Dagblaðið - 29.06.1979, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 29.06.1979, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1979. Stórglæsilegur Torinado árg. 75, sjálfskiptur, aflstýri og -bremsur, framhjóladrif, Brougham djúp- bólstruð innrétting, veltistýri, rafknúnar rúður, læsing og skott, Cruise control, loftkæling, útvarp og segulband. Skipti. Einstakur dekurbíll. BÍ laka.MP SKEIFAN 5 — SÍMAR 86010 og 86030 ! !!|i;!|!i HARGREIÐSLUSTOFAN MHUI 4JICAC RAGNHILDUR BJARNADÖTTIR OllVll Z439D hjördIs sturlaugsdóttir Auglýsing um aðalskoðun bifreiða í lögsagnar- umdæmi Reykjavíkur í júlímánuði 1979. Mánudagur 2. júlí R-43201 til R—43400 Þriðjudagur 3. júlí R—43401 til R—43600 Miðvikudagur 4. júlí R—43601 til R—43800 Fimmtudagur 5. júlí R—43801 til R—44900 Föstudagur 6. júlí R—44001 til R—44200 Mánudagur 9. júlí R—44201 til R—44400 Þriðjudagur lO.júlí R—44401 til R—44600 Miðvikudagur ll.júlí R—44601 til R—44800 Fimmtudagur 12. júlí R—44801 til R—45000 Föstudagur 13. júlí R—45001 til R—45200 Bifreiðacigendum ber að koma með bifreiðir sínar til Bifreiðaeftirlits ríkisins, Bíldshöfða 8 og verður skoðun framkvæmd þar alla virka daga kl. 08:00—16:00. Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir því að bifreiðaskattur sé greiddur og vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi. Athygli skal vakin á því, að skráningarnúmer skulu vera vel læsileg. Samkvæmt gildandi reglum skal vera gjald- mælir í leigubifreiðum sem sýnir rétt ökugjald á hverjum tíma. Á leigubifreiðum til mann- flutninga, allt að 8 farþegum, skal vera sér- stakt merki með bókstafnum L. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á auglýstum tíma verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðarlögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar næst. Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum. Lögreglustjórinn í Reykjavík 27. júní 1979 Sigurjón Sigurðsson. HVAÐ SEGIR AFSTRAKTIÐ Um sýningu Karls Kvaran Það er ekki alltaf auðhlaupið að skýra það hvers vegna still eða stíl- brigði koma fram í myndlist og hví þau þykja svo úrelt nokkrum árum seinna. Óhætt er að segja að myndlist breytist ekki að ástæðuiausu, heldur er hún jafnan í viðbragðsstöðu gagn- vart því þjóðfélagi sem hún þrífst í og samsvarar á sinn hátt tíðaranda hverju sinni. Það er misjafnlega auð- velt að sjá hvernig sú samsvörun kemur fram. í hlutlægri list máeinatt greina nokkuð skýra endurspeglun viðhorfa i þjóðfélaginu — hvað telst myndrænt, smekklegt, mikilvægt myndefni o.s.frv. og hvernig ber að meðhöndla þessi atriði. En málið versnar þegar komið er út í óhlut- bundna list. Hvað er það sem frjáls- legt samspil lina og ókennilegir lit- fletir eru að reyna að segja okkur um samtímann? Flótti eða traustsyfirlýsing Til marks um breytilega túlkun á þjóðfélagslegu gildi afstraktlistar, má nefna þau tvö viðhorf sem ríkt hafa varðandi geómetrísku listina sem kom aftur fram að seinni heimsstyrj- öld lokinni. Sumir fræðimenn vilja kalla hana flótta inn í nýja veröld í kjölfar stríðshörmunganna, en aðrir telja að hún hafi verið jákvæð við- leitni og traustsyfirlýsing á ný- sköpun, í anda De Stijl hreyfingar- innar. Allt um það hlutu margir af eldri listamönnum okkar eldskirn sína í þesskonar list, þ.á m. Karl Kvaran sem nú heldur einkasýningu að Kjar- valsstöðum. Aðspurðir vilja þeir ekki segja meira um það tímabil I listinni en það hafi verið bæði krefjandi og spennandi og hafa farið undan í flæmingi þegar reynt hefur verið að herma upp á þá þjóðfélagsleg við- horf. En einhver slík viðhorf í ís- lenzkum samtima hljóta þeir að endurspegla og nú verða aðrir spor- hundar en ég að fara á stúfana. Að halda sínu striki Þessi afstraktlist íslendinga breytt- ist smátt og smátt, varð tilfinninga- legri og frjálslegri, en þegar komið var fram yfir 1960 fór að heyrast baul yngri manna sem sögðu þessa list hafa gengið sér til húðar — hún kynni ekki að bregðast við nýjum tima. Það átti Poppið, konseptið, Fluxus o.fl o.fl. aftur á móti að gera. Sumir afstraktmanna urðu bitrir, aðrir tóku upp nýja starfsháttu og enn fleiri héldu sinu striki. Einn af þeim siðastnefndu er Karl Kvaran. Hann hefur til þessa dags unnið ein- arðlega að rökréttu framhaldi þeirra hugmynda sem hann lagði grundvöll að fyrir aldarfjórðungi. Að visu átti Þorvaldur Skúlason (og á enn) tals- vert í því myndmáli sem Karl tamdi sér og síðar kom t.d. Richard Mortensen til sögunnar, en á siðustu fimm til sjö árum hefur Karl gefið þessari list sinni nýja og persónulega vídd sem hlýtur að vera með þvi merkilegra sem gert hefur verið á þessu sviði, hér sem annars staðar.Er þettasvo úrelt list? Klassísk á köflum Sjálfur skal ég fúslega viðurkenna að myndlist af þessu tagi höfðar ekki til mín á sama hátt og fyrir nokkrum árum, en það er jú mitt mál. Sömu- leiðis finnst mér að i samtimanum riki margs konar viðhorf sem nýrri hræringar taki meira tillit til en þessi fágaða myndlist Karls. En þar sem hún tekst best er hún boðberi sam- ræmis, lifsgleði og munúðar og þá erum við sennilega komin út í skil- greiningu á fyrirbærinu „klassík” Myndlist AÐALSTEINN INGÓLFSSON — i Garðssjó, olía Kvaran En slíka klassík skapar Karl ekki átakalaust. Ég hef t.d. aldrei verið sannfærður um ágæti litaskyns hans og mér hefur satt að segja fundist margar litasamsetningar hans afar grófar og tilviljunarkenndar. Hæfi- leikar Karls liggja kannski fyrst og fremst á sviði teikningar (í víðum skilningi) og það er í sviðsetningu sveigðra, hvelfdra og spenntra lína sem hann er í essinu sínu. Liturinn kemur svo eftir á, til uppfyllingar milli línanna.- En þessi teikning á það einnig til að fara úr böndunum. Myndir eins og nr. 22, 33, 35, 37 og 38 eru einum of æsilegar í dráttum og mikill hávaði myndast þegar línurnar skella saman. En nóta bene, þar sem teikning er stillileg og yfirveguð og litirnir styðja hvern annan — þar gerast undursam- legir atburðir í málverki Karls Kvaran. Þetta gerist t.d. í nýjum myndum eins og Guðný, í Garðssjó og Veikir tónar. Áhrifin minna um margt á siðustu og stærstu klippi- myndir Henri Matisse (t.d. „L’Escargot”), sem boða stillingu og unað. En þá eru frekari gullhamrar líka óþarfir.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.