita, á rúmum 34 min. Stúlkurnar i IFK Norrköping sigruðu i 3ja manna kvenna- keppninni. Þetta er ef til vill táknræn mynd um gang Evrópuleiksins i gærkvöldi Rogers og skorar auðveldlega. Rogers tókst litið að hafa tök á honum — bandariski risinn Rennie Canon hjá Playboys gnæfir hátt yfir landa sinn Jimmy — og þvi fór sem fór. DB-mynd Bjarnleifur. — Var í sigursveit IKF Norrköping og hljóp vegalengdina — 11 km á 45.29 Lilja Guðmundsdóttir, islands- methafinn i 800 og 1500 metra hlaupum, tók þátt i miklu skógar- hlaupi — Höstmilan — i Norrköp- ing i Sviþjóð sl. sunnudag og stóð sig prýðilega. Varð i 3ja sæti i kvennaflokki — en nr. 88 samtals. Um 500 keppendur hófu hlaupið — en rúmlega 300 komu i mark. Þetta er eitt mesta hlaup, sem fer fram þarna um slóðir. hönd Islands á Olympiuleikunum i Montreal næsta sumar. Hún hef- ur hlaupið 800 m á 2:08.5 min. og skortir aðeins hálfa sekúndu á Olympiulágmarkið. Það ætti að verða létt hjá henni næsta vor —■ þvi Lilja æfir vel og er núna mikiu sterkari en á sama tima i fyrra. -----------------> Það var aldrei glœta hjá Ármanni í Evrópuleiknum! — Finnska liðið Playboys sigraði Ármenninga með yfirburðum í Laugardalshöllinni í gœrkvöldi. Skoraði 88 stig gegn 65 Ármanns — Ég bjóst við islenzka liðinu stcrkara — já, við vorum meira að segja hálfhræddir fyrir leikinn. En þegar blökkumanninum i Ármanns- liðinu mistókst i hinum auðveldustu tækifærum i byrjun leiksins hvarf ótti minn, sagði einn af fararstjórum finnska liðsins, Kari Pekkala, eftir sigur finnska liðsins Playboys frá Helsinki gegn Armenningum i Laugardalshöll i gærkvöldi. Lokatölur urðu 88—65 fyrir Finna og eftirleik- urinii ætti að vera auðveldur hjá þeim að komast i 2. umferð Evrópukeppni bikarhafa. Slðari leikur Playboys og Armanns verður í Helsinki i næstu viku. Nokkrir islenzku leikmannanna komu mér á óvart, hélt Pekkala áfram, — nr. 5, Jón Sigurðsson, erafar leikinn með knöttinn — og einnig ungi, ljóshærði pilturinn nr. 13, Guðsteinn Ingimarsson. Hins vegar tókst þeim ekki eins vel út allan leikinn og i byrjun — og þvi varð munurinn svona mikili okkur i hag. Körfuskotin voru slök hjá Armenn- ingum, enda við ramman reip að draga — þeir fengu aldrei frið. Varnarleikur finnska liðsins var það góður, sagði Guðmundur Þorsteinsson, körfuknattleiks- maðurinn kunni, og Jón Otti, KR- ingur, bætti við. Jimmy Rogers virtist algjörlega þjakaður af taugaspenn- unni — náði sér ekki á strik nema kafla i siðari hálfleiknum. Það hafði mikil áhrif til hins verra á leik Ármenninga. Það var aöeins jafnræði með liðunum fyrstu minúturnar.siðan fór finnska liðið að siga fram úr. Þó hefði blökkumaður þeirra Armenninga, Rogers, miklu getað breytt þar um — hitti ekki i körfuna úr auðveldustu færum. Staðan varð 11—6 fyrir Play- boys — en þegar Ármanni tókst að minnka muninn var spenna á áhorf- endapöllum. Um 800 áhorfendur, sennilega mesti fjöldi, sem hér hefur horft á körfubolta, var með á nótunum og hvöttu sina menn. En Ármenningar brugðust — og Finnarnir voru fljótir að snúa leiknum sér aftur i hag. I hálf- leik var staðan 43—32 fyrir Playboys. Bandariski blökkumaðurinn Rennie Canon — hæsti maður á vellinum 2.06 m, sem hafði farið rólega i sakirnar framan af — lét mjög að sér kveða, þegar liða tók á leikinn, ásamt öðrum risa úr finnska liðinu, Sarkalathi. Þeir áttu auðvelt með að koma knettinum rétta boðleið — og munurinn jókst. U m miðjan hálfleikinn var orðinn 23 stiga munur — og þá fóru leikmenn Play- boys að taka lifinu létt. Lögðu sig greinilega ekki alla fram — enda ekki þörf og þessi munur hélzt til loka. Áhorfendur urðu fyrir vonbrigðum með Armanns-liðið — beztu leikmenn liðsins brugðust. Jón Sigurðsson var bezti maður á vellinum framan af — en datt illa i byrjun siðari hálfleiks og náði sér ekki á strik eftir það. Skoraði ekki körfu i hálfleiknum. Jimmy Rogers var miður sin i byrjun — aðeins smákafla i siðari hálfleik, sem Risabingó í Keflavík tþróttabandalag Keflavikur gengst fyrir fyrsta risabingói haustsins i Fé- lagsbiói i Keflavik i kvöld. Mikið úrval er af góðum vinningum — meðal ann- ars tvær utanlandsferðir, rafmagns- tæki, gullúr og fleira. Bingóið hefst kl. 21.00 og verða spilaðar 18 umferðir. hann sýndi sinar réttu hliðar. öðrum leikmönnum Ármanns — nema þá helzt Birgi Birgis — tókst ekki að hefja upp merkið, þegar máttarstólparnir voru miður sin. Stigahæstir hjá Playboys voru Canon með 23 stig, Sarkalathi 19 og Koskivara 10, en stig Ármanns skoruðu Rogers 24, Birgir 11, Jón 10, Guðsteinn 8, Björn Christensen 5, Sigurður Ingólfsson 4, Björn Magnússon 2 og Jón Björgvinsson eitt. Ámorgun, laugardaginn 1. nóv- ember, verður aftur slikt skógar- hlaup og vegalengdin þá 14 km. ,,Ég veit ekki hvort ég verð með — en ef ég hleyp verður það bara sem æfing. Félag mitt vill endi- lega að ég keppi”, sagði Lilja að lokum. Þess má geta, að Lilja hefur mikla möguleika á að keppa fyrir íþróttir Meira að segja Þjálfi er I góðu skapi ^ Ah, þú ert breyttur, -------'Þú áttir frábæran Lolli á eftir að segja ) ýmislegt. Hann mun segja, að við getum ekki

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.