Dagblaðið - 25.08.1976, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 25.08.1976, Blaðsíða 1
2. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1976 — 187. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022 Guðmundarmálið endurskoðað? | ðm segir ekkert ] ,,Ég veit það ekki,“ svaraði Örn Höskuldsson, fulltrúi hjá Sakadómi Reykjavíkur, spurning DB um hvort mikið væri enn órannsakað í sambandi við morð Guðmundar Einarssonar í janúar 1974. I samtali við Dagblaðið 22. júní sl. lét Örn svo ummælt, að rannsóknin væri á lokastigi og málið yrði sent til saksóknara innan skamms, þótt hann vildi þá engu spá um hvenær það yrði. í samtali við Alþýðublaðið í gær sagði Örn að fullyrðingar um að ákæra á hendur morðingjum Guðmundar yrði gefin út á næstu vikum ættu ekki við rök að styðjast. Örn vildi í gær engu svara um í hverju þetta mögulega misræmi lægi. Rétt er þó að vekja athygli á því, að enn hefur lík Guðmundar Einars- sonar ekki fundizt þrátt fyrir ítrekaða leit. Fréttamaður DB spurði Orn ennfremur hvort frásögn saka- dóms af játningu Erlu Bolla- dóttur á morði Geirfinns Einarsssonar væri enn í fullu gildi. „Ég segi ekkert um það,“ svaraði Örn Höskuldsson. — ÓV MIKIL GRASSPRETTA EN LITILL ÞURRKUR Þessi m.vnd var tekin nágrenni Siglufjarðar af he.vskap þar. Gamla aðferðin í góðu gildi, og þar er ekki þurrkleysi fyrir að fara (DB-mynd Bjarni Arnason). Boranirnar við Kröflu: Óvissa með holu nr. 6 — hún yrði fyrsta nýtanlega holan til þessa „Holan gaus í nokkra tíma núna urn helgina er. hún var ekki orðin nógu heit til að gosið héldist," sagði Valgarður Stefáns- son, er hann kom norðan frá Kröflu i morgun. Valgarður sagði að það tæki um rnánuð frá því borun væri lokið að segja til um ástand holunnar. Hann sagði að æðar holunnar ættu eftir að hitna, en holan var kæld eftir að borun lauk. Hún hefur ekki náð að hitna nægiiega ennþá. Sagði Valgarður að það tæki 2 vikur til eitt ár fyrir holur að hitna. Slíkt væri afar mismun- andi. Er hann var spurður að því hvort virkjun væri framkvæman- leg í febrúar vildi hann ekkert segja um það. Isleifur Jónsson, sem hefur yfirumsjón með borununum, tók í svipaðan streng og vildi ekki úti- loka að unnt yrði að nýta holu sex, sem þá yrði fyrsta nýtanlega holan við Kröflu. Sagði hann hana ekki fullreynda og ekki væri búið að beita aðferðum við hana, sem gefið hefðu góða raun annars staðar, svo sem að sprengja hana út. Það væri þó matsatriði hvort farið yrði út í það við hana. Hann sagði holuna ekki nýtanlega nú og ljóst væri að ef hún yrði nýtan- leg, yrði hún ekki stórvirk hola. Seinlega gengur að bora holu 7 þar sem mikill tími fer í að þétta hana. —BA/GS Valsmenn höfðu það af — íslandsmeistarar í knattspyrnu — iþróttir Thule í tðnkum til Reykja- víkur? — baksíða Zulumenn vopnaðir spjótum halda uppi reglu í Soweto — Sjó erl. fréttir bls. 6-7 Grasspretta hefur verið gifurlega mikil á öllu landinu í sumar," sagði Agnar Guðnason búnaðarráðunautur. „Og ef tíðin hefði verið bændum hliðholl hér sunnan- og vestanlands hefði orðið met; heyskapur í sumar. Það er mjög misjafnt hvernig ástandið er hjá bændum hér á Suðvestur- landinu, einstaka bændur hafa náð inn miklum og góðum heyjum. Þetta fer mikið eftir tækninni hjá þeim," sagði Agnar; „1 þessari viku mun vera í ráði að taka heysýni til að kanna fóðurgildi heyjanna. Er það Búnaðarfélagið og Rann- sóknastofnun landbúnaðarins sem standa að því.“ -KL. Framkvœmdastjóri Nóttúruverndarróðs um varnargarðinn í Mývatnssveit: LÝTI EN ER NAUÐSYN Þessi garður er eins og margt annað, sem Náttúruverndarráð verður að sætta sig við eftir að hafa yfirvegað nauðsynina, sagði Árni Reynisson, fram- kvæmdastjóri Náttúruverndar- ráðs, i viðtali við DB í gær er hann var spurður um álit ráðsins á hinum nýja varnar- garði, sem nú er verið að byrja á í Mývatnssveit. Árni sagði að vafalaust yrðu lýti að garðinum, en ráðið hefði fallizt á gerð hans fyrir sitt leyti, enda væri í þessu tilviki sem öðrum reynt að leiðbeina um hvernig mannvirkið færi sem bezt í náttúrunni. Sagði hann að fullt samráð hefði verið haft við ráðið og ætti ráðið mann í samstarfs- nefnd um vegamái, sem hann- aði garðinn. — G.S. 3m Litlu strókarnir farnir að grafa skurði ■ — sjó kjallarogrein Ernu V. Ingólfsdótlur bls. 11

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.