Dagblaðið - 20.08.1976, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 20.08.1976, Blaðsíða 1
dagblað 2. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1976 — 183. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. SÍMI 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA. ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022 ( mi Þjóðverjar eftirlitslaust að veiðum á Halanum: MOKA UPP ÞORSKIMEDAN fSLENDINGUM ER BANNAD N Manni finnst það nú anzi hart að þegar verið er að leggja til að Isléndingar skipti um veiðarfæri^ og minnki við sig þorskveiðarnar, þá geti Þjóð- verjar smyglað fram hjá yfir- völdum fleiri hundruð ef ekki þúsundum tonna af þorski. Þessi orð lét Guðmundur Halldórsson, stýrimaður á skut- v m .......................... togaranum Guðbjarti frá ísafirði, falla í samtali við DB í gær. Þeim ber skylda til samkvæmt samningum að gefa skýrslu um aflann daglega og hefur heyrzt til þeirra í fjar- skiptatækjunum, þar sem þeir gefa upp allt að 30 tonnum af karfa á sólarhring. En síðan hvenær veiðist karfi á Halamiðum þar sem þeir stunda veiðar núna? Við íslendingar erum með fjöldann allan af togurum þarna innan um og aldrei kemur karfatittur um borð í þá. Þjóðverjarnir eru þarna að moka upp þorski, en gefa upp karfa til að drýgja kvótann sem þeim er gefinn, en samkvæmt samningum er nann um 5 þúsund tonn á ári. Það ætti nú að vera lágmarkskrafa á hendur yfir- völdum að þau fylgist með að samningar séu haldnir áður en þau krefjast þess að við minnkum veiðarnar. Þessi 5 þúsund tonn af þorski sem Þjóðverjum er leyft.að veiða eiga aðná til þess magns, sem slæðist inn með ufsa og karfa á þeim miðum sem sá fiskur er veiddur á, þ.e. á Víkuráli, en að leyfa þeim að moka upp þorski á rótgrónum þorsk- miðum, það tekur nú út yfir allt, sagði Guðmundur að lokum. . Yfirsakadómari um handtöku blaðamanna DB: r VIL EKKI LATA YFIRHEYRA MIG UM ÞETTA MÁL ,,Við teljum okkur ráða hér húsum og okkar reglur eru þær, að hér megi ekki taka ljósmyndir," sagói Halldór Þorbjörnsson yfirsakadómari i viðtali við Dagblaðið i morgun. ,,Þar með er talið mötuneytið, en afstaða okkar kemur fram i bréfi, setn við rituðum lögmanni Dag- blaðsins. Annars vil ég ekkert vera að láta yfirheyra mig um þetta mál." Sagði Halldór ennfremur að hver heilvita rpaður ætti að skilja það, að ekki mætti taka ljósm.vnd af rannsóknarlögreglumanninum- Karl Sehiitz, en vildi ekki skýra nánar fyrir blm. í hverju sá skilningur ætti að vera fólginn. Þess má geta til skýringar að reglur þessar eru livergi til á blaði og er því erfitt að átta sig á hvernig fólki ber að haga sér í húsakynnum Sakadóms og enn- fremur að mötuneytið i Borgar- túni 7 er sameiginlegt mötuneyti f.vrir þær stofnanir, sem í húsinu eru, eins og t.d. Bifreiðaeftirlitið, Innkaupastofnun rikisins. Vega- gerð ríkisins, Húsameistara, Fræðslumyndasafn, Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins og Verðlagsstjóra. Dagblaðið reyndi itrekað að hafa samband við Örn Höskulds- son fulltrúa en fékk þau skilaboð k að hann talaði ekki við blaða- menn. ,,Ég vil ekkert ræða um þetta mál núna," sagði Halldór Sigurðsson, rannsóknarlögreglu- maður, er Dagblaðið spurði hann í hv'aða rétti hann teldi sig hafa verið, er hann hélt blaðamanni Dagblaðins i einangrun í eina klukkustund í fyrradag. ,,Ég skal ræð.a þetta við þig síðar, en alls ekkí núna. af sérstökum ástieðuin"' ..Stjórn Blaðamannafélags Is- lands mun koma saman i dag og ræða þetta mál," sagði Bragi Guð- mundsson, varaformaður félags- ins, i viðtali við Dagblaðið í morg- un. ,,Við munum síöan senda frá okkur yfirlýsingu til viðkomandi aðila. Sem ljósmyndari myndi ég aldrei hafa látið taka af mér filmu, sent ég væri með í vélinni, neina þá eftir rriikil slagsntál," sagði Bragi ennfremur. —HP. Hvítir móvar á öskuhaugunum Ilún er ekki beint hrifin af laginu Ilvítir mávar , hiin Erna Gunnarsdóttir, 21 árs menntaskólanemi. Hún hefur þann starfa í sumar að aka unt ösku haugana í Gufunesi og slétta úr úrgangshaugunum sem þar inyndast. Mávurinn sækir mjög í haugana eins og þessi ljósmynd sýnir reyndar ljóslega. Lái Ernu hver sem vill þótt þetta vinsæla óskalag úr sjúklingaþættinum fari kannski ofboðlítið í taugarnar á henni. — sjá nánar á bls 4. V Án útskýringa af hálfu rannsóknarlögreglunnar hafa blaðamenn ekki fengið að koma nærri þýzka rannsóknarlögreglumanninum Karl Schiitz. Svo harðsótt hefur málið verið, að tveir biaðamenn DB hafa verið handteknir, eins og fram hefur komið i fréttum blaða í gær og í dag. Dagblaðið fékk myndina af Schiitz sintsenda i gærkvöld frá Hamborg. (Ljósmynd SPIEGEL). FJOLDIMANNS LIGGUR UNDIR GRUN í ÁVÍSANAMÁLINU — beðið frumkvœðis Sakadóms — Baksíða

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.