Dagblaðið - 06.04.1976, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 06.04.1976, Blaðsíða 12
jir íþróftir íþróttir DAGBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 1976. Skoti til Keflavikur Skozkur knattspyrnuþjálfari, James Craig, kom til Keflavíkur í gærdag — og mætti strax á fyrstu æfinguna hjá bikarmeisturum ÍBK í gærkvöld. Hann mun þjálfa liðið i sumar. Craig hefur starfað sem þjálfari í 15 ár á Bretlands- eyjum, svo og í ýmsum löndum við Miðjarðarhafið. James Craig tekur við þjálfun hjá t ÍBK af þeim Guðna Kjartanssyni og Jóni Jóhannssyni, sem annazt hafa liðið að undanförnu, og fyrsti leikur Kefivíkinga undir hans stjórn verður á fimmtudag. Þá ieika Fram og ÍBK á Melavellinum í Meistarakeppni KSÍ. Leikdagar ákveðnir! Nú nálgast óðum að Evrópukeppni landsliða komist á lokastig og leikdag- ar hafa þegar verið ákveðnir af Evrópusambandinu, EUFA. Eins og kunnugt er eru Tékkóslövakía, Júgó- slavía, Sovétríkin, Wales, Spánn, Vestur-Þýzkaland, Hoiland og Belgía í 8-liða úrslitum. Fyrri leikirnir verða leiknir 24. og 25. apríi, síðari leikirnir 22. maí. Júgóslavía — Wales 24. apríl. Spánn — V-Þýzkaland 24. apríl. Tékkóslóvakía — Sovétríkin 24. apríl. Holland — Belgía 25. apríl. Síðari leikir þjóðanna verða allir 22. maí. Stúdentar meistarar! Stúdentar undirstrikuðu rétt sinn í íslandsmeistaratitlinum í blaki þegar þeir sigruðu Laugdæli á Laugarvatni 3-0, 15:11, 15:10, 15:5. Hins vegar féll ÍMA í 2. deild þrátt fvrir sigur gegn UMFB, 3-1, 15:10, 9:15, 15:13, 15:13, UMFB hélt sér uppi á hagstæðari út- komu úr hrinunum. Á sunnudag léku menntskælingar við UMFL og tap þar þyddi fall. ÍMA tapaði 2:3, 15:11, 3:15, 12:15, 18:16, 9:15 en áreiðanlega verður þess ekki langt að bíða að ÍMA komi aftur í 1. deild. í Reykjavík léku Þróttur og Víking- ur og Þróttur sigraöi 3-1, 15:7, 15:9, 13:15, 15:2. Lokastaðan á mótinu varð: is 10 10 0 30-5 20 UMFL 10 7 3 23-15 14 Víkingur 10 6 4 22-14 12 Þröttur 10 5 5 19-19 10 UMFB 10 1 9 8-27 2 ÍMA 10 1 9 5-29 2 Wrexham, welska liðið, sem leikur í 3. deild á Englandi og stóð sig svo vel í Evrópukeppni bikarhafa í vetur, missti endanlega af möguleikum á að komast í 2. deild í fyrsta sinn í sögu félagsins, þegar liðið tapaði fyrir Port Vale í gærkvöld 1-3. Urslit í Englandi í gærkvöld: 3. deild: Port Vale-Wrexham 3-1 4. deild: Brentford-Huddersfield 0-0 Rochdale-Stockport 2-3 Gústaf Agnarsson setur íslandsmet í snörun. DB-mynd Bjarnleifur. Gústof sterkastí Islend- ingurinn, lyfti 202,5 kg. — Gústaf Agnarsson vann góð afrek ó Reykjavíkurmctinu í lyftingum í gœrkvöld. Setti íslandsmet bœði í snörun og jafnhendingu, 163 og 202,5 kg. — Hann er mjög sterkur, pilt- urinn, og ég hef trú á aðhann eigi eftir að bæta þennan árangur verulega, sagði Öskar Sigurpáls- son eftir að Gústaf Agnarsson, KR, hafði unnið mjög góð afrek á Reykjavíkurmótinu í lyftingum í Laugardalshöllinni í gær — sett íslandsmet bæði í snörun og jafn- hendingu. Lyft mesta þunga, sem íslenzkur lyftingamaður hefur gert — eða 202.5 kílóúm. Það fór saman gífurlegur kraftur og um leið mýkt hjá Gústafi, þegar hann lyfti þessum ógnarþunga. Gústaf reyndi að setja nýtt Norðurlandamet í þungavigtinni í jafnhendingu — reyndi við 208.5 kíló, en tókst ekki að þessu sinni. — Ég held að hann nái þessari þyngd síðar, sagði Óskar enn- frentur, en