Dagblaðið - 21.08.1976, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 21.08.1976, Blaðsíða 1
2. AKG. LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1976 — 184. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMIJLA' 12, SÍMI 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA. ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022 --------------------------------------v Þióðverjarnir í þorskinum okkar: GETA HAGRÆTT AFLATÖiUM AD BGIN VILD I BAKSÍÐA | - Ályktun B.Í.: „Alvarleg skerðing á starfsfrelsi blaðamanna" Á fundi stjórnar Blaöamannafélags Íslands, sem haldinn var i gær, var samþykkl svohljóðandi ályktun: „Stjórn B.í. hefur á fundi sínum 20. ágúst fjallað um það, er blaðamaður og ljósmyndari Dagblaðsins voru hindraðir í starfi í húsakynnum nokkurra ríkis- stofnana að Borgartúni 7 18. ágúst 1976. Telur stjórnin að aðför nokkurra starfsmanna Sakadóms Reykjavíkur að blaðamönnum, kyrrsetning þeirra og upptaka á filmum ljósmyndarans sé alvarleg skerðing á ferða- og starfs- frelsi blaðamanna. Skorar stjórn B.í. á Sakadóm Reykjavíkur að gefa nú þegar skýringu á gerðum starfsmanna sinna og skila strax filmu ljósmyndarans. Stjórn Blaðamannafélags íslands lýsir fullum stuðningi við blaðamenn Dagblaðsins í þessu máli..“ Beðið eftir sólskini Það er ekki laust við að stór hluti landsmanna sé farinn að bíða eftir sólskini. Enn er sumar samkvæmt dagataiinu og ekki öll nótt úti enn að við fáum að skreppa í sólbað. Ljósmyndarinn sá einn önnum kafinn viðskiptajöfur i gær leita sér færist til að skjótast yfir götu í miðborg Reykjavíkur. Pétur Einarsson heitir maðurinn, góðkunnur borgari í Reykjavík og er hér vel varinn af því þarfaþingi, regnhlíf. (DB-mynd Arni Páll). Fiórmálaraðherrq um breytingar á skattlagningu: fbúðaeigendur þurfa ekki að óttast „stórvœgilegar" breytingar ,,Þær hugmyndir að bréytingum skattalegrar meðferðar, fyrningar og söluhagnaðar á eignum, sem verið hafa til athugunar að undanförnu, hafa fyrst og fremst beinzt að eignum, sem notaðar eru í atvinnurekstrar- skyni. Það leiðir af sjálfu sér, að jafnframt verða tekin til at- hugunar ákvæði um skattalega meðferð söluhagnaðar eigna til einkanota, en ég vænti ekki stórvægilegra breytinga þar.“ Þannig svaraði Matthías Á. Mathiesen fjármálaráðherra spurningu Dagblaðins um, hvort íbúðaeigendur þyrftu nú að óttast aukna skattlagningu á söluhagnað íbúða, eftir ummæli ráðherrans í sjónvarpi fyrir skömmu. Ráðherrann svaraði skriflega með framangreindum haétti, sem ætti nokkuð að róa íbúðaeigendur, þar sem ráðherra kveðst ekki vænta „stórvægilegra" breytinga. 1 viðtali við blaðið nefndi ráðherrann skip sem dæmi um eignir, þar sem hugmyndir um breytingar á skattlagningu söluhagnaoar og meðferðar á f.vrningu væru í athugun. Hann sagði. að íbúðasala hefði jafnan notið forréttinda við skattlagninpu hér og yrði svo áfram. -HH. Viljum ekki vera neinir beininga- menn — segja skákmenn og vilja ekki taka boði ísraels um fjárstuðning — bls. 7 Topparnir í ríkiskerfinu: Gjalda keisaranum það sem keisarans er — bls. 7 íslenzk gestrisni, sem kostaði eigi allfáar milljónir — sjd bls. 5 um hinar stórbrotnu móttökur, sem flugmálastjórar fengu hjá starfsbróður

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.