Dagblaðið - 14.04.1978, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 14.04.1978, Blaðsíða 14
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1978. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1978. 19 Nú leikur þú á ný, P°Hi Gangi þér vel Strax eftir sólaruppkomu koma liðin á völlinn. Okkur þarf öllum aðgangavel, •; Bommi. [LÚCHO OLlVéBH- 7--21 SigrarVíkingur— eða setja ÍR-ingar strik í reikninginn? Þýðingarmikill leikur verður i 1. deild Islandsmðts- ins i handknattleik i kvöld i LaugardalshöU. Þá leika ÍR og Vikingur og hefst leikurinn kl. 20.00. Sigri Vík- ingar i kvöld þurfa þeir eitt stig i siðasta leik sinum á mótinu — gegn Val á miðvikudag — til að hljóta Íslandsmeistaratitilinn. Fyrri leikur liðanna á mótinu var mjög jafn lengst- um — en á lokamínútunni tókst ÍR að vinna upp tveggja marka forskot Vikings með þvi að skora tvi- vegis úr vitaköstum. Leikir þessara liða undanfarin ár hafa yfirleitt verið mjög jafnir — og ekki þarf að efa að svo verður einnig i kvöld. Strax að leiknum loknum leika Vikingur og Armann i I. deild kvenna — auka- leikur i sambandi við neðstu sætin. Hill til Derby Enski landsliðsútherjinn hjá Manch. Utd. — Gordon Hill — var í gær seldur til Derby County fyrir 275 þúsund sterlingspund. Hill er markhæsti leikmaður United á leiktimabilinu —hcfur skorað 18 mörk. Nokkur þeirra úr vitaspyrnum. i leiknum Arsenal og-Manch. Utd. á Highbury á dögunum var Hill tekinn út af og likaði það illa. Dave Sexton, fram- kvæmdastjórí United, ætlaði svo að velja hann I næsta leik — gegn QPR — en hætti við það eftir að hafa rætt við Hill. Síðan tilkynnti Sexton að Hill gæti farið frá félaginu. Stjóri Derby, Tommy Docherty, var fljótur til að draga fram tékkheftið—en varð þó að hækka upp- runalegt boð sitt I 275 þúsund sterlingspund vegna samkeppni frá Birmingham. Þegar Docherty var stjóri Manch. Utd. keypti hann Hill frá Millwall fyrir 70 þúsund pund seint á árinu 1975 — og Hill náði þar strax góðum árangri, sem varð til þcss að hann var valinn i enska landsliðið. Eftir að Hill hafði undirritað samning við Derby i gærkvöld sagði Docherty. „Að láta Gordon frá sér eru mestu mistök sem Manch. Utd. hcfur nokkru sinni gert — þegar frá er skilið að láta mig fara!” LubanskiíHM- liði Póllands Frægasti knattspyrnumaður Póllands, Wlod- zimierz Lubanski, sem leikur með belgiska liðinu Lokeren, var i gær valinn I 40-manna landsliðshóp Póllands. Hann gat ekki leikið á HM 1974 vegna meiðsla. Lubanski er nú þritugur og lék sinn 50. lands- leik gegn írum sl. miðvikudag með góðum árangri. Fækkað verður f hópnum niður i 22 i næsta mánuði. Allir kunnustu leikmenn Póllands eru I hópnum nema Henryk Wieczorek, Gornik Zabrze — og þar eru heimsfrægir knattspyrnumenn eins og markvörðurinn Jan Tomaszewski, sem næstum á eigin spýtur sló út England í forriðlinum 1974, varnarmennirnir Jerzy Gorgon og Zmuda, og framherjarnir Kazimierz Deyna, Grezegorz Lato, Andrzej Szarmach, Henryk Kasperczak svo nokkrir séu nefndir. Brassarnir léku séraðlnter! Landslið Brasiliu í knattspyrnu sigraði Inter-Mil- anó, eitt frægasta knattspyrnulið