Dagblaðið - 14.06.1979, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. JÚNf 1979
15
Eins ug myndin ber með sér er fáninn beinlinis kjánalega Iftill á þessari stóru flagg-
stöng.
DB-mynd Ragnar Th.
Flugmálastjórn
með ólöglegan fána?
Þeim sem leið hafa átt um flugvallar-
svæðið hefur þótt svo sem fáni Flug-
málastjórnar sé helzt til tíkarlegur á
flaggstönginni fyrir framan flugturn-
inn. Þykir mönnum sem hann sé afar
lítill í samanburði við háa og myndar-
lega flaggstöngina.
í reglugerð settri af dóms- og kirkju-
máiaráðuneytinu þann 1. desember
1965 og er fjallað um íslenzka fánann,
notkun hans og meðferð. Stendur þar í
fyrstu grein:
„Hlutföll fána og stangar. Þegar
fánastöng er fest í jörðu á lengd hennar
að vera fimm sinnum breidd fánans, en
2 1/2 sinnum, standi stöngin skáhallt út
frá húsi.”
Nú hefur DB að vísu ekki mælt fán-
ann né stöngina hjá Flugmálastjórn en
engu að síður er full ástæða til að draga
í efa að fáninn standist það að vera af
réttri stærð á svo stóra stöng sem
stendur á hlaðinu hjá Flugmálastjórn.
-BH.
Flugleikur:
Nýtt íslenzkt
leikrit f rum-
sýnt í London
í vikunni verður frumsýnt í London
nýtt íslenzkt leikrit, Flugleikur, eftir
Brynju Benediktsdóttur, Erling Gísla-
son og Þórunni Sigurðardóttur.
Leikurinn verður frumsýndur fyrir
íslendinga í London en verður síðan
sýndur í Cardiff í Wales í næstu viku.
Leikritið gerist í flugvél á leið til og
frá New York en verkið var unnið í
hópvinnu á vegum Þjóðleikhússins á
siðasta leikári.
Leikendur eru Erlingur Gíslason,
Þórunn Sigurðardóttir, Guðlaug M.
Bjarnadóttir, Lilja Þórisdóttir og
Guðrún Þórðardóttir.
Tónlist er eftir Karl Sighvatsson,
leikmynd og búningar eftir Sigurjón
Jóhannsson, ljósameistari er Kristinn
Daníelsson og stjórn segulbands annast
Geir Óttar.
Leikstjóri er Brynja Benediktsdóttir.
-ÓV.
Flugleikur — í vélinni milli íslands og
New York. DB-mynd Árni Páll.
Kostnaður tæpar
14 milljónir
— við dagskrána
þann sautjánda
Sautjánda júní hátíðahöldin verða
með sígildum hætti nú sem endra-
nær, með nokkrum útúrdúrum þó.
Dagskrá fyrir hádegi sunnudagsins
sautjánda fer fram í gamla kirkju-
garðinum við Suðurgötu þar sem
lagður verður krans á leiði Jóns
Sigurðssonar frá Reykvíkingum. Á
Austurvelli verður athöfn með ávarpi
forsætisráðherra.
Eftir hádegið verður sitthvað um
að vera á fjórum stöðum í bænum, á
Miklatúni, í Laugardal, í Nauthóls-
vík og á Lækjartorgi. Á Miklatúni og
Kjarvalsstöðum mun börnum standa
til boða eitt og annað til dundurs. I
Nauthólsvík verða bátar Siglinga-
klúbbs á floti og á Lækjartorgi verða
skátar með skátasirkus og kassabílaí
gangi.
Klukkan fjögur hefst síðan
skemmtidagskrá fyrir börnin i
miðbænum, með valdri dagskrá. Um
kvöldið verða síðan tveir dansleikir i
Óskandi væri fyrir alla aðila að veðrið yrði jafngott og á þessum „seytjánda” nú
á sunnudaginn.
DB-mynd Sveinn Þorm.
miðbænum, hljómsveit mun leika
fyrir dansi á Hótel-íslands planinu
sem afmarkast af Veltusundi, Vallar-
stræri og Aðalstræti. Á Lækjartorgi
verður hins vegar komið fyrir glym-
skratta og dansað við tónlist úr
honum.
Heildarkostnaður við hátiðahöldin
að þessu sinni er áætlaður 13,7
milljónir. -BH
Veitinga- og gistihúsaeigendur:
■ ■i
„Veitinga- og gistirekstur um
íslenzku landsbyggðina á í vök að
verjast vegna uppbyggingar alls kyns
oriofs-, dvalar- og félagsheimila. Þau
njóta skáttfríðina og eru niðurgreidd
og kostuð af ýmsum hagsmuna-
hópum. Við bætist að Ferðaskrif-
stofu nkísins er með lögum gert að
opna á annan tug sumarhótela sem
flcyta rjómann af ferðamanna-
straumnum en loka dyrum sínum um
leið og dregur úr umferð. Þau ásamt
orlofsbyggðunum hirða tekjur sem
árshóteiunum eru nauðsynlegar til
þess að standa undir taprekstri
vetrarmánaðanna en bera engar
þjónustuskyldur við þá sem erindi
eiga um landið utan sumartima”.
Þannig er komizt að orði í opnu
bréfi stjórnar Sambands veitinga- og
gistihúsaeigenda til Ferðamálasjóðs
ríkisins. Beint tilefni bréfsins er sala
Ferðamálasjóðs á Flókalundi til
verkalýðshreyfingarinnar.
Kveðst stjórn sambandsins harma
„að félagssamtök skuli hafa verið
tekin fram yfir einkareksturinn, að
hótel sem byggt er upp fyrir lán úr
Ferðamálasjóði skuli að nauðsynja-
lausu gert að orlofsheimili. Mála-
myndagerningar þess efnis að
almennur hótelrekstur skuli þar um
alla framtið er marklaus enda hlýtur
slikt að vera andstætt markmiðum og
hagsmunum kaupenda”.
Að lokum segir I opnu bréfi
stjórnarinnar aö sé nauðsynlegt talið
að fá megi húsaskjói og beina árið
um kring þurfi gagngera endur-
skoðun á viöhorfum til einstaklings-
framtaksins og framlagi þess til
hérlendra ferðamála. -GM
STUOLA-SKILRUM er léttur veggur, sem samanstendur af
stuöiimi. hillum og skápum. allt eftir þörfum á hverjum stað.
SVERRIR HALLGRÍMSSON
Smióastofa ''A.Tronuhrauni 5 Simi 51745
DRÁTTARBEIZLI — KERRUR
Fyrirliggjandi — allt el'ni i kerrur
l'yrir þá sem vilja smiða sjállir. beizli
kúlur. tengi fy rir allar teg. bifreiða.
Þórarinn Kristinsson
Klapparstig 8 Simi 28616
(Heima 720871.
MOTOROLA
Alternatorar I bíla og báta, 6/12/24/32 volta.
Platfnulausar transistorkveikjur f flesta bilá.
Haukur Cr Ólafur hf.
Ármúla 32. Simi 37700.
Sumarhús — eignist ódýrt
Teiknivangur
3 möguleikar
1* wByggið sjálf’ kerfið á íslenzku
2. Efní niðursniðið og merkt
3. Tilbúin hús til innréttingar
Ennfremur byggingarteikningar.
Sendum bæklinga. Leitið upplýsinga.
Simar 26155 - 11820 alla daga.
wmuwa
frfálst, úháð dagblað