Dagblaðið - 25.04.1977, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 25.04.1977, Blaðsíða 1
X AR(í. — MÁNUDAGUR 25. APRÍL 1977 — 92. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. SÍMI 83322. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI2, SÍMI 27022. Mesti fjöltefl- iskóngur ailra tíma Tékkneski stórmeistarinn Vlastimil Hort setti þrjú heims- met í skák í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi um helgina. Frá kl. 9.25 á laugardags- morgun til kl. 9.45 á sunnudags- morgun, eöa í 24 tíma og 20 mínútur, tefldi stórmeistarinn við 550 manns — lék samtals um fimmtán þúsund leiki. Þaó er heimsmet. Fyrra metiö átti sænski stór- meistarinn Gideon Stáhlberg, sem tefldi viö 400 manns í Buenos Aires 1940. Þaó fjöltefli tók 36 klukkustundir. Hver skák í fjöltefli Horts tók að meðaltali 2 mínútur og 14 sekúndur. Það er heimsmet í svo fjölmennu tafli. í fyrstu lotu fjölteflisins tefldi Vlastimil Hort við 201 mann. Það er heimsmet, því enginn hefur áður hafið fjöl- tefli við fleiri en 179 menn. Fjórða heimsmetið var einnig sett — og ólíklegt að því meti verði hnekkt, 0,25% ís- lenzku þjóðarinnar tefldi í þessu fjöltefli Horts. Slíkt hlut- fall í þátttöku heillar þjóðar í einu fjöltefli er ævintýralegt. Sé miðað við höfuðborgar- svæðið, þaðan sem flestir þátt- takenda voru, kemur ú'. hlutfall sem er stórkostlegt. Lætur nærri að það samsvari milljón manna fjöltefli í Bandaríkjun- um, svo dænti sé tekið til samanburöar. Arangur Horts í þessu fjöl- tefli var góður, eða 92% unnar skákir, en þó tókst honum ekki að hnekkja heimsmeti Stáhl- bergs, sem vann 95% af sínum skákum fyrir 37 árum. Það var Skáksamband Islands og Dagblaðið sem höfðu veg og vanda af fjölteflinu. Stálminni og andlegt sem lík- amlegt atgervi meistarans fór ekki fram hjá neinum. Strax í skákinni gegn fyrsta hópnum sá hann peð á borði hjá ungum skákmanni. ,,Það er ekki á rétt- um stað,“ sagði meistarinn. Og mikið rétt — minni hans varð ekki vefengt. Honum var vel fagnað með húrrahrópum eftir sigurinn mikla á sunnudags- morgun og ntá með sanni kall- ast mesti fjöltefliskóngur allra tíma. -BS Hann lifi! Húrra! Húrra! Húrra! Húrra! Þannig var Hort fagnað eftir sigurinn í Valhúsaskóla í gærmorgun. Það er Einar S. Einarsson, forseti Skáksambands fslands, sem útnefnir stórmeistarann og stjórnar húrrahrópunum. DB-mynd Bjarnleifur. „ÞETTA GERIÉG ALDREIAFTUR” —sagði Hort sæll og ánægður íviðtali við DB „Þetta geri ég aldrei aftur," sagði tékkneski stórmeistarinn Vlastimil Hort í viðtali við Dag- blaðið í morgun. „Ég var viss um að ég gæti þetta. Ég er líkamlega mjög hraustur. Hins vegar var óvissan um árangur og vinningshlutfall alger. Mér var ljóst, að í því tilliti eru gerðar miklar kröfur. Ég var beinlínis skyldugur til að sýna að ég væri mjög góður. Það er krafa, sem hvílir án afláts á okkur, sem leggjum skákina fyrir okkur," sagði Hort. „Ég er ennþá mjög þreyttur og bókstaflega lurkum laminn. Eg er haltur á báðum fótum og get ekki ennþá hreyft mig eðli- lega. Annars eru það engin vandamál, sem ekki leysast. Ég er þreyttur en sæll og ánægð- ur,“ sagði stórmeistarinn. Hort sofnaói fljótlega eftir að hinu einstæða fjöltefli lauk. Hann svaf draumlausum svefnii til kl. 6 i gærkvöldi og sofnaði svo aftur um miðnættið og svaf til morguns í morgun. „Dr. Alster hefði líklega viljað sjá afrek þitt,“ sagði fréttamaður DB. „Ég býst við því,“ svaraði Hort, „en mér er nóg, að ísland varð vitni að þessu f jöltefli." BS Fréttir og frásagnir af f jöltefli aldarinnar á bls. 5,8,9 og 21

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.