Evrópu, með 2—0 f Milanó I gærkvöld. Brasillska landsliðið sýndi snilld- artakta í leiknum og hafði italska liðið aldrei hina minnstu möguleika. Fvrírliðinn Rivelino hafði öll tök á miðjunni ásamt Cerezo og byggðu upp hverja sóknarlotuna á fætur annarri á italska markið. Langsendingar þeirra voru oft stórkostlegar. Svo miklir voru yfirburðir Brasiliu að markvörðurinn Leao þurfti varla að verja skot í leiknum. Nunes, sem skoraði sigurmark Brasiliu gegn Vestur-Þýzkalandi á dögunum, skoraði fyrra mark Brasiliu i gær eftir 25 mín. Sendi knöttinn í autt markið eftir að markvörður Inter, Brodon, hafði hálf- varið skot frá Zico. Siðara mark Brasiliu skoraði Dirceu á 48. min. með þrumufleyg af 30 metra færi. Áhorfendur á San Siro leikvanginum i Milanó voru 65 liúsund — en á þessum velli hefur ítalfa tvívegis sigrað Brasilíu 1956 og 1963. Borg efstur með 75 milljónirkr. Sænski tennisleikarinn Björn Borg, hefur unnið sér inn um 75 milljónir króna — islenzkar — það sem af er árinu 1978. Hann hefur verið meö langflesta sigra tennisleikara i ár og því með mestar tekjurnar — eða með um 100 þúsund dollurum meir en Jimmy Con- nors. Bandariska tennissambandið gaf út lista i gær um tekjuhæstu tcnnisleikarana og þeir efstu eru — talið i dollurum. Björn Borg, Sviþjóð 293.533 Jimmy Connors, USA, 201,481 Vitas, Gerulaitis, USA, 164.032 Brian Gottfried, USA, 120.769 Roscoe Tanner, USA, 93.553 __________ Sportmarkaðurinn Samtúni 12 . ^ viðlegubúnað — tjöld — svefnpoka — bakpoka — veiðivörur — golfsett — reiðvörur — hnakka — gúmmibáta — utanborðsmótor — barnahjól — fullorðins- hjól o. fl. o. fl. Athugið! Tekið á móti vörum frá kl. 1- Opið 1—7 alla daga nema sunnudaga. ATH! Við seljum næstum allt! Tökum allar sportvörur -4 alla daga. Ekkert geymslugjald. Markaður með ódýrar sportvörur fyrir þig. O Samgjam Þróttarsigur á bikarmeistunim Vals! rrá lokanöti námskeiösins Stjórnendur námskeiðsins. Ólafur Oddsson til vinstri og Jón Gunnar Grétarsson. — á Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu í gærkvöldi Strákarnir efnilegu i Þrótti gerðu sér lítið fyrír og sigruðu bikarmeistara Vals á Melavellinum í gærkvöld 2—1 i Reykjavfkurmótinu I knattspyrnu. Það var góður og sanngjarn sigur Þróttar- liðsins og gefur liðinu allgóða möguleika á sigri i mótinu. „Stórveldin” tvö að baki — KR og Valur — og Þróttur er nú i «fsta sæti á mótinu með þrjú stig ásamt Vfking og Val. Vikingur hefur þó aðeins leikið einn leik. Það var kalt og hvasst á Melavellin- um, þegar leikurinn fór fram en strákarnir í Þrótti eru vanir næðingi úr „sundunum” og lét það ekki á sig fá. Skoruðu strax á fyrstu mínútu leiksins. Valur hóf leikinn en Páll Ólafsson, unglingalandsliðsmaður Þróttar, komst Fylkisfólk á námskeiðum Nýlokið er félagsnámskeiði hjá tþróttafélaginu Fylki I Árbæ á vegum félagsmálaskóla UMFÍ og stóð nám- skeiðið frá 6. marz til 22. marz. Leið- beinendur á námskeiðinu voru Ólafur Oddsson og Jón Gunnar Grétarsson. Námskeiðið sóttu aðaliega félagsmenn íþróttafélagsins, alis 16 að tölu. Þetta er annað námskeiðið sem íþróttafélagið Fylkir stendur fyrir af þessu tagi, en það er