Dagblaðið - 05.07.1976, Blaðsíða 16

Dagblaðið - 05.07.1976, Blaðsíða 16
16 DAGBLAÐIÐ — MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 1976 d íþróttir Iþróttir iþróttir Iþróttir D A föstudagskvöldið léku i biiðskaparveðri KA og næstefsta liðið í 1. deild, Víkingur. Leikur þessi var hinn árlegi minningar- leikur um Jakob hcitinn Jakobs- son, fyrrum leikmann með ÍBA og landsliðinu, sem lézt i bilslysi í Þýzkalandi fyrir nokkrum árum. Leikurinn hófst með því að leik- menn liðanna skiptust á veifum og merkjum. Að þvi búnu afhenti fyrirliði KA-Iiðsins, Hörður Hilmarsson, foreldrum Jakobs heitins veglegan blómvönd, við mikið klapp hinna mörgu áhorf- enda. KA-menn fengu frábæran 'iðsstyrk í þessum leik og var það enginn annar en atvinnu- maðurinn og landsliðsmaðurinn Guðgeir Leifsson. Leikurinn var vart orðinn nema einnar mín. gamall er Víkingar skoruðu fyrsta mark leiksins eftir hrikaleg varnarmistök KA-liðsins. Markið gerði hinn duglegi tengiliður Víkinga, Eiríkur Þorsteinsson, og skallaði hann af öryggi í netið eftir góða fyrirgjöf frá vinstri. Bæði liðin sýndu góða knatt- spyrnu og sóttu á víxl. A 18. mín. tókst heima- mönnum að jafna metin. Dæmt var vfti á Víkinga fyrir hönd innan vítateigs og skoraði Sig- björn Gunnarsson örugglega úr því. Á 20. mín. á Vikingur hörku- sókn en ekkert verður úr. Á 32. mín. auka heimamenn muninn með góðu marki Gunnars Blöndals. Stórfalleg sókn KA- liðsins, þar sem Ólafur Haralds- son sendi stungu inn fyrir vörn Víkinga og þar kom Gunnar aðvífandi og skoraði af öryggi. KA sótti nú meira en Víkingar og var öllu hættulegra við markið. Þetta bar árangur á 43. mín., er KA-mennskoruðu sitt þriðja mark í leiknum og aftur var það Gunnar Blöndal sem skoraði. Hann fékk frábæra fyrirgjöf frá Steinþóri og skoraði glæsilega. Þannig var staðan í hálfleik. Strax á 4. mín. síðari hálfleiks auka KA-strákarnir enn við •Guðgeir Leifsson — góður á Akureyri. Guðgeir var erfiður snum gömlu félögum! — þegar KA sigraði Víking 4-2 í minningar- leiknum um Jakob Jakobsson ó Akureyri forskot sitt en þeir skora sitt fjórða mark og hver haldið þið að hafi gert það mark? Jú, það var enginn annar en Gunnar Blöndal. Magnús Þorvaldss. ætlaði að gefa til Diðriks í markinu en með miklu harðfylgi komst Gunnar í milli og renndi knettinum í net- möskvana. Næstu mín. sótti KA mun meira en Víkingur og lék oft frábæra knattspyrnu, enda með Guðgeir í fararbroddi og á 21. mín. björguðu Víkingar á línu eftir þrumuskot Harðar. Næstu min. áttu KA-menn nokkur færi sem þó nýttust ekki. Á 35. mín. átti Sigbjörn skot i stöng, er hann komst einn inn fyrir, — Víkingar sannarlega heppnir þar.- Fimm mín. síðar átti Kári Árnason þrumuskot yfir eftir góða fyrirgjöf Steinþórs. Á síðustu mín. tókst Víkingi að skora sitt annað mark og var það Jóhannes Bárðarson sem það gerði eftir að hafa leikið í gegnum vörnina og skotið í netið úti við stöng. Leiknum lauk því með sanngjörnum sigri KA-manna, 4- 2. Vikingar sigruðu Skallagrim Ólafsfjarðar-Víkingarnir lögðu að velli sinn hættulcgásta and- stæðing í 3. deildinni í knatt- spyrnu á laugardaginn á heima- velli sínum. Það var Guðmundur Gunnars- son, sem innsiglaði sigur Ólafsvík- inga seint í seinni hálfleik með eina marki leiksins. Þar með hefur Víkingur 10 stig eftir fyrri umferðina, hefur lagt alla sína keppinauta að velli og skorað 27 mörk gegn 3. — R.M. Þessi leikur var mjög skemmtilegur fyrir áhorfendur þar sem bæði liðin Iéku góða knattspyrnu. KA átti meira i leiknum og átti fleiri tækifæri, þrátt fyrir að Víkingar berðust vel. Guðgeir Leifsson, gestur leiksins gladdi áhorfendur með góðum