Dagblaðið - 28.08.1976, Blaðsíða 1
2. ÁRG. — LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1976 — 190.TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÓLA 12, SÍMI 83322. AUGLVSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SlMI K27022
Morðinginn fór út aðaldyramegin
— út í umferðarþunga Miklubrautar ( - sjá bqksau ]
Við leitina á Miklatúni í gær. Meðal þeirra sem þar voru var hinn frægi rannsóknarlögreglumaður Karl Schiitz. Einn lögreglumannanna heldur á fötunum sem fundust í kjarri
á túninu (DB-mynd Sveinn Þormóðsson).
*■ jg
FJÖGUR MORÐ ÞAÐ SEM AF ER ÁRINU
Morðið á Lovísu Kristjáns-
dóttur er fjórða morðið sem
framið er hérlendis frá ára-
mótum. Öll fyrri morð hafa
verið framan í hreinu og beinu
tilgangsleysi og svo virðist
einnig um þetta.
10. janúar í vetur var Baldur
Jónsson úrsmiður myrtur í
kjallaraherbergi á IJáteigsvegi
í Reykjavík. Morðinginn fannst
en reyndist ekki sakhæfur
vegna andlegs ástands síns.
4. apríl var Guðbjörn
Tryggvason skotinn til bana á
götu á Akureyri. Morðinginn
reyndist átján ára piltur sem
„langaði að drepa einhvern,“ að
eigin sögn. Hann er nú í geð-
rannsókn og gæzluvarðhaldi.
6. júní myrtu tveir átján ára
piltar Guðjón Atla Arnason í
sandgryfju við Fífuhvammsveg
í Kópavogi. Ástæðan var engin,
en eftir að þeir höfðu barið
hann í höfuðið með tómum flös-
um þótti þeim réttara að ganga
alveg frá honum. Þeir sæta nú
geðrannsókn og sitja í gæzlu-
varðhaldi.
26. ágúst finnst Lovísa Krist-
jánsdóttir myrt á grimmdarleg-
an hátt í íbúð við Miklubraut í
Reykjavík. Morðinginn var
ófundinn um kvöldmat í gær.ÓV
fjárféstingarbankans: Norsk-íslenzka umsóknin kemur vel til greina
— lánum aðeins stórlán
Lánsumsókn tslenzka Járn-
blendifélagsins og norska fyrir-
tækisins Elkem Spigerverket til
Norræna fjárfestingarbankans
vegna málmblendiverksmiðj-
unnar á Grundartanga, virðist
koma vel heim við þau verkefni
sem bankanum voru ætluð er
hann'var stofnaður í vor, eftir
því sem bankastjórinn, Bert
Lindström,ságði á blaðamanna-
fundi í Reykjavík í gær.
Lindström virtist líta mjög
jákvæðum augum á þessa um-
I til langs tima
sókn, en tók fram að það væri
bankastjórnarinnar að ákveða
nánar þar um.
Er DB spurði hann hvort
bankinn myndi hugsanlega
lána allt að helmingi fram-
kvæmdakostnaðar í heild, sagði
hann að slíkt væri óráðið, al-
gengt væri að fjárfestingar-
bankar lánuðu allt að helmingi
og norræni fjárfestingarbank-
inn lánaði ekki nema stórlán og
væri honum ekki ætlað að
standa í samkeppni við al-
menna viðskiptabanka.
Komi til lánveitingar er af-
greiðslutími óviss, en víst er að
lánið yrði til langs tíma. Eins og
kunnugt er, telja umsækjendur
lánsins afgreiðslu þess eina
mikilvægustu forsenduna fyrir
fyrirtækinu.
Tilgangur bankans er að
veita lán og ábyrgðir til sam-
norrænna fjárfestingarverk-
efna og til þess að efla sam-
eiginlega útflutningshagsmuni
Norðurlandaþjóða. Til þess að
lánsumsókn komi til greina
þarf hún að varða hagsmuni
a.m.k. tveggja norrænna þjóða.
Stofnfé bankans, miðað við
núverandi gildi ísl. krónunnar,
er um 80 milljarðir, en þar af
leggur ísland fram eitt prósent.
Jón Sigurðsson, þjóðhagsstjóri
og Þórhallur Ásgeirsson ráðu-
neytisstjóri, sitja í stjórn bank-
ans fyrir íslands hönd.
— G.S.
Bert Lindström, bankastjóri:
tilgangur bankans m.a. að lána
til orkufreks iðnaðar. (DB-
myndÁrniPáll.)
i
Dœmi úr fjármálasögu íslands:
Hœstaréttarlögmaður kœrður fyrir þjófnað og ávísanamisferli
— grein Halldórs Halldórssonar birtist i Dagblaðinu á mánudaginn