eina iþróttafélagið í Reykjavík sem haldið hefur slíkt nám- skeið. Voru þátttakendur á einu máli um ágæti siíkrar félagsfræðslu, sem vissu- lega stuðlar að auknum félagsþroska þátttakenda. Viljum við eindregið beina því til forustumanna íþróttahreyfingarinnar að gangast fyrir slíkum námskeiðum til að stuðla að auknu félagsstarfi á höfuð- borgarsvæðinu. Dankersen 10. apríl 1978. Baráttan á toppi sem botni þýzku Bundesligunnar er nú orðin hörkuspenn- andi. Grosswallstadt náði nú hreinni forystu eftir sigur gegn Göppingen, þar sem Gummersbach náði aðeins jafntefli i Rheinhausen. Grossvallstadt á þrjá afar . erfiða útileiki eftir þ.e. i Nettelstedt, Dankersen og Hiittenberg. Gummers- bach á öllu léttara prógramm fyrir hönd- um. Þö gæti siðasti leikdagur ráðið úrsiitum en þá sækir Gummersbach Grosswallstadt heim. Á botninum er spennan jafnvel enn meiri. Lið Gunnars Einarssonar, Göppingen, stendur illa að vígi. Ásamt Dietzenbach er liðið i 10—lL.sæti, en 11. sæti þýðir fall að keppni lokinni. Það gæti þó farið svo að 12 stig verði dregin af Rheinhausen vegna júgóslavnesks leikmanns, er liðið fékk til sín i byrjun keppnistimabilsins. Júgóslavi þessi, Or- lonic að nafni, sagðist sjálfur hafa leikið í marz 1977 í heimalandi sínu, sem þýddi að hann gat byrjað að leika með Rhein- hausen í september sama ár (fékk sex mánaða leikbann vegna félagaskipta). Síðar kom þó í Ijós að Orlonic lék með sínu gamla félagi í júní 1977 og var það því fyrst í desember 1977, sem hann átti rétt á að leika með sínu nýja félagi. Þetta mál hefur verið ofarlega á baugi að undanförnu. Flestir hallast að því að 12 stig verði dæmd af Rheinhausen — þ.e. þau stig, sem liðið vann sér inn með þessum leikmanni. — Aðrir segja að slikt sé ógerningur, þar sem mistökin liggi hjá þýzka handknattleikssamband- inu en ekki félaginu OSC Rheinhausen. Ef svo færi að stigin yrðu dæmd af félaginu, yrði það að sætta sig við fall. Annað er óumflýjanlegt. Úrslit leikja siðustu helgar urðu sem hér segir: Kiel-Húttenberg 21—14 Rheinhausen-Gummersbach 19—19 Dankersen-Derschlag 24—23 Dietzenbach-Hannover 17—14 Grosswallstadt-Göppingen 21—16 Hofweier-Nettelstedt 22—18 Neuhausen-Milbertshofen 15—19 Ostseehöllin í Kiel var enn einu sinni yfirfull af áhorfendum — sex þúsund og fimmhundruð manns, sem sáu bezta leik Kiel á keppnistimabilinu. Húttenberg átti aldrei möguleika gegn ákveðnum heimamönnum með markvörðinn övtel sem besta mann. Fyrir leik þennan losaði Kiel sig við þjálfarann Seles. Fjögur önnur lið, öll í fallhættu, hafa einnig sagt þjálfurum sínum upp. Gummersbach var óheppið að ná ekki sigri i Rheinhausen. Forystu hafði liðið allan tímann en missti knöttinn tvisvar í lokin á mjög svo klauflalegan hátt og Rheinhausen náði að jafna við mikinn fögnuð þrjú þúsund áhorfenda. Beztur hjá Gummersbach var Deckarm. Stjórn- aði spilinu og skoraði sjö mörk. Rhein- hausen tók til þess ráðs að taka Wunder- lich frá byrjun úr umferð. Við það losnaði náttúrlega um Deckarm, sem notaði sín tækifæri vel. Dankersen vann eitt af botnliðunum Derschlag með 24—23. Sigur Danker- sen varð þó öruggari en úrslitin