Dagblaðið - 01.06.1979, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 01.06.1979, Blaðsíða 1
Srfálst, úháð rlanhlaft Hann fæddist í nótt Hér er splunkunýtt Uf — folald sem fæddist i nótt i Viðidal. Heldur var UtU folinn valtur á fótunum kl. sex 1 morgun, þegar myndin var tekin, en vxntanlega stælist hann fljótt. Honum væri illa I ætt skotið, ef þetta verður ekki myndarhestur, þvi „faðir” hans er kynbótahrossið SörU. DP-mynd: Sv. Þorm. f 4 4 4 \ 4 \ 4 5 l 4 4 5. ÁRG. — FÖSTUDAGUR1. JÚNÍ 1979 — 123. TBL. „Meiri vor- svipuráveð- urkortunum” „Það er ekki nokkur vaíi á þvi að veðurkortin hafa breytt um svip og fengið meiri vorsvip,” sagði Markús Á. Einarsson veðurfræðingur í sam- tali við DB í morgun. ,,Þótt í dag sé ekki sama góðviðrið og i gær þá er orðin veruleg breyting þegar á heUdina er Utið. 1 dag er spáð hægviðri og síðar i dagaustangolu og rigningu, fyrst austan til og siðar einnig á stöku stað vestan til. Hitinn verður ekki eins mikiU og i gær en þá fór hann til dæmis i 15 stig á Akur- eyri.” -GAJ Ekkert má nú Rollumar og lðmb þeirra frá Vatnsenda undu ekki iengur í heima- högunum í kyrrð hinnar siðustu sumarnætur. Lögðu þær land undir fót og heimsóttu Breiðholtið. Þær þóttu ekki sérlega velkomnar þar og stuttu eftir að fólk i efra Breiðholtinu vaknaði var lögreglulið komið í málið og farið að skipta sér af skjátunum og stugga þeim heim á leið aftur. Tók þetta drjúgan tíma fyrir lögreglu- mennina. Hætt er við aö einhver rolian hafi hugsað sem svo: Ekkert má nú á þess- um síðustu og verstu timum fyrir tandbúnaðinn. - ASt. Hörkuleg samþykkt Framsóknar „Óviðunandi að hafast ekki að” Framkvæmdastjóm Framsóknar- flokksins gerði í gærkvðld óvenju- harðorða samþykkt. „Neyðarástand •er komið. Algerlega óviðunandi aðhafast ekkert að,” sagði Tómas Árnason fjármálaráðherra i morgun um þessasamþykkt. Framsókn leggur i samþykktinni áherzlu á, að verkföllum verði frestað og ekki leyfðar frekari grunn- kaupshækkanir en 3% til áramóta. Tíminn verði notaður til að undirbúa kjarasamninga til tveggja ára. Þá er rætt um hliðarráðstafanir, svo sem þak á laun og skyldusparnað. Tómas sagði að engir úrslitakostir hefðu verið settir fyrir stjómarsam- starfiðmeðsamþykktþcssari. -HH RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AÚGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSlMI 27022. Hin gíf urlega olíuverðhækkun: Engin spurning aö hún leiðir afsér kreppu —fyrir heiminn, segir Vilhjálmur Jönsson forstjóri Olíufélagsins hf. Gífurleg hækkun hefur orðið á olíuverði á markaðnum í Rotter- dam. Svo er nú komið að innkaups- verð íslendinga er mun hærra en Evrópulanda þeirra er næst eru Rotterdam markaðnum. CIF verð til íslendinga er 77 kr. verð með álagn- ingu 112 kr. og með sköttum 256 kr. hver bensínlítri. í nágrannalöndum Rotterdammarkaðarins er verð með álagningu 52—73 kr. hver bensínlítri ogmeðsköttum 121—188 kr. Dagblaðið bar þetta undir Vil- hjálm Jónsson forstjóra Olíufélags- ins hf. í morgun og hvort íslendingar keyptu ekki oliu á óhagstæðasta markaðnum. Vilhjálmur sagði það alveg ljóst að aðstæður okkar væru aðrar en annarra Evtópulanda. Við höfum enga olíuhreinsunarstöð heldur kaupum alla oliu fullunna. önnur V-Evrópuríki kaupa svo- kallaða crudeoliu eða hráolíu og full- vinna hana sjálf. Sveiflur í verði eru þvi lengur á leiðinni hjá þeim ríkjum og ekki komnar fram enn. Hitt er svo annað mál, sagði Vilhjálmur, að við værum búin að setja landið á hausinn ef hér hefði verið komið upp olíu- hreinsunarstöð, þar sem markaður- inn sé lítill og Ula samsettur. „Okkur hefur ekki tekizt að fá aðra markaði en Rotterdam,” sagði Vilhjálmur. Það er staðreynd, að Sovétríkin selja mikið af olíu til V- Evrópuríkja og verðið er alltaf miðað við Rotterdam. Ég veit ekki hvað hægt væri að miða við. Okkur hefur ekki tekizt að fá fast verð í okkar inn- kaupum. Rotterdam viðmiðunin hefur verið okkur hagstæð á undanförnum árum, þar sem framboð á olíu var meira en eftirspurn. Nú hefur þetta snúizt við. Og það er engin von til þess að vit komist í þessi mál nema Bandaríkjamenn breyti Ufnaðarhátt- um sínum, en þeir nota þriðjung aUrar olíu, sem notuðer í heiminum. Það er vonandi að verðið lækki eitthvað, en ég hef enga trú á því að það verði viðunandi fyrir okkur. Það er engin spuming að þetta leiðir af sér kreppu yfir heiminn.” -JH. 37. skoðanakönnun Dagblaðsins: TVEIR AF HVERl- UMÞREMVIUA ÞJÓDARATKVÆÐI — sjá úrslit skoðanakönnunar DB um afstöðu manna til þjóðaratkvæðagreiðslu \ „um hin mikilsverðari mál” á bls. 13 Hlutur þjóðaratkvæðis verður líklega aukinn — segir Sigurður Gizurarson sýslumaður, sem á sæti í stjómarskrámefnd, íviðtali á bls. 13 Enn tefst fiskverðsákvöröunin: ÖLL ÞJÓDIN BORGIOLÍU Á FLOTANN ,,Ég tek fyUilega undir þaö að út- Það er skoðun oddamanns, Jóns gerðin getur ekki risið undir þessum Sigurðssonar, að olíuhækkanirnar olíuhækkunum sjálf og verð þvi að hafi þau áhrif að ekki verði unnt að vísa tU stjómvalda og þar með aUrar ákvarða fiskverð, sem gUda skuU í þjóðarinnar um lausn málsins,” þrjá mánuði, fyrr en á borðinu Uggi sagði Óskar Vigfússon, formaður einhver ráð til að geta haldið Sjómannasambandsins i viðtali við flotanum gangandi á væntanlegu 150 DBímorgun. kr. lítraverði í sumar. DB náði ekki Hann sat stutian árangurslausan taU af sjávarútvegsráöherra í morgun fund yfirnefndar verðlagsráðs sjávar- til aö spyrjast frétta af hugsanlegum útvegsins í gær og er nýs fiskverðs þvi opinberum aögerðum, útgerðinni tU ífyrstalagiaðvæntaínæstu viku, en hjálpar. -GS. átti að vera tilbúið í dag. — Sjé bls. 14 og 15.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.