Dagblaðið - 04.12.1979, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 04.12.1979, Blaðsíða 28
Steingrímur næsti forsætisráðherra: MIKIL ÓVISSA UM SDÓRNARMYNDUN —engin augJ jós stjórn í augsýn Stjórnarmyndun nú að loknum iega saman til fundar innan tíðar og kosningum gasti orðið erfið. Minni- að öllum líkindum ekki síðar en hinn hlutastjórn Alþýðuflokksins situr þar 10. desemoer. til önnur stjórn hefur verið mynduð. Það er fræðilegur möguleiki á því, Til þess þarf hún enn um sinn að að stjórn Alþýðuflokksins sitji áfram njóta stuðnings Sjálfstæðisflokksins. um sinn með stuðningi Sjálfstæðis- Gegn viija Sjálfstæðisflokks og án flokksins. Án frekari stuðnings stuðnings hans getur stjórnin ekki kemur hún þó ekki fram málum á setið, nema hún fengi í stað hans Alþingi vegna veikrar stöðu í deildum stuðning bæði Alþýðubandalags og og naums meirihluta þingmanna. Framsóknarflokks. Steingrímur Hermannsson, for- Nýkjörið Alþingi kemur væntan- maður Framsóknarflokksins og sigurvegari kosninganna, lýsti yfir þeirri skoðun fyrir kosningarnar að vinstri stjórn bæri að mynda ef þing- styrkur yrði til þess. Slík stjórn hefur tryggan meirihluta á þingi, eins og úr- slit kosninganna liggja fyrir. Annar möguleiki er myndun stjórnar Framsóknarflokks og Sjálf- stæðisflokks. í hvorri stjórnarmynd- un sem ofan á yrði er Steingrímur Hermannsson næstum því sjálfkjör- inn forsætisráðherra. Stjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks, viðreisnarstjórn, kemur til tals. Talið er að forystu- menn þessara flokka gætu vel hugsað sér slíka stjórn. Hún stæðist ekki nema með stuðningi Eggerts Hauk- dal og þá naumlega. Vel má veita upp fleiri mögu- leikum. Hitt er' alveg ljóst að stjórnarmyndun gæti orðið tafsöm, hvernig sem hún yrði saman sett. -BS. Vodaverk í Reykjavík: Varð móður sinni að bana með kertastjaka Ungur maður, 25 ára, varð í gær 66 ára gamalli móður sinni að bana. Þykir víst að hann hafi barið hana í höfuðið með kertastjaka, en með stjakann var ungi maðurinn er að var komið. Atburðurinn varð skömmu eftir kl. 16.30 í fjölbýlishúsinu Æsufelli 4 í efra Breiðholti, en þar hefur ungi maðurinn búiö hjá móður sinni. Hin látna kom kápuklædd í húsið rétt áður en atburðinn átti sér stað. Mætti hún nágrannakonu á stiga- ganginum og varð sú kona vitni að því að ungi maðurinn opnaði íbúðar- dyr þeirra mæðgina er konan kom að dyrum sínum, tók í hönd hennar og kippti henni inn í íbúðarforstofuna. í sömu andrá og hurðin féll að stöfum heyrðust óp. Kallaði vitnið þegar á hjálp lögreglu og litlu síðar fór maður úr húsinu og annar nágranni inn í ibúöina. Lá þá konan þar á gólfi með mikla áverka á höfði og reyndist látin er lögreglu bar að. Maðurinn sat á stól í forstofunni með stjakann í hendinni. Ungi maðurinn hefur átt við geðrænan sjúkdóm að stríða. Hann hefur enn ekki verið yfirheyrður. A.St. Srjálst, úháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 4. DES. 1979. 