gefa til kynna. Eftir að hafa leitt 5—1, 8—4 ' og 9—6 var liðið að sætta sig við jafn- tefli 10—10 I hálfleik. Júgóslavinn Lavrnic reyndist vörn Dankersen afar erfiður t þessum hálfleik. Skoraði úr hverju skoti. Átta af tíu fyrstu mörkum Derschlag. í seinni hálfleik tók Danker- sen til þess ráðs að elta Lavrnik og tókst það vel. Dankersen náði forystu. Leiddi 14-12 16-13, 18-14, 21-16 er 8 minútur voru til leiksioka. Derschlag saxaði á forskotið í lokin án þess þó að eiga möguleika á því að jafna. Hjá Dankersen skoruðu þessir mest Axel og Waltke 6 hvor, Ólafur 4, og Grund 3. Lavrnic skoraði 10 mörk fyrir Dersc- hlag og var yfirburðarmaður síns liðs. Það sýndi sig í Dietzenbach að PSV Hannover getur ekki lifað á Einari Magnússyni einum. Einar átti stórleik. En það dugði skammt þar sem aðrir leik- menn eru einfaldlega of slakir. Staða liðsins i deildinni segir mest um það. Einar Magnússon hefur sýnt stórgóða leiki með Hannover á þessu keppnis- tímabili. Hann -hefur þó átt við meiðsli að stríða. Gat ekki leikið mikilvæga leiki og liðið stendur nú með 10 stig í næst- neðsta sæti. Sem sagt fallið. í leikrium gegn Dietzenbach skoraði Einar 8 mörk. Göppingen rak þjálfarann Singer í síð- ustu viku.Erwin Blum stjórnaði liðinu í leiknum gegn Grosswallstadt. Eins og búast mátti við tapaði Göppingen fyrir efsta liði deildarinnar. Göppingen var þó vel með til að byrja með. Staðan í hálf- leik 10—9 Grosswallstadt í vil. Yfir- burðir Grosswallstadt komu þó I Ijós fljótlega I seinni hálfleik. Sérstaklegá var „heimsmeistarinn” Klúhspiess Göppingenmönnum erfiður. Úrslit 21— 16. Klúhspiess var með 10 mörk, mark- hæstur hjá heimaliðinu, en Gunnar ’ Einarsson skoraði 4 mörk fyrir Göpping- en. Hofweier náði góðum leik gegn Nettelstedt og sigraði örugglega 22—18. Mesta athygli vakti þó stórgóður leikur hins 36 ára gamla Herbert Lúbkings hjá Nettelstedt. Hann er allt I öllu, Stjórnar spilinu af röggsemi og skorar flest mörk. 1 Hofweier skoraði hann 12 mörk, þar 7 júr vítaköstum. Það er því engin furða þó áhangendur Nettelstedt séu áhyggju- Ifullir vegna framtíðarinnar þvi Lúbking ætlar að leggja skóna á hilluna i vor. Arno Ehret var stórgóður hjá Hofweier, skoraði 10 mörk og I vörninni náði hann að gera hornamanninn hættulega hjá Nettelstedt, Heinar Möller, óvirkan. Með sigri sínum í Neuhausen náði Milbertshofen að forða sér endanlega frá falli. Þetta var sjöundi sigur liðsins í röð. Staðan eftir 22 umferðir er nú þessi: Grosswallstadt2l Gummersbach21 Dankersen 20 Húttenberg 22 Hofweier 22 Milbertshofen 22 Rheinhausen 22 Nettelstedt Kiel Göppingen Dietzenbach Derschlag Hannover Neuhausen 22 21 22 22 21 22 22 390-312 35 393- 320 34 334-301 28 358-330 27 388-365 24 366-367 23 410-429 22 394- 366 21 340-347 20 357-359 353-385 362-386 299-378 322-421 18 18 15 10 7 inn I sendingu — renndi sér upp völlinn, gegnum vörn Vals og á vítateigsbrún- inni spyrnti hann fast á markið. Knötturinn sveif efst í markhornið — óverjandi fyrir Ólaf Magnússon, mark- vörð Vals. Þrumubyrjun. Valsmenn héldu þó alveg ró sinni og um miðjan hálfleikinn tókst Atla Eðvaldssyni að