Dagblaðið - 07.01.1980, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 07.01.1980, Blaðsíða 1
Ge/r leggur efnahagsmálatillögur fyrir hina tiokkana: 6. ÁRG. — MÁNliDAGUR 7. JANÚAR 1980 — 5. TBU. RITSTJÓRN SÍÐÚMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 11.—AÐALSÍMI 27022. : “ VISITALAN UR SAMBANDI T1L FYRSTA SEPTEMBER — eða frestun 15 vísitölustiga til þess tíma — láglaunafólki bætt með neikvæðum tekjuskatti — fíokkamir biðja um skýrari tillögur Sjálfstæðismenn lögðu um helgina tillögur i efnahagsmálum fyrir hina flokkana. Höfundur þeirra mun aðallega vera Jónas H. Haralz bankastjóri. Tveir „valkostir” eru þar gefnir. Annars vegar að vísitalan verði tekin úr sambandi fram til I. september og verðbótum á laun I.frestað” til þess tima. Hinn kostur- inn sem sjálfstæðismenn gefa er sá, að 15 visitöiustigum i verðbótum verði frestaðtil 1. september. Þetta þýddi að verðbótahækkun kæmi ekki á kaupið 1. marz og 1. júni. Bæta á hinum tekjulægstu þennan missi verðbóta með „neikvæðum tekjuskatti”, það er að segja bótum úr rikissjóði til þeirra sem hafa tekjur innan ákveðinna marka. Mönnum reiknast til, að þetta gæti kostað rikissjóð allt að 30 milljarða króna á árinu. Sjálfstæðismenn hafa enn ekki lagt fram itarlegar tillögur um hvemig þessa fjár skuli aflað. Þjóðhagsstofnun reiknar nú þessar hugmyndir sjálfstæðismanna Ul að finna, hvað þær þýði i verðbólgu og skerðingu kaupmáttar. Tillögurnar eru enn ekki vel útfærðar en búizt er við að þær verði settar fram skýrar í dag. Fulltrúar hinna flokkanna báðu sjálfstæðismenn um skýrari tillögur en visuðu þvi sem fram kom ekki al- fariðábug. -HH Lögreglumenn meiddust í átökum Unglingar stöðvuðu umferð um Ölfusárbrú um tíma Fjórir lögreglumenn meiddust, þar af einn illa á auga, er unglingar á Selfossi gerðu aðsúg að lögreglunni i nótt. Unglingarnir höfðu safnazt saman við Ölfusárbrú um kl. eitt eftir miðnætti, að ioknum hljómleikum í iþróttahöllinni og hugðust loka brúnni með alls kyns drasli. Þeim tókst að stöðva umferð um brúna um tíma. Er lögreglan kom á staðinn tíl að greiða fyrir umferðinni rifu krakkamir upp klakastykki og hentu að henni. Stóð skæðadrifan á lögreglumennina langa hrið með þeim afleiðingum að fjórir meidust. Til að hindra umferðina náðu ungling- arnir i kerrur hjá kaupfélaginu og mótatimbur úr nýbyggingu Selfossbíós. Er haugurinn var kominn á brúar- sporðinn var bensini heUt yfir og átti að 77/ að hindra að hægt yrði að kveikja i kestinum settist húsvörður kaup- fólagsins i miðja hrúguna og bauð krökkunum síðan að kveikja i sér efþau þyrðu. Með þessu móti tókst honum að forða tveim kerrum frá kaupfólaginu frá eyðHeggmgu. kveikja i. Húsvörður kaupfélagsins hindraði íkveikjuna með þvi að setjast í olíublauta hrúguna. Síðan bauð hann krökkunum að kveikja í sé ef þau þyrðu. Eftir að búið var að ryðja hindrun- inni i burt einu sinni fór iögreglan á brott með nokkra ólátaseggi. Krakk- arnir hófust þegar handa við að hlaða nýjan haug. Eftir að lögreglan var farin var hins vegar allur spenningur búinn og leystist samkundan brátt upp. Að sögn Jóns Guðmundssonar yfir- lögregluþjóns á Selfossi er það fastur liður á þrettándanum að unglingar taki upp á þvi að hindra umferð um Ölfus- árbrú. Hann kvað aðgerðimar í gær- kvöld hafa verið með versta móti. -ÁT- Þrettándaólæti á Selfossi í nótt Harðar deilur íVerkamanna- sambandinu „Kjaramálaráðstefna Verka- mannasambandsins samþykkti að á öll laun fyrir neðan og að kr. 300 þús. skyldu greiðast sömu visitölubætur og á 300 þúsund króna laun,” sagði Guðmundur J. Guðmundsson, for- maður Verkamánnasambandsins i viðtali við DB. Hann kvað umræður hafa verið harðar á köflum en mál- efnalegar. Hefðu menn ekki skipzt i afstöðu sinni til málefna eftir hörðum flokkspólitískum linum. Fram hefði komið uppsöfnuð óánægja til margra ára, sem engan veginn væri bundin flokkasjónarmið- um. Tillaga Var borin upp um að fella niður tvo lægstu taxtana en kaup- hækkanir yrðu stiglækkandi í áföng- um. Þá var lagt til að áherzla yrði lögð á ýmsar félagslegar úrbætur. Sú tillaga var felld, einkum vegna þess að hún þótti ekki nægilega skýrt mörkuö til framkvæmda. Til viðbótar samþykktinni um sömu krónutöluhækkun á laun upp að 300 þúsundum var samþykkt að prósentuhækkun yrði á laun milli 3 og 400 þúsund, en sú krónutölu- hækkun kæmi ofan á laun sem væru yfir 400 þúsundum. Áherzla var lögð á að fulltrúar sem yrðu einnig á kjaramálaráðstefnu ASÍ hvikuðu ekki frá þessum sam- þykktum þar. „Það hefur verið okkar stefna, og er enn, að hlutfallslegar verðbætur komi á öll laun. Þessi ályktun Verka- mannasambandsins er i algerri and- stöðu við þau sjónarmið,” sagði Þor- steinn Pálsson, forstjóri Vinnuveit- endasambands íslands i viðtali við DB. „Þessi samþykkt bendir ef til vill fyrst og fremst til þess að ASÍ sé klofið i sinni stefnumörkun i launa- málum,” sagði Þorsteinn. -BS Stórsigur Indiru Gandhi — sjá erl. fréttír bls. 8-9 HÆTTIR JÓHANN INGI SEM LANDSUDSEINVALDUR? — sjá íþróttír bls. 15-18

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.