Dagblaðið - 03.09.1976, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 03.09.1976, Blaðsíða 13
slands, u þeir íslenzku landsliðsmennina, nhver erfiðasta raun, hefur tekizt ó hendur Tony Knapp Við verðum því að gera okkur grein fyrir að leikirnir verða erfiðir en eins og ég sagði áðan, verði gæfan með liði okkar eigum við möguleika á óvæntum úrslitum. Allt um það — hvað sem gerist í landsleikjunum þá mun ég alltaf meta strákana mikils. Það hefur verið stórkostlegt að vinna með þeim. Nú er því komið að hátindi ferils míns sem þjálfara hingað til. Undan- farið hef ég verið veikur ... en þó þeir þyrftu að bera mig á börum myndi ég ekki sleppa leikjunum. Ekkert fær aftrað mér. Ég hefði getað farið til Rosenborg og fengið 3000 pundum meira i laun, en mér fannst ég verða að koma hingað aftur því eins og ég sagði er stórkostlegt að vinna með strákunum. Þeir eiga sigur skilið... og verði gæfan okkur hliðholl munum við sigra. Getan í liðinu er vissulega fyrir hendi.“ ■inn (ieirsson með soninn og þeir on á Keflavikuri'lugvelli. I)B-niMid — ÍBV tapaði sínum fyrsta leik í 2. deild ÍBV tapaði sínum fyrsta leik í 2. .deild í sumar er liðið mætti Haukum í síðasta leik liðanna í gærkvöld í Eyjum, já tap í Eyjum 1-2. En úrslitin hafa engin áhrif á stöðu Eyjamanna í deildinni — þeir eru þrátt fyrir það hinir öruggu sigurvegarar í 2. deild. IBV hlaut samtals 26 stig í 16 leikjum sínum í sumar og leikur í 1. deild að ári — 1. deildinni, sem ýmsum fannst ÍBV aldrei hefði átt að yfirgefa. Haukar mættu ákveðnir til leiks í gærkvöld og voru betri aðilinn í fyrri hálfleik enda fór svo að Haukar skoruðu eina mark hálfleiksins þegar Sigurður Aðal- steinsson skoraði eftir að hafa fengið góða sendingu utan af kanti. Mark Hauka kom á 23. mínútu og þrátt fyrir ýmis góð tækifæri IBV tókst þeim ekki að koma knettinum í netið. ÍBV tókst að jafna á 23. mínútu síðari hálfleiks og var þá Sigurlás Þorleifsson að verki úr þröngri aðstöðu eftir þunga sókn ÍBV að marki Haukanna. En Haukar voru ekki að baki dottnir — skömmu siðar skoruðu Haukar sigurmarkið þegar Sig- urður Aðalsteinsson komst einn inn fyrir vörn ÍBV og skoraði örugglega. Eftir þetta óvænta áfall sóttu Vestmannaeyingar látlaust það sem eftir var leiksins og sköpuðu sér góð tækifæri en ekki tókst að koma knettinum í netið. Því var sigur Hauka staðreynd — sigur, sem vissulega er nokkur uppreisn fyrir liðið eftir slaka frammistöðu í sumar. Að loknum leiknum afhenti Ellert B. Schram leikmönnum ÍBV verðlaun og bikar 2. deildar fyrir sigurinn í deildinni. Þjálfara liðsins var afhent falleg stytta frá Vestmannaeyjabæ. -RS. KAJAKAR ÚR GLASS FIBRE Eins manns. Lengd 4,5 m. Breidd 60 cm. Þyngd 13 kg. Verð kr. 51.590.- Tveggja manna. Lengd 5 m. Breidd 72 cm. Þyngd 26 kg. Verð kr. 69.000.- Póstsendum ___________ Fyrsta bankaútibiíió í GARÐABÆ veróur opnaó 3. sept 1976 ÖLLINNLEND BANKAVIÐSKIPTI AFGREIÐSLUTÍMI KL.13-18.30 / % —■ f IBbNAÐARBANKI ÍSLANDS ÚTIBÚ GARÐABÆ SÍMI53944

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.