Dagblaðið - 04.01.1980, Blaðsíða 1
6. ÁRG. — FÖSTUDAGLR 4. JANÚAR 1980 — 3. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMI 27022.
Skæruverkfóll flugmanna
í fyrra kostudu300millj.
— segir Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða ., , ,.. e
Fjölmennir
flokkar leita
týnda
mannsins
Leit að Baldri Baldurssyni, Torfu-
felli 24, hefur enn engan árangur
borið. Magnús Einarsson aðstoðar-
yfirlögreglubjónn hefur stjórn
leitarinnar með höndum og hafa
sveitir lögreglumanna, SVFÍ, hópar
úr Flugbjörgunarsveitinni og skátar
leitað á auðum svæðum í Reykjavík
og í gær og á miðvikudag var farið á
bátum SVFÍ með fjörum. Verður
þeirri leit haldið áfram í dag.
Baldur sást siðast að kvöldi 20.
desember í Klúbbnum. Þar varð hann
viðskila við félaga sína og hefur
ekkert til hans spurzt síðan. Leitað
hefur verið daglega síðan 23.
desember að Baldri.
Að sögn Magnúsar hófst leitin út
frá Klúbbnum og hafa leitarsvaeði
síðan daglega verið stækkuð. Leit
verður haldið áfram um helgina með
fjölmennum flokkum. -A.Sl.
m ->
Froskmenn frá Slysavarnafélaginu
leituðu í gær í sjónum undan Borgar-
túni en þar sást Baldur Baldursson
síðast.
DB-mynd: Ragnar Th.
A
„Heimsstyrjaldarástand”
í efnahagsmálunum:
VERDBÓLGAN 79
TÆP 60 PRÓSENT
— sjá bls. 5
EIMSKIPAFELAGIÐ
KAUPIR TVÖ SKIPA-
FÉLÖG SAMTÍMIS
Samningar hafa tekizt um, að
Eimskipafélag Islands hf. yfirtaki
Bifröst hf., ms. Bifröst, og islenzk
kaupskiphf., ms. Berglind.
i megindráttum eru samningar
Eimskips annars vegar og hinna
tveggja skipafélaga hins vegar á
þann veg, aö Eimskipafélagið hf.
kaupir hlutabréf Bifrastar hf. og
íslenzkra kaupskipa hf., og þannig
eignir félaganna. Jafnframt yfirtekur
Eimskipafélagið skuldir þcirra.
Þrátt fyrir að þetta samkomulag
hefur verið gert staðfest og bindandi
milli aðila, eru einhverjir endar ófrá-
gengnir. -BS.
Póstránið í Sandgerði:
„ÉG SA ÚLPUKLÆDD-
AN MANN HRAÐA
SÉR UPP ÚR BÆNUM”
segir Elís Bjömsson gröfustjórí í Sandgerði — aðeins leið um
hálftími þar til lögreglan vissi um ferðir úlpumannsins
„Ég sá úlpuklæddan mann koma
fram hjá Miðnesi og sjoppunni og
hann hraðaði sér upp Brekkustíg-
inn,” sagði Elis Björnsson gröfu-
stjóri i Sandgerði i morgun. Elís telur
sig hafa séð mann koma leiðina frá
pósthúsinu í Sandgerði á miðviku-
dagsmorgun á milli kl. 8.30 og 9 eða í
þann mund er póstránið var framið
og póstmeistarinn sleginn niður.
,,Hann var úlpuklæddur og með
hettuna yfir haus og með hendur i
vösum,” sagði Elís. Ég sá ekki
framan í hann og get því ekki sagt
hvort hann var ungur eða gamall. Ég
var þarna við snjómokstur og upp úr
kl. 9 um morguninn kom lögreglan til
mín og spurði hvort ég hefði orðið
var mannaferða. Ég sagði þeim frá
þessum manni, en ég hafði ekki sett
hans ferðir i samband við fyrra póst-
ránið.
En það sem vakti athygli mina var
það að hann hraðaði sér upp Brekku-
stiginn og út úr bænum i stað þess að
fara ofan að sjónum og frystihúsun-
um eins og eðlilegt hefði verið á
þessum tíma dags. Ég sá manninn
ekki ganga að bíl, en bill kann þó að
hafa beðið hans við samkomuhúsið
án þess að ég sæi það. Það hefur hins
vegar ekki liðið meira en hálftími frá
því að ég sá hann og þar til lögreglan
talaði við mig,” sagði Elís.
Samkvæmt upplýsingum rann-
sóknarlögreglunnar í morgun hefur
enn ekki tekizt að hafa upp á póst-
ræningjanum.
-JH.