Dagblaðið - 04.11.1978, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 04.11.1978, Blaðsíða 24
í GÆZLU, GRUNAÐ- UR UM STÓRFELLD TRYGGINGASVIK Forstjóri fiskvinnslufyrirtækisins kveðinn upp hjá bæjarfógetaembætt- tryggingasjóði. Nefndar eru milljónir i Jón Eysteinsson, bæjarfógeti í Heimis i Keflavik var í gær inu í Keflavik. Það var í fyrradag að sambandi við þetta mál. Keflavík, vildi ekki tjá sig um málið, úrskurðaður í allt að tíu daga gæzlu- Rannsóknarlögreglu ríkisins barst Hallvarður Einvarðsson, vísaði á Hallvarð Einvarðsson og vildi varðhald vegna gruns um stórfelld málið frá fógetaembættinu í Keflavik. rannsóknarlögreglustjóri rikisins, engar tölur nefna í sambandi við þetta svik hans tengd atvinnuleysis- staðfesti í samtali viö DB í gærkvöld meinta svikamál. tryggingasjóði. Lék grunur á að útgerðarmaðurinn að úrskurður þessi hefði verið kveðinn -ÓV/ASt Gæzluvarðhaldsúrskurðurinn var hefði svikið stórfé út úr Atvinnuleysis- Upp Málverkakaup sendiherrans: „Ég bjargaði myndinni frá að lenda á uppboði” — segir Ingvi S. Ingvarsson, sendiherra í Stokkhólmi, um kaupin á Kjarvalsmyndinni Á borgarstjórnarfundi í fyrrakvöld var frá þvi sagt, að Kjarvalsmálverk sem hússtjórn Kjarvalsstaða hefði samþykkt að kaupa, hangi nú á vegg sendiherra Islands í Stokkhólmi, sem ætlað hefði að kaupa verkið fyrir Kjarvalsstaði en síðan keypt það sjálfur. „Þetta er nú málum blandið,” sagði lngvi S. Ingvarsson í samtali við DB frá Stokkhólmi. „Ég skal útskýra þetta mál, sem er einfalt. í mars eða april í vor kom til mín sænsk kona, sem hafði verið á íslandi og eignazt þar mynd eftir Kjarval. Nú var hún í fjárþröng og vildi því selja myndina. Ég skrifaði utanrikisráðuneytinu heima og benti á að verkið væri til sölu og hvort ráðu- neytið vildi kanna áhuga opinberra aðila á Islandi á kaupum á verkinu. Svo gerist það nokkuð löngu seinna, að listráð Kjarvalsstaða sýnir þessu áhuga. Þeir báðu um upplýsingar varðandi verð og annað þvi að lútandi og einnig myndir af málverkinu. Þetta fengu þeir. Seljandinn var síðan alltaf að reka á eftir málinu, en að heiman bárust mér engin svör, enginn áhugi. Um miðjan október keypti ég svo myndina, því annars hefði hún lent á uppboði og hver veit þá hvar hún hefði lent. Af minni hálfu og ráðuneytisins heima var talsvert rekið á eftir þessu máli, en það bar engan árangur. Annars vissi ég ekki að það væri frétt- næmt, þótt menn keyptu sér mál- verksagði sendiherrann. „En hvað kostaði svo þetta málverk?” „Það fer ég ekki að segja þér,” sagði Ingvi S. Ingvarsson. -ÓV. Féll5metra L niður í lest V Tuttugu og tveggja ára gamall maður ofan af þilfari niður I lest, alls um 5 var I gser lagður I gjörgæzludeild metra fall. í fallinu slengdist höfuð Borgarspítalans eftir slys i sambandi við mannsins i gám á millidekki og hlaut uppskipun i Sundahöfn. hann af mikið höfuðsár. Ekki var hægt Lngi maðurinn var við vinnu við að fá upplýsingar um meiðsli mannsins Múlafoss. Gekk hann aftur á bak og féll áður en DB fór i prentun. Sv.Þ/ASt. fáfclAílita Fannst látinn í fangaklefa — hafði hengt sig íbelti sínu, sem ekki hafði verið tekið af honum Tuttugu og fimm ára gamall maður, sem lögreglan handtók í fyrrinótt vegna ölvunar, fannst í gærmorgun látinn í fangaklefa í lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Til að stytta líf sitt hafði maðurinn notað belti sitt að sögn lögregluyfirvalda. Njörður Snæhólm yfirlögreglu- þjónn hjá RLR og Bjarki Elíasson yfir- lögregluþjónn í Reykjavík staðfestu báðir í samtali við DB að óvenjulegt væri að menn sem settir væru í fanga- geymslu á Hverfisgötu fengju að hafa belti sitt með í fangaklefana. Væri það þó tiðkanlegt þegar lögreglumenn þekktu til fanga og teldu þá „rólega” menn. Svo var í þetta sinn. Maðurinn var handtekinn um klukkan 2 í fyrri- nótt, var einn i stórum klefa um nóttina, en fannst látinn er fanga- verðir huguðu að föngum í gær- morgun. -ASt. frfálst, úháð dagblað LAUGARDAGUR 4. NÓV. 1978. Fundurfhússtjórn Kjarvalsstaða: Listamenn mættu ekki Fundur var haldinn I gær um hádegið í hússtjórn Kjarvalsstaða. Fulltrúar Félags islenskra myndlistarmanna höfðu verið boðaðir á hann til þess að ræða bann það sem sett hefur verið á húsið. En listamennirnir létu ekki sjá sig. Ómögulegt reyndist I gær að ná í fulltrúa þeirra til þess að skýra frá hvers vegna. Á fundinum voru einnig lagðar fram þær umsóknir sem borizt hafa um stöðu listfulltrúa við húsið. Enginn fulltrúi úr hússtjóminni var hins vegar viðlátinn er DB reyndi að ná í þá, til þess að vita hverjir sóttu um en DB hefur fregnað að ómögulegt reynist að fá fulltrúana til að skýra frá þvi, jafnvel þó náist í þá. -DS. Sýningf Menningarstofnun: Hinn amerfski eldhús- draumur Bandaríska sendiráðið og samband islenskra innflytjenda og heildsala gangast I næstu viku fyrir vörusýningu í húsnæði Menningarstofnunar Banda- rikjanna á Neshaga 16 í Reykjavík. Sýningin verður opnuð á þriðjudaginn og stendur í þrjá daga. Opið verður milli kl. lOog 16. Á sýningunni, sem verður fólgin í sýningu á sýnishornum, sjónvarps- myndum og kynningarbæklingum, sýna tuttugu og sjö bandarísk fyrirtæki heimilistæki af ýmsu tagi. Ameríkanar eru frægir fyrir ýmis hugvitsamleg hjálpartæki til heimilis- nota. Verða slík tæki uppistaðan í sýningunni. Sýnd verða rafmagns- heimilistæki, ýmsir hlutir til nota við úti- veru, punt af ýmsu tagi, borðbúnaður, baðherbergistæki, baksturs'- og eldunar „græjur” og fleira í þeim dúr. Fjölmörg bandarísku fyrirtækjanna vilja í leiðinni ná sér í umboðsmenn á íslandi. -ÓV. Kaupið^V TÖLVUR. í I* OGIÖLVI BANKASTRÆTI8

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.