Dagblaðið - 29.09.1979, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 29.09.1979, Blaðsíða 13
Gestur hugsar sem fyrr i mössum. Sigrún skreytir massana af þeirri áreynslulausu lipurð sem alþjóð þekkir hana að, teiknar dreymna pró- t'ila og óminnislönd. Megi þau öll þrífast og dafna. Annars konar listiðnaður var til sýnis á göngum Kjarvalsstaða til skamms tíma, frá Khazakstan lýð- veldinu í Sovét. Margt virtist þar af austurlenskum uppruna, — smá- mynstur, skrautlitir og formleikir, og skortir mig þekkingu til að segja neitt af viti um marga gripi sem þar voru. Blekaðir svampar Hins vegar komu myndir Viktors Prokoffieffs mér mjög á óvart. Lista- maður þessi er sérvitringur svo mikill að hann kýs fremur að beita hugar- flugi og hyggjuviti í túlkun íslend- ingasagna en að hylla nýjustu fimm ára áætlanir i heimalandi sinu. Fyrir það ku hann eiga erfitt uppdráttar, fær t.d. ekki inngöngu i FÍM þeirra Sovétmanna. En illústratör er Prokoffieff þessi af guðs náð og er hollt fyrir okkur sem vön erum dá- lítið einhæfri og staðlaðri túlkun á fornsögum vorum að skoða hand- bragð hans. Ekki tókst mér að grafa upp hvers konar tækni hann notar, en beiting á blekuðum svömpum virðist koma inn í spilið á frumstigi, ásamt með blýanti, en hægðarleikur ætti að vera að yfirfæra þær aðferðir á steina til þrykks. Út úr þessu koma Gestur og Rúna F.pal. — munir á sýningu í Tískufatnað ■ ip Hljómtæki Hljómplötur Gjafavörur .. Skyndimat.. . Snyrtivörur ... Skemmtanir .... 5 Drykkjarvörur .... Sælgæti.......... Talaðu þá beint við fólkið sem notar vöruna. Þú nærð til þess í VIKUNNI, mest lesna tímariti á íslandi. :: Sértu að bjóða það sem fólkið í landinu raunverulega vill og á verði og/eða greiðslukjörum sem því líkar, þá færð þú auðvitað viðskiptin. *Skv. fjölmiðla könnun Hagvangs og Sambands ísl. auglýsingastofa. Nú hafa ýmsar verslanir tekið upp á þeim góða sið að kynna listamenn og ættu slíkar kynningar að geta verið báðum aðilum til góða svo og kúnnum. í næsta nágrenni við DB, i Blaðsíðumúlanum miðjum, er versl- unin Epal sem getur státað sig af sér- hönnuðum húsgögnum, áklæði og innréttingum. Þar stendur nú yfir kynning, sú fyrsta af mörgum, á vel þekktu tríói úr listiðnaði, Gesti Þor- grímssyni, Rúnu og hjálparkokki þeirra, Guðnýju Magnúsdóttur, og munu leirmunir þeirra liggja frammi til sýnis fram í fyrstu viku október- mánaðar. Það er eiginlega að bera i bakkafullan lækinn að ætla sér að segja eitthvað um þessa listfengu leir- kerasmiði, svo vel þekkt og kynnt eru þau og kannski ekki þörf á að kynna þau þess vegna — en engu að siður er alltaf gott að vita af vandaðri vinnu i námunda við sig. Þau Gestur og Rúna eru trú sinni köllun, hafa ræktað garðinn sinn um áraraðir og ekki líkleg til að stíga nein hliðar- og vbdspor úr þessu. Guðný hefur margt lært af þeim, fer sér hægt i kúnstinni en kemst þó hægt fari. Helst er það í skreytingum sem hún sker sig úr, glerjar á sinn hátt og á sér uppáhaldsmynstur. Nú er hún á leið til Skotlands og verður spenn- andi að sjá hvað Skotar geta gert fyrir keramík hennar. miklar, formin teygð á ýmsa vegu og stilfærð, en þó er óbreyttur frum- kraftur sagnanna og hófstilla. Nú ætti einhver aðili innlendur að fá Prokoffieff þessum önnur verk- efni sömu gerðar, bókaskreytingu eða eitthvað annað, því ekki eru á hverju strái menn með tilfinningu fyrir myndgildi íslendingasagna. N. Prokoffieff — myndskreyting við Fgils sögu. DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1979 T —T Myndlist I TRÍÓOG EINLEIKUR myndir með annarri hrynjandi en við rekumst venjulega á, ýkjur eru X GYLMIR * G&H 9.5

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.