Dagblaðið - 28.08.1976, Blaðsíða 4
4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. ÁGUST 1976.
Erlend myndsjá
llllllllllllllllll!lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll!!lllllllllllllllllllllllllllll!llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
FRAKKLAND: Nýr forsætisráðherra var skipaður þar í vikunni,
Ravmond Barre. Hann tók við embætti af Jacques Chirac sem Giscard
("Ustaing forseta þótti sælast um of í völd sín.
VESTUR-ÞÝSKALAND: Fátt
hefur vakið meiri athygli þar
undanfarið en hið svokaliaða
særingamál. Ung stúlka, Anne-
iiese Michel.lézt 1. júlí í sumar
eftir að hafa barizt fyrir lífi sínu í
tvo mánuði rúrna. Hún var talin
vera haldin illum öndum og var
kaþólskur prestur fenginn tii að
gera tilraun til að reka þá út úr
líkama hennar. Allan þann tima,
sem særingarnar stóðu yfir, neit-
aði Anneiiese að neyta matar og
var dánarorsök hennar því
næringarskortur. Móðir hennar
segir að verst af öllu sé að enn
trúi því cnginn að djöfullinn sé
til. Litla myndin er af Anneliese,
sú stærri af prestinum, föður
Arnold Renz.
SUÐUR-AFRÍKA: Miklar og blóðugar óelðir urðu i Soweto, útborg
Jóhannesarborgar. Biökkumenn þar fóru i þriggja daga allsherjar-
verkfall. Zúlumenn í borgarhverfinu voru óánægðir með verkfallið og
tóku að sér „eftirlitsstörf“. Þau reyndust fólgin í berserksgangi,
morðum, ránum og nauðgunum. Myndin sýnir lögregluna ávarpa
Zúlumennina og hvetja þá til að sýna stillingu.
EGYPTALAND: Fjöldafundir voru haidnir víða um iand til að fagna
skipun Sadats forseta í embætti til sex ára í annað sinn. Myndin er frá
fjöldafundi fyrir framan forsetahöllina í Kairó. Fyrra kjörtímabil
Sadats rennur út 15. október næstkomandi.
KÓREA: Bandaríska flugvélamóðurskipið Midway er nú á austanverðu
Kfnahafi í „öryggisskyni“ eftir að spenna jókst mjög í Kóreu. Ástæðan
er morðin á tveimur Bandaríkjamönnum á hlutlausa beltinu við
Panmunjom. Rúm tuttugu ár eru liðin síðan Kóreustyrjöldinni lauk —
en aidrei hefur verið samið um frið, aðeins vopnahlé.
JAPAN: Félagar Frjálslynda lýðræðisflokksins í Japan rétta upp hendur á fundi sl. þriðjudag til merkis
um stuðning þeirra við „tafarlausa endurnýjun flokksins" en tillaga þess efnis felur í sér óbeina kröfu
um að Takeo Miki forsætisráðherra víki úr embætti. Flokksmönnum sumum þykir hann ekki hafa staðið
sig nógu vel í Lockheed-málinu — einkum þó þeim sem grunaðir eru um aðild að því.