Dagblaðið - 31.10.1979, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 31.10.1979, Blaðsíða 12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1979. Aldursmunurinn er sextíu ár —en stemmningin fín hjá Leifi Kaldal og félögum V „Ég er fæddur á hinni öldinni, árið 1898,” segir Leifur Kaldal, elsti starf- andi gullsmiður á landinu og af því tilefni sérstakur heiðursgestur á sýn- ingu Gullsmiðafélagsins sem hefst í Bogasalnum um næstu helgi. Hann byrjaði að læra árið 1915 hjá Baldvin Björnssyni. ,,Í þá daga gekk maður með gúmmíflibba, vann við gasljós og byrjaði á því að sópa gólfið og kveikja upp i kolaofninum þegar maður kom i vinnuna á morgnana.” Leifur hefur smíðað kjörgripi handa kóngafólki víða um heim, þar á meðal handa þremur Danadrottn- ingum. En hann er tregur til að tala um það enda er liann í fyrsta lagi jafnhlédrægur og hann er listfengur og í öðru Iagi segir hann að kóngar eigi alltof mikið af stássi. ,,Ég mundi heldur vilja smíða fyrir fátrékt fólk en það hefur sjaldan ráð á að kaupa.” Verkstæði hans er að Þingholts- stræti 6, en ekki er hann þar einn að bauka heldur vinna ásamt honum fjórir aðrir gullsmiðir. Yngst er Helga Baldursdóttir sem enn er lær- lingur en bráðsnjöll við víravirkið. Hún er líka i söngskólanum enda var Sigurður Skagfield móðurafi hennar. Næstyngstur er Haukur Björnsson leturgrafari. Hann er potturinn og pannan í sýningunni sem framundan er. Bæði Helga.og'Haukur hafa lært hjá Paul en hann lærði aftur hjá Leifi fyrir 25 árum. „Upp frá þvi hefur hann setið uppi með mig,” segir Paul sem er mikill söngmaður, eins og læridóttir hans. Ot> einn af stnfnenH- um Kirkjukórs Bústaðakirkju. Fjórði gullsmiðurinn er Þorgrímur Á. Jóns- son og hafa þeir Leifur unnið saman í hvorki meira né minna en fimmtíu ár! „Ég byrjaði að læra hjá Árna Björnssyni I. mars 1929,” segir Þor- grímur, ,,og þar var Leifur fyrir en löngu orðinn prófessor i iðninni.” Hvað með kynslóðabilið? Þau virðast öll verafjarska góð hvert við annað þótt aldursmunurinn spanni sextíu ár — en Haukur og Helga segjast ekki geta vanið Leif á poppmúsíkina svo vel sé. ,,Ég vil heldur hlusta á kvalinn kött,” segir Leifur brosandi, „og ég er alveg sammála honum Kristjáni Albertssyni sem skrifaði í blöðin um daginn að fábjánamúsik væri pumpað inn í fólk með valdi . . .” „Ég er alveg hissa á þér,” segir Haukur, „varst þú ekki Travolta bæjarins á árunum upp úr 1920?” „í guðanna bænum . . .” segir Leifur og vill enn síður tala um afrek sín á dansgólfinu en smiðarnar fyrir kóngafólkið. En það leikur mjög sterkur grunur á því að hann hafi tekið þátt i dans- sýningum hjá Ástu Norðmann í Gamla biái;'sem þá var helsta sam- komuhús bæjarins, og vakið þar aðdáun fyrir fagran limaburð. ,,Þú mundir vinna í hæfileika- keppni DB eins og skot,” segir Haukur. Til að leiða talið burt frá sjálfum Leifur Kaldal er læriafi Helgu Baldursdóttur. Aldursmunurinn er sextiu ár en samkomulagið fint. „Þegar hún tekur læriing verð ég lærilangafi,” segir Leifur. DB-myndir: Hörður. Lærlingar hjá Baldvin Björnssyni gullsmið veturinn 1917—18: Leifur Kaldal t.v. og Guðmundur Jósepsson t.h. Takið eftir gasluktinni. inga Huld Hákonardóttir sér fer Leifur að segja okkur frá menningarbragnum á gullsmíðaverk- stæði Árna Björnssonar serh í fjölda- mörg ár stóð á horninu á Lækjargötu og Austurstræti. „Þar unnum við allt upp i átta manns og þar var glatt á hjalla. María Markan var vinkona okkar allra og kom öðru hvoru að syngja fyrir okkur. Stefán íslandi var líka oft á ferð.” „Já, ég gleymi aldrei upplitinu á honum þegar ég kom syngjandi upp stigann,” segir Þorgrímur, „honum fundust það vist ekki falleg hljóð.” „Á hverjum degi kom til okkar gömul kona,” segir Leifur, „sem hét Guðrún og var systir skáldsins Páls á Hjálmsstöðum. Hún var hagmæll lika og hitaði okkur kaffi og las fyrir okkurúr íslendingasögunum.” Fjörugur vinnustaður „Fyrir ofan okkur var fyrstu árin mötuneyti stúdenta, Mensa aca- demica,” segir Þorgrímur. „Þar voru fallegar stúlkur. Við kölluðum þær fögrum nöfnum; Monu Lisu, Karinu Bell og sitthvað fleira, og öðru hvoru komu þær með pönnukökur og Gullsmiðirnir f Þingholtsstræti 6. Frá vinstri: Leifur Kaldal, Helga Baldursdðttir, Haukur Björnsson og Þorgrímur Á. Jónsson. Sá fimmti, Paul Oddgeirsson, var að syngja við jarðarför en öll eru þau mjög söngelsk þótt raddir og tónlistarsmekkur séu mismunandi. Þegar við prófum brennisteinssýruna rekum við puttann ofan i og sleikjum. Hún á að vera eins og þykk sætsúpa, þá er hún rétt,” segir Paul Oddgeirs- son og mundar tangirnar. súkkulaði til okkar. Hugsaðu þér hvað okkur leið þá vel.” „Tvisvar leigðum við Iðnó og höfðum skemmtanir,” segir Leifur, „fengum Mariu Markan til að syngja, Friðfinn Guðjónsson leikara til að lesa upp og Svía að nafni West- lund til að sýna töfrabrögð. Á eftir var dansað, vals og tangó, Áge Lorange spilaði minnir mig undir á píanó.” Svona ættu allir vinnustaðir að vera. Leifur heldur áfram: „Árni hafði mjög gaman af skák og þegar góður taflmaður kom inn i búðina var hann dreginn inn á verkstæðið og látinn tefla við okkur." „Unnuð þið nokkurn tímann nokkuð?” spyr ég. „Það gat skeð að við yrðum að vinna á næturnar,” segir Þorgrímur, „en oft var andskoti gaman.” „Við fórum lika i gönguferðir,” segir Leifur. „Einu sinni úr Hafnar- firði til Krýsuvíkur og austur að Strandarkirkju og áfram upp að Kömbum þar sem við fengum bíl í bæinn. Öðru sinni gengum við frá Þingvöllum upp að Geysi.” „Þá voru afmælin ekki slök,” segir Þorgrímur og Ijómar við til- hugsunina um tertur og brennivín.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.