Dagblaðið - 02.06.1977, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 02.06.1977, Blaðsíða 1
3. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1977 — 119.TBL. 'ÍUTSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, AUGLÝSINGAR ÞVERHOLTI 11T AFGREIÐSLA ÞVERHOLTL2 — IAÐALSÍMI 27022 Allsherjarverkfall íStór-Reykjavík á morgun: Margir vikukaupsmenn verða illa blankir Vikukaupsmenn renna vonaraugum til atvinnurek- enda sinna um að þeir fái út- borgað í dag, því að annars frestast það til mánudags vegna allsherjarverkfallsins á morgun. Þetta verður komið undir góðvild atvinnurekenda á hverjum stað. Útlit var í morgun fyrir að skemmtistöð- um yrði lokað annað kvöld. Hljómlistarmenn og starfs- fólk í veitingahúsum fara í verkfall. Þjónar hafa hins vegar samið en í viðtali við DB sagði talsmaður hljómlistar- manna að vínveitingar væri bundnar við að matur væri framreiddur svo að ekki væri hægt að hafa opið ef kokkurinn væri í verkfalli. Símastúlkur leigubílstöðv- anna fara í verkfall en fólk getur náð sambandi við leigu- bíla meö því að hringja á staur- ana og sums staðar er hefð að leig'ubílstjórar svari sjálfir. Strætisvagnar ganga sam- kvæmt iaugardagsáætlun. Bú.ast má við mjólkurleysi, þótt örfáar búðir verði opnar þar sem fjölskyldur eigenda vinna. Vörubílstjórafélögin fara í verkfall en sendibíiar ganga. Síðdegisblöðin koma ekki út á morgun og morgunblöðin ekki um helgina nema Mogginn á sunnudag. Innanlandsflug leggst niður en millilandaflug —ogskemmti- staðirverða líklega lokaðir verður í gangi en stöðvast á' mánudag þegar verkfall verður á Keflavíkurflugvelli. Allsherjarverkfallið á Stór- Reykjavikursvæðinu nær til flestallra félaganna. Þó eru utan við það sjómannafélagið, Sókn og grafíska sveinafélagið auk þeirra, sem að framan eru nefnd. HH Menn tapa milljóna- tugum á nauðungar- uppboði Suðra „Jú, menn tapa milljónum á þessu, milljónatugum," sagði Magnús Ármann á skipamiðlunarskrifstofu Gunnars Guðjónssonar um nauðungaruppboðið á flutningaskipinu Suðra i Rotterdam i gær. Hæsta tilboð í skipið á uppboðinu var liðlega 2.6 milljór. gyllini, eða alveg um 200 milljón krónur. Er fjár- hagslegt tap augljóslega nokkuð mikið, því í frjálsri sölu hefði verið hægt að fá 260—270 milljón krónur fyrir Suðra, að sögn Magnúsar. Hann sagði að verið væri að safna saman ógreiddum skuldum útgerðarinnar, sjóveðsskuldir hefðu allar verið settar ,,í púkkið" í Rotterdam. Magnús Ármann kvaðst ekki hafa fengið staðfest- ingu þess að Suðri verði i framtíðinni gerður út frá eða skráður í Panama, hann hefði þó heyrt það frá lög- fræðingunum ytra. mEBIABIB Næsta blað kemur útá mánu- daginn Bobby fer gegnum tollinn á Keflavfkurflugvelli. Tollvörðurinn hefur heidur betur komið við sogu knattspyrnunnar her, Sigurður Albertsson. Ekkert fannst í farangrinum, ailavega ekki mikið af mörkum. Enska knattspyrnu pundiðféll íverði — Hvað ertu með, Bobby? Eitthvað tollskylt? mætti ætla að Sigurður Albertsson, fyrr- um leikmaður með Keflavík og nú starfsmaður í tollinum suður á Keflavikurflugvelli, væri að spyrja Bobby Charlton, þann fræga kappa. Það fór vel á með þeim köppum og Bobby Charlton óg félagar hans léku í gærkvöld á Laugardalsvellin- um við úrvalslið KSÍ. Þá féll enska knattspyrnu- pundið i verði. lslenzku áhuga- mennirnir sigruðu örugglega 5- 2 í stórskemmtilegum leik. Ingi Björn Albertsson skoraði J)rjú mörk, Olafur Danivalsson og Guðmundur Þorbjörnsson eitt mark hvor. Bóbby Charlton sýndi gamla snilldartakta og skoraði mark — en það dugði lítt gegn vel leikandi íslenzku liði. Sjá nánar um leikinn á íþróttaopnu. Svipmynd úr leiknum í gær- kvöld. Æsispennandi sóknar- lota að enska markinu. —DB- myndir Bjarnleifur.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.