Dagblaðið - 24.04.1978, Blaðsíða 10
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. APRlL 1978.
"'a
Sovézku orustuflugmennimir
skutu á vélina án viðvömnar
— segir aðstoðarflugmaður s-kóreönsku farþegaþotunnar sem nauðlenti í Sovétríkjunum
— enn ekki Ijóst hvað olli þ ví að vélin villtist 1600 km af leið og inn í sovézka lofthelgi
Aðstoðarflugmaður suður-kóre-
ðnsku Boeing 707 farþegaþotunnar,
sem nauðlenti á isilögðu vatni í Sovét-
ríkjunum, segir að sovézkir orustu-
flugmenn hafi ekki gefið neina að-
vörun áður en þeir hófu skothrlð á far-
þegavélina með þeim afleiðingum að
tveir létust.
„Ég sá orustuþoturnar við hlið
mér,” sagði Cha Soon aðstoðarflug-
maður á blaöamannafundi í An-
chorage I Alaska í gær, en þar lenti vél
frá suður-kóreanska flugfélaginu, sem
náði í farþega og áhöfn þotunnar. Og
Cha Soon hélt áfram: „Það benti ekk-
ert til þess að það yrði skotið á okkur.
en eftir svo sem fimm minútur byrjaði
skothríðin.”
Aðstoðarflugmaðurinn sagði að
árangurslaust hefði verið reynt að ná
sambandi við sovézku flugmennina,
en svo virtist sem sovézku vélarnar
hefðu talstöðvar með annarri tiðni en
flugvélar annarra þjóða.
Á blaðamannafundinum varð ekki
varpað Ijósi á hina miklu villu s-kóre-
önsku vélarinnar, en þegar hún fór inn
í sovézka lofthelgi hafði- hún farið
1600 km af áætlaðri flugleið á milli
Parísar og Seul. Flugstjóri vélarinnar
Kim Chang-Kyu og siglingafræðingur
hennar Lee Kun-Shi voru kyrrsettir í
Sovétrikjunum til þess að aðstoða
sovézk yfirvöld við rannsókn málsins.
Farþegar lýstu Kim flugstjóra sem
hetju eftir að honum tókst að nauð-
lenda laskaðri vélinni á isilögðu vatni i
norðanverðum Sovétrikjunum. Kim
sagði farþegum að orsök villunnar
væri bilun í siglingartækjum þotunn-
ar.
Forstjóri Korean Air Lines, Cho
Choong-Hoon sagði að Sovétmenn
hefðu fjarlægt band það sem skráir allt
um ferðir vélarinnar og án upplýsinga
af þvi bandi væri erfitt að segja ná-
kvæmlega um hvað gerzt hefði. En
hann sagðist vilja vita, hvers vegna
siglingafræðingurinn notaði ekki
sextant til þess að reikna út stefnu
vélarinnar, þegar siglingartæki hennar
virkuðu ekki rétt. Cho forstjóri KAL,
sem varð samferða flestum farþegum
og áhöfn vélarinnar sem sluppu lifandi
á leið þeirra til Japans og Kóreu, sagði
að Lee siglingafræðingur hefði mikla
reynslu og hefði hann flogið 70 sin-
num þessa leið yfir norðurpólinn áður.
Eina yfirlýsingin, sem borizt hefur
frá sovézkum yfirvöldum um málið
sagði að flugmenn farþegaþotunnar
hefðu ekki farið eftir bendingum
sovézku orustuflugmannanna, sem
bentu þeim á að lenda á flugvelli, en
vélin hafi siðan lent á isnum á vatninu
eftir að herflugmennirnir hindruðu
það að hún flygi lengra.
1 Seul sendi Park Chung-Hee forseti
frá sér tilkynningu, þar sem hann
þakkaði sovézkum yfirvöldum það að
áhöfn og farþegum vélarinnar skyldi
sleppt og jafnframt loforð um að flug-
stjóri og siglingafræðingur fengju að
fara frjálsir ferða sinna. Talsmaður
forsetaembættisins sagði að opinber
réttarhöld yrðu haldin til þess að
kanna hvernig vélin gat villzt inn í
sovézka lofthelgi og jafnframt yrði allt
gert sem hugsanlegt væri til þess að fá
flugmennina tvo heim aftur.
Suður-Kórea hefur ekki stjórnmála-
samband við Sovétríkin, en Banda-
ríkjastjórn og stjórn Japans hafa verið
milligöngumenn i málinu.
Komiðí vegfyrir
verkfall íVolks-
wagenverksmiðjunum
Komið var i veg fyrir verkfall i Volks-
wagénverksmiðjunum í V-Þýzkalandi á
laugardaginn, er samband málmiðnaðar-
manna samþykkti tilboð atvinnurek-
enda um 5.9% launahækkun. Hefði
komið til verkfalls hefði það orðið hið
fyrsta í sögu Volkswagenverksmiðjanna.
Volkswagenverksmiðjurnar eru
stærstu bifreiðaverksmiðjur í V-Þýzka-
landi, en þar vinna 106 þúsund manns.
