Dagblaðið - 24.08.1976, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 24.08.1976, Blaðsíða 1
2. ARG. — ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1976 — 186. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2. SÍMI 27022 UMBODSDÓMARISKIPADUR (ÁVfSANAMÁLINU (DAG Sérstakur umboösdómari verður skipaður til að rannsaka og fara með keðjuávísanamálið. Yfirsakadómarinn í Reykjavík, Halldór Þorbjörns- son, hefur óskað eftir því við dómsmálaráðuneytið, að það skipi sérstakan umboðsdómara í þessu máli. Hefur ráðuneytið orðið við þessum tilmælum, þar sem sakadómaraembættið getur ekki með það farið með nauðsynlegum hraða vegna mikilla anna þess. Er því með skipun sérstaks dómara stefnt að því, að rann- sókn þessa máls og allri meðferð verði hraðað svo sem kostur er. Kemur þá meðal annars til kasta hins skipaða umboðsdómara að taka ákvörðun um nafnbirt- ingu þeirra, sem málið tekur til. Dómsmálaráðherra, Ólafur Jóhannesson, hefur látið uppi þá skoðun sína, að hann telji nafnbirtingu nánast óhjákvæmilega. Með henni sé aðeins skýrt frá staðreyndum, sem þegar liggja fyrir eftir rannsókn Seðlabankans, hvað sem líði mati dómstóla á sök og viðurlögum. bS ' ” -------------------------------------- Skipakaupin: SEÐLABANKINN TÍNIR SAMAN BROTIN — baksiða .— ■ ............................- Guðmundur Þórðarson róðinn um- boðsdómari vegna óvísana- mólsins „Ávísanamálið er nú komið í hendur Guðmundar Þórðar- sonar fulltrúa skattrannsókna- stjóra og hann mun hafa að- stöðu til þess að helga sig því,“ sagði Ólafur Walter Stefánsson skrifstofustjóri i dómsmála- ráðuneytinu í viðtali við Dag- blaðið i morgun. „Hann mun sjálfur ákveða hvort nöfn þeirra, er rannsókn ávisanamálsins beinist að, verða birt almenningi." Sagðist Ólafur halda að málið væri umfangsmikið en ekki vildi hann tjá sig um það hvort hver einstök viðskipti þeirra, er rannsóknin beinist að, myndu verða skoðuð. Ekki tókst að ná tali af Guðmundi í morgun en opin- berrar tilkynningar um málið er að vænta frá ráðuneytinu í dag. — HP. Þeir voru fljótir að bjarga við málunum, starfsmenn Reykjavíkurborgar, þegar bent var á það í blöðunum að efni vantaði á starfsvöll í efra Breiðholti. Enda þótt sumarið sé á enda, sumar sem aldrei kom til okkar að gagni, þá var hafizt handa þar efra, og hér stekkur strákur einn yfir skurð og skundar í átt að spýtunum, sem eiga eftir að verða hús á vellinum. (DB-mynd Árni Páli). Sjó bls. 4 Ólœti ó Upptökuheimilinu í Kópavogi Kópavogslögreglan var kvödd að Upptökuheimilinu i Kópavogi í gær. Höfðu þar brolizl út einhver ólæti en eins og kunnugt er tóku nokkur ungmenni af heimil- inu bíl stofnunarinnar. Var ákveðið að ferðafrelsi ungmennanna, sem þarna áttu hlut að máli, yrði tak- markað. Virðist svo sem það hafi ekki fallið í góðan jarð- veg og brauzt út einhver óró- leiki á upptökuheimilinu. Lögreglan stiliti þarna til friðar. _ BA Þarf Júlíana ■ Hollands- drottning að afsala sér krúnunni? — Erlendar fréttir ó bls. 6-7 • Konur 80% kennara í barnaskólum borgarinnar — Sjó kjallaragrein Kóra Arnórssonar bls. 11 „Hótel Saga" og „Seðla- bankinn" taka ó sig mynd , við Krðflu - bb. 14-15

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.