Dagblaðið - 15.03.1976, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 15.03.1976, Blaðsíða 4
'4 Dagblaðið. Mánudagur 15. marz 1976. Nýjar reglur um meðferð ó tékkum — núgildandi reglur hafa ekki dregið úr misnotkun — bankarnir meðóbyrgir Að frumkvæði Seðlabanka íslands og undir forystu hans er nú unnið að því að stokka algerlega upp, enrf einu sinni, reglur um meðferð tékka. Nefnd kunnáttumanna vinnur að þessu verkefni og er Björn Tryggva- son seðlabankastjóri formaður hennar. Er ekki aðeins unnið að gerð nýrra reglna heldur er og .kannað hvernig þeim hefur verið beitt og hver árangur hefur orðið. Reynslan af krossferðinni gegn út- gefendum, með sektum og viðurlög- um, er sú að hún hefur ekki að neinu marki dregið úr misnotkun t,ékka, nema síður sé. Með þeirri aðferð hafa þeir, sem aðhaldið ætluðu að veita, aðeins ýtt á undan sér vandanum en ekki leyst hann. Eitt af því, sem reynt hefur verið að kanna, er það að hverju marki bankarnir endursendi yfirleitt innstæðulausa tékka. Þess má geta að fyrir 1963 beittu bankarnir ábyrgð á hendur framselj- endum tékka. Þeirri aðferð var, að minnsta kosti í framkvæmd, breytt á þann veg að útgefendur voru fyrst og fremst sóttir til greiðslu og sekta. Til greina hefur komið nú að beita aftur í ríkara mæli framseljenda- ábyrgðinni. Þá hefur komið til álita að taka upp heimildarskírteini sem gefið er út af banka um leið og hann opnar hlaupareikningsviðskipti og ávísanaviðskipti einstakra manna. Framvísun þessa skírteinis tryggir að öðru jöfnu að tékkar séu gefnir út af þeim, sem undir þá ritar, þ.e. að undirskrift sé ekki fölsuð af heimildarlausum handhafa tékk- heftis. Loks er í athugun að taka upp þá tilhögun, sem reynzt hefur vel á hinum Norðurlöndunum, samhiiða heimildarskírteini, að viðskiptabank- ar beri ábyrgð á tékkum sem viðskiptamenn þeirra gefa út að til- teknu marki. í Danmörku taka Nýjar reglur um tékkameðferð eru nú í smíðum. Meðal þeirra breytinga, sem í athugun eru, má nefna útgáfu heimildarskírteina til handhafa tékkhefta, ábyrgð b^nka á tékkaútgáfu viðskiptavina sinna og endurupptaka framseljenda- ábyrgðar í ríkara mæli en verið hefur frá 1963. bankar ábyrgð á allt að kr. 500.00 (d.kr.). Greiðir þetta að sjálfsögðu fyrir notkun tékka í öllum almennum viðskiptum og er reynslan af þessari tilhögun sú að misnotkun er alveg hverfandi. Svipað er að segja um tékkareglur í Noregi. Þess er ekki langt að bíða að hinar nýju reglur verði lagður fram og kynntar öllum viðkomandi til eftir- breytni. —BS Nýtt félag fyrir stjörnuskoðendur — Stjörnu- skoðunarfélag Seltjarnarness heitir það Áhugamönnum um stjörnuskoðun og stjarnfræði hefur farið mjög fjölg- andi hér á landi að undanförnu. Nú hefur verið stofnað félag fyrir þetta fólk. Það nefnist Stjörnuskoðunar- félag Seltjarnarness og var stofnað síðasta fimmtudag. Tilgangur félagsins er fyrst og fremst sá að stjörnuskoðendur geti komið saman og skipzt á skoðunum um áhugamál sitt. Einnig taldi Þor- steinn Sæmundsson stjarnfræðingur, sem er formaður félagsins, að í fram- tíðinni kynni fræðslustarf að verða þáttur í starfseminni. Helztu ástæðu þess, að áhugi fyrir stjarnfræði hefur vaxið svo sem raun ber vitni, taldi Þorsteinn vera þá, að settur hefur verið upp stærsti stjörnukíkir landsins í Valhúsaskóla á Seltjarnarnési. Það framtak kvaðst Þorsteinn helzt vilja þakka Sigurði Kr. Árnasyni, sem á mestan þátt í því að sjónaukinn var keyptur. Hann lagði einnig verulegt fé úr eigin vasa til kaupanna. Sigurður á sæti í stjórn Stjörnuskoðunarfélagsins ásamt Þorsteini og Sigfúsi Thoraren- sen. Stofnendur Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness eru 20 talsins. Félagið er opið og geta allir sótt um inn- göngu án tillits til búsetu eða aldurs. Þeir, sem áhuga hefðu á að kynna sér félagið geta snúið sér til stjórnar- mannanna sem fúslega veita allar