jafna með góðu skoti frá vítateig. Flestir héldu nú að bikarmeistararnir mundu ná yfirtök- um í leiknum. En það var öðru nær. Þróttarar voru ekkert á þeim buxunum að gefa eftir og á 35. mín. skoraði Úlfar Hróarsson með skoti af alllöngu færi. Það reyndist sigurmark leiksins. Úlfar lék með Val í fyrrasumar. Fleiri mörk voru ekki skoruð í leikn- um — en spenna var til loka. Þrátt fyrir góðar tilraunir tókst Val ekki að jafna eða Þrótti að auka við forskot sitt. Miðað við aðstæður var leikurinn þokkalegur á íslenzkan mælikvarða og það getur orðið gaman að fylgjast með Þróttarliðinu i sumar. Þar eru margir ibráðefnilegir leikmenn — og Valsmenn standa örugglega fyrir sínu í sumar, þrátt fyrir þetta óvænta tap. A jax í úrslit íHollandi Ajax Amsterdam sigraöi Sparta Rotterdam 2—0 í Amsterdam í gær- kvöld og tryggði sér þar með rétt i úrslit hollenzku bikarkeppninnar. Sparta sigraði i fyrri ieik liðanna — í Rotterdam — með 2—1. Ekkert mark var skorað i fyrri hálfleik í gærkvöld en i þeim síðari skoruðu Schoenaker og Geels fyrir Ajax. í úrslitum leikur Ajax annað hvort við AZ ’67 eða Excelsior — en leik þess- ara liða, sem vera átti i gær, var frestað. Verður leikinn 19. apríl — en úrslita- leikurinn fer fram 4. mai. Killaninhættir „Ég óska ekki eftir þvi að verða endurkjörínn formaður alþjóða-ólympiu- nefndarinnar, þegar kosið verður f Moskvu 1980,” sagði Killanin lávarður á blaðamannafundi i Mexikö-borg i gær. „Ég hef ekki sótzt eftir endurkjöri þau átta ár, sem ég hef verið formaður nefndarinnar, og þó mér hafi fallið starfið vel þá hefur það verið mjög erfitt. Eftir leikana í Montreal fékk ég aðkenningu aö hjartaslagi — og v.erð þvi ekki framar f framboði,” sagði lá- yarðurinn ennfremur. Bikarúrslit íblakinu Úrslitaleikurinn i bikarkeppni Blak- sambands íslands fer fram á morgun og hefst kl. 13.30. Það verður siðasti stór- leikurinn f blakinu á keppnistimabilinu og enn einu sinni verða Stúdentar og Þróttur i baráttunni. t undanúrslitum sigruðu Stúdentar UMFL með 3—1 og Þróttur sigraði UMFS, einnig með 3— 1. Keppt er um veglegan bikar, sem Smjörlfki h/f gaf til keppninnar. Ljóma- bikarinn og Þróttur er handhafi hans. Varð bikarmeistari í fyrra. Ársþing Blaksambands íslands verður háð um helgina. Hefst kl. 16.00 á laug- ardag og verður fram haldið á sunnudag kl. 10.30. slenzku þátttakendurnir, sem keppa í borðtennis í Hróarskeldu ásamt félögum úr Lionsklúbb Reykjavikur og Kiwanisklúbbnum Esju, og konum úr stjórn Líknarsjóðs kirkjunefndar kvenna í Dómkirkjunni, sem færðu íþróttafélagi fatiaðra gjafir. „Að vera þátttakandi er stærsti sigurinn” Sex félagar úr íþróttafélagi fatlaðra keppa í borðtennisí Hróarskeldu um helgina „Ákveðið er að hefja framkvæmdir i vor við að byggja upp útiíþróttasvæði á lóðinni hér við Hátún 12,” sagði Arnór Pétursson, formaður íþróttafélags fatlaðra, á fundi sl. miðvikudag, þar sem starfsemi félagsins var kynnt. Hópur íþróttafólks úr félaginu fór utan í morgun til keppni i Danmörku — og félagsmenn munu taka þátt í fleiri mótum á næstunni. Sigurður Magnús- son, útbreiðslustjóri ÍSÍ, skýrði frá þessum mótum og