Dagblaðið - 19.12.1977, Blaðsíða 44
12 lesta rækjubát-
ur fórst í mynni
Steingrímsfjarðar
-og
með
honum
tveir
menn
Tveir menn fórust með
rækjubátnum Pólstjörnunni ST
33 á laugardagskvöld. Báturinn
var á rækjuveiðum í mynni
Steingrimsfjarðar og heyrðist
síðast í honum kl. 16.30 á
laugardag. Þá ráðgerðu menn-
irnir að draga lokatogið og
koma siðan í land. Þegar
báturinn kom ekki í land á
fyrirhuguðum tíma var farið að
grennslast fyrir um hann og
síðan var skipulögð leit, sem
stóð fram eftir nóttu. 13 skip
tóku þátt í leitinni frá Hólma-
vík, Drangsnesi og Skaga-
strönd og einnig voru gengnar
fjörur bæði austan og vestan
Húnaflóans.
Um kl. 1.30 aðfaranótt
sunnudags fannst brak úr
bátnum um 4 mílur frá Grímsey
í mynni Steingrímsfjarðar, á
þeim slóðum sem báturinn var
síðast á veiðum. Um kl. 4 um
nóttina fannst siðan illa
uppblásinn gúmbátur og bar
hann merki þess, að hann hefði
ekki komist í mannahendur,
samkvæmt upplýsingum
Óskars Þórs Karlssonar erind-
reka Slysavarnafélagsins. Þá
hafði svæðið verið þaulleitað og
leit var þar með hætt. Ljóst
þótti að mennirnir hefðu ekki
náð því að komast í gúmbátinn
er Pólstjarnan fórst. Leit átti
síðan að hefja á nýjan leik í
birtingu ef veður leyfði.
Pólstjarnan var 12 lesta
bátur, smíðaður í Hafnarfirði
1959 úr furu og eik. Veður á
þessu svæði var ekki slæmt,
sjór tiltölulega sléttur, en gekk
á með éljum annað slagið og sló
fyrir vindbyljum. Líkur benda
til þess að trollið hafi lenr í
föstu og báturinn hafi híft sig
niður, en það hefur áður hent
rækjubáta á ísafjarðardjúpi.
Mennirnir, sem fórust hétu:
Jóhann Snæfeld Pálsson skip-
stjóri, Hamarsbæli Steingrims-
firði, 58 ára. Hann lætur eftir
sig konu og fjögur uppkomin
börn, og Loftur Ingimundar-
son, Drangsnesi, 23 ára. Hann
lætur eftir sig eiginkonu og tvö
börn.-
JH
Maður
f órst í
húsbruna
Maður fórst i bruna að Þing-
holtsstræti 27 á laugardag.
Slökkviliðið var kallað að húsinu
kl. 16.55 og var þá geysimikill
reykur í kjallara hússins götu-
megin. Tveir reykkafarar voru
þegar sendir inn í húsið og
flögraði eldur um veggi og loft og
var mikill hiti. Eldinn tókst að
slökkva á örskammri stundu.
Maðurinn, sem fannst í herbergi
inn af forstofunni, var þegar
fluttur út. Það v.ar þó þegar ljóst
að hann var látinn fyrir nokkurri
stundu, enda líklegt að eldurinn
hafi kraumað nokkra stund í
bekkjum og stólum. Reykinn
lagði frá plastefnum og fötum,
sem voru þarna innandyra.
Ekki er ljóst út frá hverju
eldurinn kviknaði, en það gæti
hafa verið út frá sigarettu eða
rafmagni. Þingholtsstræti 27
hefur staðið autt undanfarin 2-3
ár, að undanskilinni vinnustofu i
kjallara. Þá kviknaði í húsinu og
hafa gluggar verið byrgðir síðan
og húsið verið mannlaust. Hinn
látni er Hafnfirðingur, Hann var
45 ára að aldri og lætur eftir sig
konu og fimm börn. Talið er að
hann hafi leitað skjóls i húsinu.
Húsið að Þingholtsstræti 27 er
verndað og á að standa til
frambúðar. Ráðgert er að flytja
það yfir götuna á grunn sem þar
hefur verið gerður. Húsið er
fallegt en skemmt eftir tvo bruna
auk þess sem það hefur verið autt
í nokkurn tíma. Það er tvær hæðir
og ris. JH
í
Frá slökkvistarfi á laugardaginn. Glöggt má sjá brunaskemmdir á hæð og risi hússins frá því að það
brann fyrir tveimur tii þremur árum. DB-mynd Hörður.
Flugumferðarstjórar
í yfirvinnubanni:
Kemur niður á f lug-
félögum í jólaönnum
Flugumferðarstjórar hafa
verið í yfirvinnubanni síðan á
fimmtudag. DB ræddi við
Ingvar Valdimarsson, formann
félags flugumferðarstjóra, og
spurði hann um ástæður yfir-
vinnubannsins. Ingvar sagði að
forsaga málsins væri sú að á
hverju vori yrði að breyta vökt-
um flugumferðarstjóra, svo
ménn gætu fengið orlof.
Teknar voru upp þrískiptar
vaktir á sumrin og því væri lítið
um frí nema yfir orlofstímann.
Samið er um viðbótargreiðslur
við flugmálastjórn vegna þessa
og er þá samið fyrir flugum-
ferðarstjóra hvar sem er á land-
inu.
Flugumferðarstjórar í
Reykjavík og Keflavík hafa
fengið greitt eftir þessum
samningum, en ekki þeir, sem
eru á Akureyri, Egilsstöðum og
Vestmannaeyjum. í september
sl. var sett á yfirvinnubann
vegna þessa máls én því var
aflétt þegar lofað var að allir
sætu við sama borð. Það loforð
hefur ekki staðizt og er' nú
verið að biðja um leiðréttingu
mála.