upplýsingar. _át___ STYRKIR TIL DAG- BLADANNA STÓRLEGA SK0RNIR NIÐUR Ríkið hyggst skera stórlega niður styrki til dagblaðanna en auka stuðn- ing til blaða úti á landi, að sögn Höskuldar Jónssonar ráðuneytis- stjóra í fjármálaráðuneytinu í gær. Höskuldur gerði Dagblaðinu grein fyrir tillögum nefndar sem þingflokk- arnir skipuðu. í nefndinni var einn frá hverjum þingflokki. Skera á niður áskriftir ríkisins að dagblöðum og Nýjum þjóðmálum, málgagni Sam- takanna, úr 450 eintökum í 200 . „Þá losnar fé til ráðstöfunar, meðal annars til blaða úti á landi,” sagði Höskuldur. Fjórar og hálf milljón króna eiga að ganga frá ríkissjóði til kjördæma- málgagna og skiptast jafn milli þing- flokka, þannig að hver þingflokkur fær 900 þúsund krónur. 6,95 milljónir ganga til þingtlókk- anna, þannig að fyrir hvern þing- mann sinn fær hver þingflokkur 116 þúsund krónur. Þessu fjármagni eiga þingflokk- arnir að ráðstafa eftir vild, til dag- blaða eða blaða úti á landi. Eftir eru þá 13,5 milljónir króna, sem eiga að fara til áskrifta að dag- blöðum og Nýjum þjóðmálum. Alls fara í þessa blaðastyrki 24,95 milljónir, sem er svipuð upphæð og var í fyrra, en munurinn er sá, að þá fór langmestur hluti þessa fjár til beinna áskrifta af blöðunum. Dagblaðið tekur ekki ríkisstyrk. —HH Drengur fyrir bíl ó Akranesi Sex ára gamall drengur varð fyrir bíl á Akranesi um hádegisbilið á laugardag. Slysið átti sér stað á gatnamótum Suðurgötu og Melteigs. Drengurinn hljóp út á götuna í veg fyrir bílinn.Hann lenti á hægra horni bílsins, barst síðan aftur með honum og lenti undir afturhjólinu. Hann var þegar fluttur á sjúkrahúsið á Akranesi og síðan til Reykjavíkur til frekara öryggis. Eftir skoðun kom í ljós, að drengurinn hafði marizt tölu- vert og hlotið slæmt höfuðhögg, en sloppið alveg við beinbrot. — ÁT— Dýrmœlum logsuðutœkjum stofíð Dýrmætum logsuðutækjum var stolið af verkstæði á Hyrjarhöfða 6, aðfaranótt sunnudagsins. Þjófarnir áttu greiðan aðgang að fengnum, þar sem húsið er í byggingu, og auðvelt að komast þar inn. Logsuðutækin voru það eina, sem stolið var af verkstæðinu. Þjófarnir skrúfuðu þau meira að segja af gas- kútnum og skildu hann eftir. —ÁT— „ístak hf. er dótturfyrirtœki E. Phil & Sön hf. ó eyjunni ísland" „Þegar litið er á heildarstarfsemi fyrirtækisins er um það bil helm- ingur þeirra verka, sem það hefur með höndum, á fslandi, Cirænlandi og í Færeyjum. Á fslandi er dóttur- fyrirtækið fstak hf., sem á undan- förnum árum hefur meðal anhars byggt vatnsaflsstiiðvar og hafnir og lagt vegi á eyjunni. Nú er fyrirta*kið að byggja meirihállar fiskihöfn á suðurströndinni.” Framangrcint er úr grein og viðtali við Sören Langvad í danska blaðinu Börsen sem fjallar um verktakafyrir- tækið E. Phil & Sön A/S, Lyngby, Danmörku. Frá því er skýrt að hcildarvclta fyrirtækisins hafi á sl. ári verið um 4.200 milljónir króna eða um 150 miijjónir danskra króna. Hafi fyrirtækið komizt hjá tapi á árinu þrátt fyrir lélega afkomu í Færeyjum. Reikningarnir fyrir 1974/1975 sýna kr. 250.000.00 (d.kr.) hagnað, cn hins vcgar gufar sá hagnaður upp vcgna taps á útibúinu í Færeyjum. Otkoman er því sem næst núll. Framkvæmdastjórinn, Sören Langvad verkfræðingur, væntir þess að hið nýbyrjaða starfsár sýni betri rekstrarafkomu. Meðal þeirra verk- efna, sem fyrirtækið væntir góðs hagnaðar af, má nefna verk í Saudi- Arabíu, Dubai, auk nokkurra Afríku- landa, sem fyrirtækið starfar í sem aðili að samsteypunni Danish Con- struction, Corporation. í því á E. Phil & Sön 25%. Höfnin, sem dótturfyrirtæki E. Phil & Sön hf. á íslandi, ístak, hf., er sagt vinna við byggingu á, er Þorlákshöfn. Þess má geta að margir kannast við Sören Langvad fram- kvæmdastjóra frá skólaárum hans hér í Menntaskólanum, og þátttöku hans í handknattleik með Ármanni á sínum tíma. —BS

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.