gat þess jafnframt, að næsta verkefni íþróttasambands tslands væri að ná til andlega fatlaðs fólks — að stofna íþróttafélög fyrir þroskahefta og vangefna. Á fundinum á miðvikudag bárust íþróttafélagi fatlaðra góðar gjafir frá Líknarsjóði kirkjunefndar kvenna i Dómkirkjunni, Lionsklúbbi Rcykjavíkur og Kiwainisklúbbnum Esju. Hér á eftir fer það helzta úr ræðu Arnórs Péturs- sonar á blaðamannafundinum. Upphaf og undirbúningur „Að frumkvæði ÍSÍ var á miðju ári 1973 sett á fót nefnd til að undirbúa þátttöku fatlaðra í íþróttum. í þessari nefnd eru Sigurður Magnússon frá ÍSÍ, Guðmundur Löve frá öryrkjaþandalagi tslands og Trausti Sigurlaugsson frá Sjálfsbjörgu landssambandi fatlaðra. Að frumkvæði þeirra og tSÍ var ÍFR stofnað 30.5 74 og ÍFA stofnað 7.12. 74. Á undanförnum árum hefur verið unnið markvisst að uppbyggingu og eflingu iþrótta fatlaðra auk mikillar Ikynningarstarfsemi að frumkvæði ÍSÍ og hefur tFR verið virkur þátttakandi i því starfi. ^ ] Frá starfsemi ÍFR Sem fyrr segir var ÍFR stofnað 30.5. 74. Stofnfélagar voru um 40. í félaginu í dag eru um 150 manns og eru um 30 þeirra ófatlaðir, en í lögum félagsins segir: félagsmenn geta orðið allir þeir sem áhuga hafa á íþróttum fatlaðra. Hjá félaginu eru æfðar eftirtaldar íþróttagreinar: Sund, boccia, bogfimi, curling, borðtennis, lyftingar og lítillega hafa verið æfð köst. Þjálfarar félagsins eru Kristjana Jóns- dóttir sund, Sveinn Áki Lúðvíksson borðtennis og Július Arnarson aðrar greinar, en hann hefur verið hjá félaginu frá upphafi. Einnig hefur Erling Jóhannsson þjálfað þátttakendur fyrir sundmót erlendis. Borðtennis er æft 2-3 tíma sex sinnum i viku, lyftingar 2-3 tima fimm sinnum í viku, curling og boccia 2-3 tima þrisvar í viku. Þessar greinar eru æfðar í tveimur sölum i húsi Sjálfsbjargar að Hátúini 12. Bogfimi er æfð 2 tima tvisvar í viku i anddyri Laugardalshallar, sömuleiðis sund i Skólalaug Árbæjar, en séræfingar vegna sundmóta allt aö sex sinnum i viku í Sundlaug Vesturbæjar. Nýtt íþróttasvæði A síðasta ári fékk ÍFR leyfi Sjálfs- bjargar til að byggja upp útiiþróttasvæði á lóðinni hér við Hátún 12. Teiknistofan Ármúla 6 s.f. hannaði iþróttasvæðið, sem siðan var samþykkt af bæði íþrótta- ráði Reykjavikur og íþróttanefnd ríkisins og endanlega samþykkt til fram- kvæmda sem nýtt íþróttamannvirki á síðustu fjárlögum. Kostnaðaráætlun gerð í september sl. hljóðaði upp á irúmlega 30 milljónir. Ákveðið er að hefja framkvæmdir nú í vor og æskilegt er að hægt verði að Ijúka þeim á sem skemmstum tima. bæði vegna mikillar þarfar og eftir þvi sem verkið er lengur í framkvæmd verður það dýrara. Formaður framkvæmda- nefndar er Ríkharður Steinbergsson, en hann er einnig félagi i Lionsklúbbi Reykjavíkur. Aðrir í nefpdinni eru Guð- mundur Löve. Vigfús Gunnarsson. Arnór Pétursson og Júlíus Arnarsson. Utanaðkomandi stuðningur Þetta er ekki i fyrsta sem klúbbar þessir koma við sögu ÍFR. Er félagið var stofnað gaf Lions- klúbburinn Freyr öll æfingatæki til félagsins og hefur félagið óverulega þurft aö endurnýja og bæta þau. Á síðasta ári gaf Lionsklúbbur Reykja- víkur félaginu I milljón