fyrir keppnina í gær var hann sá íslendingurinn, sem lyft hafði mestum þunga. — Islandsmet hans í jafnhendingu í yfirþungavigt er nákvæmlega 200 kíló. Unnið fyrir fáum árum, en Óskar er nú hættur keppni. Norðurlandametið í þungavigt- inni er 208 kíló og það setti Svíinn Leif Nilsson fyrir nokkrum dög- um. Framþróunin er alltaf jafn ör í lyftingunum. I keppninni í gær setti Gústaf einnig nýtt íslandsmet í snörun — snaraði 163 kílóum, sem er hálfu kílói betra en eldra íslands- metið, sem hann átti sjálfur. Hann vann það afrek í aukatil- raun, svo árangurinn 163 kíló í snörun og 202.5 kíló í jafnhend- ingu kemur ekki saman sem Is- landsmet. En það sýnir þó vel hvað í Gústafi býr — 365.5 kíló er mikill þungi og talsvert betri en íslandsmet Gústafs samanlagt nú. Eldra Islandsmetið hjá Gústafi í jafnhendingunni var 195 kíló — svo hann bætti met sitt verulega, eða um 7.5 kíló. Það er ekki neitt smáræði á einu móti. Á Reykjavíkurmótinu í gær- kvöldi setti Kári Elísson, Ármanni, einnig tvö ný tslands- met í fjaðurvigt — og hann lætur skammt vera milli stórra högga. Bætir sig stöðugt. Kári snaraði 97.5 kílóum, sem er íslandsmet í þyngdarflokknum — og jafnhatt- aði 117.5 kg. Samtals því 215 kíló og pað er Islandsmet samanlagt. Alls voru keppendur 15 á mótinu, en árangur að öðru leyti ekki sérstakur. Meístarínn oðeins í 3ja sœti — ó Evrópumeistaramótinu í lyftingum Evrópukeppnin i lyftingum fer nú fram í A-Berlín og þegar hafa orðið óvænt úrslit. Búlgarinn og heiinsmethafinn í fjaðurvigt, Georgi Todarov, varð að sætta sig við brons og var fjarri sínu bezta. Þrátt fyrir að Todarov hefði forystu cftir snörunina ásamt landa sínum Tudor Todarov, báðir snöruðu 125 kílóum, þá skaut Rússinn Nikolai Kolesnikov þeim aftur fyrir sig í jafnhöttuninni en i snöruninni hafði Rússinn lyft 122.5 kílóum. I jafnhöttuninni lyfti Rússinn 160 kílóum, Tudor 155 kílóum, en Georgi var fjarri heimsmeti sínu, sem er 161 kíló. Lyfti 152.5 kílóum. Þetta er í fyrsta skipti sem Rússinn Kolesnikov hefur sigrað Georgi Todarov og eins í fyrsta sinn, sem Rúlgari hefur sigrað heimsmeistarann. LJrslit urðu: * 1. Nikolai Kolensikov, lyfti samtals 282,5 kílóum, snaraði 122.5 kg og jafnhattaði 160 kg. 2. Tudor Todarov, lyfti samtals 280 kg, snaraði 125 kg og jafnhattaði 155 kg. 3. Georgi Todarov, lyfti samtals 277.5 kg, snaraði 125 kg og jafnhattaði 152.5 kg. Allir þrír, en yfirburðir þeirra voru umtalsverðir á mótinu, voru í aðstöðu til þess að jafna heimsmetið, sem er 285 kg en mistókst. Báðum Búlgörunum mistókst 160 kg í jafnhöttun og Kolesnikov náði ekki að jafnhatta 162.5 kg og mistókst þannig að jafna heimsmetið. Aðeins einn Islendingur er á mótinu, Guðmundur Sigurðsson og keppir hann á morgun í milli- þungavigt. h. halls. SKÍÐASKÓLI INGEMARS STENMARK Cioll cr að mrra ýmsar a*ílnt{ar lil að auka öryggið. Húr koma nokkrar lilUigur: 1. Haklið slofunum uins ojr súsl á mvndinni lungst til vinslri og æfið bcygjur. 2. Buygið ykkur vul í hnjám bg mjiiðnnim, ýkið hruvfingarnar. Takið bcygjur án þuss að hafa stafina. I. Ruynið a*finguna sum ur sýnd lungst (il hægri á myndinni. druifið uinhvurjum hlutum í brukkuna og ruynið svo að ná þcim upp. Þussar æfíngar ur bu/.t að gura í ha*filuga brattri brukku. svo þið gutið náð tökum á þuim.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.