Dagblaðið - 12.02.1979, Blaðsíða 16

Dagblaðið - 12.02.1979, Blaðsíða 16
16 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1979. r " ...... ... Tók þátt ífyrstu upp- færslunni á Sköpun- inni f Steindórsskál- anum 1939 *— rætt við Jóhannes Arason útvarpsþul Jóhannes Arason útvarpsþulur, sem sennilega hefur eina velþekktustu rödd landsins, hefur sungið með Söngsveit- inni Filharmoníu i fjölda ára og tók þátt I fyrstu uppfærslunni á Sköpuninni árið 1939 undir stjórn Páls Isólfssonar, þá nitján ára bassi i karlakórnum Kátir félagar. Við hittum Jóhannes á æfingu i Há- skólabíói síðastliðinn laugardag og báðum hann að rifja upp þá daga er Sköpunin var frumflutt. —• Þá þarf ég að fara aftur til ársins 1939 og rusla þar í minningum, varð Jóhannesi að orði. — Frá þeim tíma er margs að minnast, þá gekk mikið á, þjóðir í Evrópu farnar að striða. Lætin byrjuðu fyrst í september ’38 þegar Þjóðverjar réðust á Pólverja, þá fór margt af stað, ýmist til góðs eða ills, sem áður var kyrrt, stöðugt eða ekki til. Þá kostaði sterlingspundiö tuttugu og tvær krónur og fimmtán, en þetta ár hóf það göngu sina niður á við. Síöan hefur engin gengisskráning festst mér í minni. Voru þetta ckki merkileg tlmamót? — Það má segja að á þessu ári hafi að ýmsu leyti orðið vatnaskil eða straum- hvörf í íslenzku þjóðlifi. Handan við stríðiðergamli tíminn. Uppfærsla Sköpunarinnar var eitt af þvi sem bar einna hæst í listum og menningarlífi þessa árs hér á norður- slóðum. Þetta var geysimikið og merkilegt átak miðað við aðstæður. Þetta var i fyrsta skipti sem flutt var óratoria á íslandi, og þar af leiðandi stærsta tónverk sem borið var á borð landans. Það var sextíu manna kór og þrjátiu manna hljómsveit sem tóku þátt í flutningnum, þannig að ekkert samkomuhús var nægilega stórt fyrir þessa uppfærslu. Þá var brugðið á það ráð að breyta bílaskála Steindórs í tónleikasal, og rúmaði hann tvö þús- und áheyrendur, og komust færri að en vildu, Háskólabió rúmar eitt þúsund manns, og þykir gott að þar sé húsfyllir. Það var alveg stórkostlegt að taka þátt í þessu. Það vill svo vel til að ég á söngleikaskrá þessara hljómleika og þykir mörgum ákaflega forvitnislegt að skoða þessa skrá, t.d. að fara yfir nöfn þeirra sem tóku þátt I þessu, ævintýri. 1 hópi söngfólksins er ég einn sem enn þrjózkast og er með í þriðja sinn, en í hópi hljóðfæraleikaranna eru þeir T Ó N LIS TARFÉLAGIÐ ISTAH FSÁHIO 1030-40) 3. HLJÓMLEIKAR mdnudaginn 18. dasember 1939, klukkan Q'/i sd. I BIFREIÐASKÁLA STEINDÓRS VID SELLANDSSTfQ „JSKÖrURÍIM" mr. MítmtuM. Orntorlnm .f.ir JONKI*ll II.VVOV Ulandaður kiir k.'.r r.;nli,l.rfél.g-iii- »f .Kiiir félnpir. llljúiH.velC ltr)k|avlk«r Sljiíriiiiinli: l*iiII ÍmóKh.iiii l(j|il.4.1 -.(nrtWir Mjrl.ii Tónleikaskráin frá árinu 1939 sem Jóhannes talar um. Jóhannes Arason ótvarpsþulur tók þátt i frumflutningi Sköpunarínnar i bílaskála Steindórs, sem rómaði 2000 manns i sæti árið 1939. DB-mynd Kristján Ingi. fimm sem eru í hljómsveitinni enn í dag. Það eru þeir Sveinn Ólafsson, Þorvaldur Steingrimsson, Skafti Sigþórsson, Indriði Bogason og Jóhannes Eggertsson. Nú, svo er þarna efstur á blaði Björn Ólafsson fiðluleikari, ég man að- Björn var þá nýkominn heim eftir stór- glæsilegan námsferil i útlöndum. Nó hefur þó sungið i mörgum stór- um kórverkum i gegnum árin, er þér nokkurt sérstakt verk efst i huga? — Já, skýlaust Messias eftir Handel og það verk sem hér um ræðir, Sköpunin, annars er erfitt að gera upp á milli. Að lokum, hefur þó nokkuð hugað að hætta að syngja á næstunni? — Veit ekki, mér hefur mistekizt að hætta í nokkur ár, og nú er „Níunda” framundan, ha! -KIE. ijBBP p—iipæpæpwi Uppþvotta- véi Utanmál: HXBXD:85X60X60cm. Afköst: 12 persónur. Fjöldi valstillinga: 5. Hitastig við þvott og skolun: 55/65°C. Innra hólf ór ryðfrfu stáli. Spenna: 220/300 V. — Orka: 2800/2200 W. Hægt er að nota heitt eða kalt vatn inn á vél- Uppþvottatimi: Heitt vatn: 58 mín. — Kalt vatn: 1 klst. og 25 mfn. Þurrkar með heitu lofti. Fáanlegf Rafhalitum. Frystíkista TL 300 — 300 lítra Utanmál: HXBXL:89X61X 100,5 cm. Frystigeta: 33 kg pr.-24 klst. Er með hrað- frysti-hnapp og -hólfi. Meðalþörf: 1,9 K Wh pr. 24 klst. TL 400 — 400 lítra Utanmál: H X B X L: 89 X 68,5 X131 cm. Frystigeta 44 kg pr. klst. Er með hraðfrysti-hnapp og -hólfi. Meðalaflþörf: 2,2 K Wh. pr. 24 klst. Fáanlegf 6 litum. varahluta og víöyerÖarþjGrisustf?. pwsa Þurrkan Tvær gerðir af tauþurrkurum, sem báðir geta staðið á gólfi eða veríð ofan á þvottavélinni. Þurrkbelgur er gerður ór ryðfrfu stáii. Báðar gerðir rjófa strauminn þegar 10 mín. eru eftir, tii að hindra að þvotturinn krypplist (krump- ist). Orka: 2,2 kW. ; Kæíi skapar GERÐ ZB 2500/2 TR FástíRafha létum I í Austurveri, Háaleitisbraut 68, sími 84445 og 86035 Þvottavéi Gerð SL 128 Þessi nýja vél er með 18 valstillingum og uppfyllir allar hugsanlegar þvottaþarfir. Tveir þeytivinduhraöar eru á vélinni, 800 og 400 sn. pr. mfn. Sápuhólf er fjórskipt. Hægt er að velja um lltið eða mikið vatn við þvottinn til sparnaðar á orku. Utanmál: HxBxD:85X60X55cm. Orkuþörf: 3 kW 220/300 volt.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.