kr. til fram- kvæmda við væntanlegt útiíþróttasvæði, var þessa fjár aflað með happdrætti og sýndu þeir einstakt fordænti því félaginu gafst tækifæri til að taka þátt i sölu happdrættismiðanna. Kiwanisklúbb- urinn Esja gaf félaginu stóra fjárupphæð er félagið var stofnað og einnig hafa þeir gefið félaginu alla bikara sem keppt er um í innanfélagsmótum félagsins. Lions- klúbburinn Njörður hefur gefið verðlaunapeninga í sömu mót auk stuðnings i mörgum myndum. Loks er að geta I millj. króna gjafar frá starfs- mannafélagi Sigöldu og ýmsar minni gjafir hafa einnig borizt félaginu. Stjórn iFR er þessum klúbbum og “iðrum, sem hafa sýnt félaginu stuðning, þakklátari en orð fá lýst, en þar sem þessir klúbbar hafa allir komið við sögu félagsins áður, lítum við jafnframt á þessar gjafir sem traustsyfirlýsingu á það, sem við höfum verið að gera undan- farin ár. Því þessir aðilar hafa fylgzt með starfi félagsins og væru varla að veita því slíkan stuðning nema þeir hafi séð, að fyrri gjafir þeirra hafi komið sér vel og verið nýttar vel og skynsamlega til eflingar íþróttum fatlaðra. Það er von okkar og trú að við séum þess megnug að standa undir því trausti sem okkur er auðsýnt með þessum gjöfum. Þátttaka f mótum erlendis NM í borðtennis. Um nk. helgi fer fram i Roskilde í Danmörku NM í borðtennis fatlaðra. Af hálfu íslands verða 6 þátttakendur: Elsa Stefánsdóttir, Guðný Guðnadóttir, Guðbjörg K. Eiríksdóttir. Arnór Pétursson, SævarGuðjónsson. ViðarGuðnason. Þjálfarar og fararstjórar verða Sveinn Áki Lúðviksson, Júiíus Arnarson og Guðm. Þór Arnórsson. Þetta er i fjórða sinn sem fatlaðir iþróttamenn taka þátt i mótum erlendis. Fyrsta þátttakan var á alþjóðlegum leikum í Svíþjóð í nóv. 1976. Þar kepptu tveir sundmenn og hlutu þriðja og fjórða sæti í sínum flokkum, annað skiptið var á heimsleikum fatlaðra i Stoke Mandeville í Englandi sl. sumar. Þar kepptu fimm manns, í sundi, borðtennis. lyftingum og spjótkasti og unnust þrenn bronsverðlaun, tvenn i sundi og ein í lyftingum. Þriðja mótið var svo NM i sundi í Þrándheimi i Noregi i nóv. sl. þar keppti þrennt og unnust tvenn silfurverðlaun og tvenn bronsverðlaun. N.M. í lyftingum 6.-7. maí nk. fer fram NM I lyf- tingum fatlaðra hér i Reykjavík. ásamt norrænu kynningarmóti í Boccia. en það er lítt þekkt iþróttagrein hérlendis, sem hentar einkar vel fötluðu fólki. Þátttakendur verða frá öllum Norður- löndunum, samtals u.þ.b. 70—80 og meðal þeirra eru mestu afreksmenn heimsins í lyftingum (bakpressu). Þar sem ekkert sérsamband í íþróttum' fatlaðra er til hefur ÍSÍ átt allan veg og vanda af keppnisferðum þessum. íþróttasamband fatlaðra á Norður- löndum var stofnað á íslandi i sept. 1976 og er ÍSÍ aðili að þvi fyrir hönd fatlaðra iþróttamanna á tslandi. Varla þarf að taka það fram, að iþróttir fatlaðra á Islandi hefðu ekki þróast svona hratt á stuttum tima nema vegna þess að til kom mikill skilningur almennings og forystumanna ÍSÍ sent hafa veitt i þetta fé og ómældri vinnu og tima, einnig ber að þakka stuðning og skilning ríkisvalds og borgarstjórnar.” Sþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.