3177 auð og ógild atkvæði Nokkru meira var um það i kosningum nú að kjósendur skiiuðu auðum kjörseðlum, en þó ekki svo að bylting gæti kallazt. Tala auðra og ógildra atkvæða var sem hér segir. í svigum tölur frá í fyrra: Reykjavik 1262 (753) Reykjanes 693 (345) Vesturland 252 (168) Vestfirðir 112 (107) Norðurl. v. 156 (105) Norðurl.e. 286 (284) Austurland 149 (235) Suðurland 267 (247) Samtals eru auð og ógild atkvæði nú3177 en voru 1 fyrra2244. -A.St. 3 konur landskjömar: Hlutur kvenna á þingi enn lakari enáður 1 Meðal kjördæmakjörinná þing- manna er að þessu sinni ekki að finna eina einustu konu. Á síöasta þingi sátu þrjár konur, allar kjördæma- kjörnar. Nú náðu þrjár konur lands- kjöri inn á þing: Salóme Þorkels- dóttir frá Sjálfstæðisfiokki, Guörún Helgadóttir frá Alþýðubandalagi og 'Jóhanna Sigurðardóttir frá Alþýðu- flokki: Salóme og Guðrún eru nýliðar á þingi, en Jóhanna var fyrst kjörin 1978. Ragnhildur Helgadóttir frá Sjálfstæðisflokki var næst því að vinna þingsæti af þcim fáu konum öðrum sem skipuöu efstu sæti lista flokkanna. Nú sem áöur eru allar þingkon- urnarí Reykjavikurkjördæmi. Karlar einoka öll önnur kjördæmi. Hlutur kvenna á þingi er því enn lakari en áður, og var hann þó lakur fyrir. Sigurvegari kosninganna, Framsóknarflokkurinn, teflir ekki fram konu á þingi. Þar er karlveldið I hávegum haft. -ARH. Ekki dugiraö gráta útkomuna Það þýðir ekkert að vera að súta útkomuna. Fyrst menn eru komnir I Þórskqffiþýðir ekkert annað en að skemmta sér. Myndin var tekin ú kosningaskemmtun Alþýðuflokksins í nótt og var léttyfir mönnum, þrútt fyrir fylgistap ogfœrri þingmenn Alþýðuflokks. 1 viðtali við Jón Baldvin Hannibals- son, 4. mann ú lista flokksins I Reykjavtk, kemur fram að hann telurfylgi Alþýöuflokksins nú hqfa jafhazt ogfylgi hans nú séfastafylgi. -JH/DB-mynd: Ragnar Th. GuðmundurG. Þórarinsson: „Reynaá nýja vinstri stjóm” „Framsóknarmenn eru ákaflega ánægðir með útkomuna í kosningun- um,” sagði Guðmundur G. Þórarins- son, 12. þingmaður Reykvíkinga, í nótt. „Við fundum það að byrinn var með okkur og það var létt að vinna. Margt fólk auðveldaði störfin. Ég vona að við berum gæfu til þess að nýta þennan sigur til gagns fyrir land og þjóð. Við sögðum það alltaf fyrir kosningar að erfitt yrði að mynda stjórn eftir kosningarnar, en það er mín skoðun að hinir sömu þrír flokkar, sem mynduðu síðustu stjórn, eigi að reyna aftur.” -JH. t Kosningaspá DB réttari en Vísis Kosningaspá DB reyndist í meira samræmi við niðurstöður kosninganna heldur en spá Vísis. Frávik í DB spánni var að meðaltali 3% en hjá Vísi 4%. DB spáði Alþýðuflokki 14,4% atkvæða en Vísir 15%. Framsóknar- flokki spáði DB 22,3% en Vísir 20%. Frávik beggja spánna varð mest hvað varðaði Sjálfstæðisflokkinn. DB spáði honum 41,9% en Vísir 44%. Alþýðu- bandalaginu spáði DB 19% en Vísir 17%. Spá DB um gengi lista þeirra Eggerts Haukdal og Jóns Sólnes reyndist rétt. í Vísi var þeirri spurningu látið ósvarað. -ÓG. Svalbarðsströnd: Ungur mað- ur varð úti Jón Þór Egilsson, 22ára gamall, varð úti á Svalbarðsströnd um helgina. Jón var til heimilis að Syðri-Varögjá. Jón fór að heiman á bíl sinum á laugardags- morgun. Þegar hann kom ekki fram var farið að grennslast eftir honum. Bill Jóns fannst um hádegi á sunnudag mannlaus og læstur á þjóðveginum hjá Geldingsárbrú og lík Jóns skamman spöl frá. Slæmt veður var á þessum slóðum um helgina. Félagar i Hjálparsveit skáta og Flugbjörgunarsveitinni á Akureyri tóku þátt 1 leitinni og einnig menn af Svalbarösströnd og úr önguls- staðahreppi. -JH. t t t t t t i i i i i i \ I

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.