„Það er óskiljanlegt að þurfa
að standa i þessu stappi við
ráðuneytið," sagði Ingvar. ,,Það
er eins og þe.ir séu aðeins að
tefja bæði sig og okkur. Ráðu-
neytið hefur þó viðurkennt
Þessar greiðslur í verki, því
flugumferðarstjórar úti á landi
hafa fengið greiddan bæði
fyrsta og síðasta mánuð samn-
ingstímabilsins eftir þessum
samningum.“
„Okkur þykir það leitt að
þetta kemur niður á flugfélög-
unum á mesta annatíma en þau
hafa ekkert til saka unnið. Yfir-
vinnubannið kemur í veg fyrir
bæði kvöld- og næturflug, þar
sem ekki er unnið eftir 19.30 á
kvöldin. En við sættum okkur
ekki við þessa mismunum, þótt
ekki sé um miklar fjárhæðir að
ræða. Það er ekkert talað við
okkur. Það hafa engir fundir
verið um helgina og á meðan
gerist ekkert.“
- JH
Guðmundar- og Geirf innsmál:
Dæmt í dag
— örugglega áf rýjað til Hæstaréttar
Dómar í Guðmundar- og Geir-
finnsmálum verða kveðnir upp
í dag í sakadómi Reykjavíkur.
Verða lögmenn sakborninga
boðaðir í dómþing. Þar verða
dómarnir síðan birtir fyrir
þeim og/eða sakborningum.
Dómunum verður áfrýjað til
Hæstaréttar, hvernig sem þeir
veróa. Sakadómur í málum
þessum er fjölskipaður, eins og
fram hefur komið. Dómsfor-
maður er Gunnlaugur Briem
sakadómari. Meðdómendur eru
sakadómararnir Ármann Krist-
insson og Haraldur Henrýsson.
- BS
UPP KOMST UM
STÓRTINNBROT
Fyrrv. kaupfélagsstjóri endurheimtir æruna
„Eg hreinlega hraktist úr
starfi vegna þessa innbrots og
hef ekki lagt út í að stunda
verzlunarstörf síðan,“ sagði
Marteinn Sigursteinsson, fyrr-
verandi kaupfélagsstjóri við
Kaupfélag Borgfirðinga á
Hellissandi. Fyrir þrem árum
var brotist inn í fyrirtækið sem
hann stýrði. Marteinn telur að
almenningsálitið hafi hrakið
sig úr starfi. I innbrotinu var
stolið 400 þúsund krónum.
Fyrir fjórum dögum játuðu
þrír heimamenn á Hellissandi,
ungir piltar, að hafa brotizt inn
í kaupfélagið og stolið pening-
unum.
„Víst er þetta góð jólagjöf að
fá uppreisn æru,“ sagði kaup-
félagsstjórinn fyrrverandi, ,,en
þetta mál hefur þó skemmt
ýmislegt fyrir mér og mínum.“
Marteinn starfar nú á Kefla
víkurflugvelli.
JBF
frfáJst, nháð dagblað
MANUDAGUR 19. DES 1977.
TÆKIÐ
FUÐRAÐI
UPP
— þegarhorfa
átti á Prúðu
leikarana í
öllum litum
Prúðu leikararnir geta tekið
upp á ýmsu — og það hélt Suður-
nesjamaðurinn sem var nýbúinn
að fá sér nýtt litasjónvarp og
hlakkaði sannarlega til að sjá þá í
litum í fyrsta sinn, en viti menn.
Myndin brenglaðist og reykur
leið upp frá tækinu. Svo magnaðir
gátu prúðu leikararnir varla verið
að þeir gætu látið rjúka beint upp
úr viðtækjunum — enda var
ekki svo. Nýja litasjónvarpstækið
var að sviðna og eyðilágðist alveg
en eigandanum var af seljendum
bættur skaðinn án möglunar.
emm.
Alþingi fer
í f rí með
hækkandi sól
Tillaga um jólahlé Alþingis
hefur nú komið frá forsætisráð-
herra. Geir Hallgrimssyni. Efnis-
lega er hún á þá leið, að Alþingi
álykti að veita samþykki til þess
að fundum þingsins verði frestað
frá 21. desember næstkomandi,
eða síðar, ef henta þykir. Enda
verði það kvatt saman á ný eigi
síðar en hinn 23. janúar 1978.
í stjórnarskránni er gert ráð
fyrir því, að forseti lýðveldisins
geti frestað fundum Alþingis til-
tekinn tíma, þó ekki lengur en
tvær vikur og ekki nema einu
sinni á ári. „Alþingi getur þó veitt
afbrigði frá þessum ákvæðum,"
segir í stjórnarskránni.
Það er í samræmi við þetta
stjórnarskrárákvæði sem for-
sætisráðherra flytur nú þings-
ályktunartillögu um frestun á
fundum Alþingis frá miðvikudeg-
inum 21. desember. Þann dag eru
vetrarsólstöður og mörsugur byrj-
ar.
- BS
Bana-
slys í
Sunda-
höfn
Banaslys varð í Sundahöfn í
morgun rétt fyrir klukkan tiu.
Þar var verið að undirbúa
uppskipun úr Bakkafossi og er
lestir voru dregnar upp með raf-
magnsspili varð maður á milli
lestarlúga og hlaut bana af sam-
stundis.
Litl^r upplýsingar var að fá um
þetta nörmulega slys nú rétt áður
en blaðið fór í prentun. Þetta er
fjórða banaslysið á þremur
dögum og árið 1977 er að verða
eitt mesta slysaár sem yfir
þjóðina hefur dunið. ASt.