leik, þótt hann færi út af er um það bil 15 mín. voru eftir af leiktimanum. Beztu menn Víkinga voru þeir Stefán Halldórsson og Diðrik Ólafsson. KA-liðið var mjög jafnt og stóðu allir fyrir sínu. Vert er þó að minnast á ungan leikmann sem kom inn á fljótlega. Hann heitir Ólafur Haraldsson og stóð sig með stakri prýði. Fyllti hann skarð Magnúsar Vestmanns vel, en Magnús varð fyrir því óhappi að togna illa snemma í leiknum. Dómari var Sævar Frímannsson og línuverðir þeir Magnús Jónatansson og Þóroddur Hjaltalín. Áhorfendur voru 1016. -StA. Barótta FH setti í A út af laginu — on jafntefli varð ó Akranesi 1-1 i 1. deild Akranes missti dýrmætt stig í baráttunni á toppnum í 1. deild íslandsmótsins á laugardag þegar FH kom í heimsókn og Hafn- firðingarnir höfðu með sér annað stigið — verðskuldað — jafntefli varð, 1-1. Já, Akranes hefur mikið misst flugið frá síðasta keppnistímabili þegar liðið bar ægishjálm yfir önnur íslenzk knattspyrnulið. Munar þar mest um fjarveru fyrirliðans frá í fyrra — Jóns Alfreðssonar. En sú skýring er alls ekki einhlít. — Nógu mikill baráttuhugur er ekki i liðinu og eins er hættulegasti leikmaður liðsins, Karl Þórðarson, sveltur langtímum saman. Þá hann fékk knöttinn á laugardag skapaðist hætta og alltaf hafa áhorfendur jafn gaman af að horfa á þennan knáa ieikmann skilja eftir tvo til þrjá leikmenn á rassinum eins og gerðist á laugardag. Það gladdi augu Skagamanna. En snúum okkur að leiknum! — Skagamenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og fyrstu tíu mínúturnar lá stanzlaust á FHing- um. Maður hafði það á tilfinning- unni að Akranes mundi kafsigla FH, rétt eins og í fyrra þegar IA vann stórsigur, 7-0. Eftir aðeins 15 mínútna leik var staðan 1-0 fyrir Akranes. Guð- jón Þórðarson tók aukaspyrnu og sendi knöttinn vel inn í teig FHinga — þar náði Sigþór Ómars- son knettinum og sendi hann rétta boðleið í markið. Adam var þó ekki lengi í Para- dís, aðeins fjórum mínútum síðar höfðu FHingar jafnað — Viðar Halldórsson sendi knöttinn fram á bezta mann FH, Ólaf Danivals- son, og hann gaf vel fyrir á Logg Ólafsson, sem skoraði af stuttu færi — 1-1. Við markið hresstust FHingar — börðust vel og gáfu aldrei þumlung eftir. Enda og voru þeir meira með knöttinn án þess þó að geta skapað sér veruleg tækifæri. Um það er engum blöðum að fletta að sóknin er helzti höfuð- verkur FHinga, enda hefur liðið ekki skorað mörg mörk í 1. deild- inni í sumar. Það sama var uppi á teningnum í síðari hálfleik. Hafnfirðingar börðust vel. Hins vegar var sóknarleikur Skagamanna alltaf skarpari og þeir sköpuðu sér fleiri tækifæri. En inn vildi knötturinn ekki og liðin deildu með sér stigum. Sann- gjörn úrslit en ekki að sama skapi góð fyrir Skagamenn. ÍA hefur nú tapað sex stigum í baráttunni um íslandsmeistaratitilinn. Það má ljóst vera að Skaga- menn verða að taka sig verulega á ef titilinn á að hafna á Akranesi Bezti maður liðsins á laugardag, sem svo oft áður, Karl Þórðarson, er alls ekki nýttur nógu vel. Hann er sveltur langtímum sam- an úti á kanti — þá sjaldan hann fær knöttinn yljar hann áhorf- endum með leikni sinni. Jóhannes Guðjónsson komst einn- ig vel frá leiknum og hann hefur styrkt vörnina verulega eftir að hann kom inn í liðið aftur. FHingar hlutu sitt sjötta stig á íslandsmótinu i ár — það geta þeir fyrst og fremst þakkað góðri baráttu. Sennilega léku FHingar sinn bezta leik í ár og liðið er greinilega 1 sókn. Bezti maður FH var Ólafur Danivalsson en einnig komst Janus Guðlaugsson vel frá leiknum, ákaflega sterkur varnar- maður. Leikinn dæmdi Þorvarður Björnsson — alls ekki nógu sann- færandi. Iðulega