Á föstudag var samþykkt með yfirgnæf-
andi meirihluta atkvæða að fara í verk-
fall, ef ekki fengist fram 8% kauphækk-
un. En eftir niu stunda fund félags
málmiðnaðarmanna á laugardag var
ákveðið að ganga að 5.9% kauphækk
unartilboðinu. Áður höfðu atvinnurek-
endur boðið 5% kauphækkun. Aðrir
málmiðnaðarmenn í V-Þýzkalandi
fengu 5,5% kauphækkun nú fy.rr í mán-
uðinum.
Schmidt í London
Helmut Schmidt kanslari V-Þýzkalands kom til London i gxr til viðræðna við
James Callaghan forsætisráðherra Breta. Viðræðurnar hðfust í gærkvöldi og
þeim lýkur i kvöld. Viðræður leiðtoganna munu aðallega snúast um efnahagsmál,
en einnig um „detente”, eða slökunarstefnu austurs og vesturs. Leiðtogar Bret-
lands og V-Þýzkalands eiga reglulegar viðræður á sex mánaða fresti um málefni
Efnahagsbandalags Evrópu og alþjóðamál.
Litið hefur birzt af kóngamyndum undanfarið og þvi skal bætt úr því, þar sem fyrirbærin þekkjast enn meðal nágranna
vorra á Norðuriöndum. Þar má vart fletta blaöi án þess að rekast á mynd af Margréti Danadrottningu, Karli Gústafi Svía-
kóngi eða þeim feðgum Ólafi og Haraldi í Noregi. Af hinum konunglegu málum nágranna okkar cr annars helzt tíðinda aö
Viktoria Svíaprinsessa hefur öðlazt rétt til þess að taka við krúnunni að föður sínum gengnum, en vonandi verður það þó
ekki strax þvi Kari Gústaf hefur rétt slitið barnsskónum sjáifur.
Á þessari mynd sjáum við hans hátign Ólaf Noregskonung ásamt með syni sinum Haraldi og tengdadóttur Sonju taka á
móti Rudolf Kirchsláger forseta Austurríkis á Fomebuflugvelli i Osló. Forseti Austurrikis dvaldi f þriggja daga opinberri
heimsókn i Noregi i siðustu viku með konu sinni. Ekki er vitað hvers vegna Sonja fékk ekki að ganga á rauða dreglinum eins
og hinir, en hún virðist samt sem áður hýr á svipinn.
ísraelskur söngflokk-
ur sigraði í Eurovision-
söngvakeppninni 78
— í fyrsta skipti í 23 ára sögu keppninnar
— Belgía í öðru sæti og Frakkland íþriðja
Hin árlega söngvakeppni i Evrópu.
Eurovision keppnin, var haldin á
laugardag. Að þessu sinni sigraði isra-
elskur flokkur, Izhar Cohen og alfa
beta söngvararnir. Sigurlagið heitir þvi
undarlega nafni Ah-bah-nee-bee og er
ástarsöngur sunginn á barnamáli. í
öðru sæti varð belgiskur söngvari,
Jean Vallee, en lag hans nefnist
L’amour, ca fait chanter la vie, eða i
lauslegri þýðingu lífið er söngur með
ást. í þriðja sæti varð franskur söngv-
ari, en lag hans heitir II aura toujours
des violins, en það útleggst í lauslegri
islenzkri þýðingu, fiðlurnar verða
alltaf við lýði.
Alfa beta söngvararnir frá Ísrael,
sem sigruðu að þessu sinni eru þrjár
stúlkur og þrír piltar. Er Ijóst varð að
þau hefðu sigraö komust þau í mikið
uppnám, en sigur i þessari keppni
getur leitt til mikils frama eins og
dæmin sanna. Það var árið 1974, sem
ABBA flokkurinn sænski sigraði, en
hann er nú frægur um allan heim og
hefur átt ótrúlegri velgengni að fagna.
Er fráttamenn reyndu að nálgast söng-
flokkinn eftir sigurinn kom tylft ísra-
elskra öryggisvarða og skildi á milli.
ísraelsmennirnir voru greinilega
hræddir um öryggi söngflokksins. Þeir
lofuðu þó fundi með fréttamönnum
siðar. Aður en söngflokkurinn var
leiddur á braut sagði Izhar Cohen:
„Ég vonaði að við ynnum og það er
allt sem maður getur gert. Það er
aldrei hægt að vera öruggur.”
Þetla er i fyrsta skipti sem ísraelskur
söngflokkur sigrar i þessari keppni, en
hún hefur verið haldin 23 sinnum.
Talið er að 350 milljónir áhorfenda
hafi horft á söngvakeppnina í beinni
sjónvarpsútsendingu. Væntanlega
liður ekki á löngu áður én íslenzkum
áhorfendum gefst færi á að skoða
söngvakeppnina, en hún hefur verið
sýnd undanfarin ár skömmu eftir
sjálfa keppnina.