var þannig að sá er braut hagnaðist á brotinu. K.P. Þór sterkari í rokinu á Selfossi Þór á Akureyri hlaut tvö þýð- ingarmikil stig i 2. deiidinni á Selfossi á laugardag — sigraði með 4—2 eftir að Selfyssingar höfðu skorað tvö fyrstu mörk leiksins. En þeim tókst svo ekki að f.vlgja því eftir. Heimamenn léku gegn sterkum vindi i fyrri hálfleiknum og staðn- an var orðin 2—0 fyrir þá eftir 19 mínútur. Fyrra markið kom eftir að Sumarliði Guðbjartsson lék í gegnum vörn Þórs og gaf síðan á Hmm mörk Ármeim- inga ó Árskógsströnd Akureyri, 4. júlí 1976. Árskógsvöllur, 2. deild. Reynir — Ármann 0-5. Knattspyrnan sem Reynir og Ármann sýndu i leik liðanna á laugardaginn var vægast sagt ömurleg, en þó voru Ármenning- ar örlitið betur spilandi. Þetta var einn sá lélegasti leikur sem undirritaður hefur séð. Liðin gerðu lítiö annað en að kýla út i loftið og var alveg hending ef spil sást til liðanna. Leiknum lauk með sigri Ármanns sem gerði fimm mörk gegn engu lélegra Reynismanna. Fyrsta markið kom ekki fyrr en á 16. min. og var það Arnlaugur Holgason sem það gerði eftir að hann fékk bt>ltann einn og óvald- aöur inni í vitateig Reynis. Bæði liðin höfðu þá átt nokkur hættu- leg færi en einber klaufaskapur kom í veg fyrir að mörk yrðu skoruð. Sama þófið hélt áfram fram að leikhléi og var staðan o-l í hléi. Á 6. mín. siðari hálfl. átti Þráinn Ásmundsson dauðafæri en ekkert varð úr. A 7. mín. skoruðu Ármenningar sitt annað mark. Hornspyrna var tekin og kom boltinn vel fyrir markið þar sem Ingi Stefánsson kom aðvífandi og skallaði laglega i markið. Á 14. mín. juku sunnanmenri enn við forskot sitt með marki Inga Stefánssonar eftir hrikaleg varnarmistök hjá Reyni. Fjórða markið kom svo á 39. min. og var það sjálfsmark vinstri bakvarðar Revnis. Á 42. mín. kom svo siðasta markið og var Þráinn Ásmunds- son þar að verki eftir að varnar- menn Reynis höfðu bjargað á línu. Leikmenn Reynis áttu ekki skot að marki andstæðinga sinna í síðari hálfleik og voru allir í vörn. Engum er hægt að hrósa í liði Reynis og mætti ímynda sér að um bvrjendur væri að ræða. Eiríkur í markinu var óvenjulega slakur að þessu sinni. Lið Ármanns var nokkuð jafnt' en getur áreiðanlega mun meira en það hefur sýnt hér i leikjum sínum í sumar. Dómari var Arnar Einarsson og línuverðir þeir Kjartan Tómasson og Jóhann Karl Sigurðsson. Áhorfendur voru mjög fáir enda veður kalt. StA. Tryggva Gunnarsson, sem skoraði. Þá var stundarfjórðung- ur af leik. Fjórum mín. síðar gaf Tryggvi fyrir mark Þórs og Sumarliði skallaði fallega í mark — óverjandi fyrir Samúel mark- vörð Þórs. Þór tókst að minnka muninn t 2—1 á 22. mín. Magnús Jónatans- son átti fast skot að marki Selfoss af löngu færi. Örn Grétarsson markvörður varði, en hélt ekki knettinum, sem fór í markið. Eftir markið sótti Þór og fékk tækifæri, sem ekki nýttust og Örn varði mark Selfoss vel. Staðan í leikhléi var því 2—1 fyrir Selfoss. Eftir hléið komu Akureyringar tvíefldir til leiks. Á 52. min. tókst Sigurði Lárussyni að jafna og á 58. min. komst Jón Lárusson einn innfyrir vörn Selfoss. Þá var ekki aó sökum að spyrja. Knötturinn lá i markinu. Á 68. mín. skoraði Magnús Jónatansson fjórða mark Þórs með skalla. Þór var vel að þessum sigri kominn. Leikmenn liðsins voru betri aðilinn í leiknum, en það var eins og Selfyssinga vantaði neist- ann — þrátt fyrir hina góðu byrj- un. Akureyringar léku hins vegar fast og ákveðið. 1 liði þeirra voru ..gömlu'' kempurnar. Magnús Jónatansson og Gunnar Austfjörð beztir — en hjá Selfossi Sumar- liði, Guðjón Arngrímsson og Örn markvörður. —BG.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.