Dagblaðið - 08.01.1980, Blaðsíða 1
6. ÁRGi — ÞRIDJUDAGUR 8. JANÚAR 1980 — 6. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMI 27022.
Harmleikurmn um boró í Tý:
„VERÐUR EKKISKYRÐUR
MED NOKKRUM RÖKUM
— segir Jón Magnússon, lögfræðingur Landhelgisgæzlunnar
ff
,,Hinn óhugnanlegi atburður sem
varð um borð í varðskipinu Tý upp
úr kl. níu í gærmorgun verður ekki
skýrður með nokkrum rökum og í
fljótu bragði finnst ekkert sem bendir
til að ástæða eða upphaf harmleiks-
ins hafi orðið til eftir að Týr lét síðast
úr höfn í Reykjavík, sl. föstudag.”
Á þessa leið fórust Jóni Magnús-
syni, lögfræðingi Landhelgisgæzl-
unnar, orð er hann ræddi við frétta-
menn á Akureyri í gærkvöldi. Þá og í
alla nótt — og enn í morgun — var
lögregluvörður við skipið við Torfu-
nesbryggju á Akureyri, sem meinaði
öll samtöl og samskipti við skipverja.
Þeim var og meinuð landganga,
nema rétt til að hafa nauðsynlegasta
samband við sína nánustu og þá helzt
um síma lögreglustöðvarinnar.
Þeir sem létu lífið fyrir hnífsstung-
unum voru Jóhannes Olsen, 21 árs
háseti, sem starfað hefur i Gæzlunni
síðan 1976, og Einar Óli Guðfinns-
son, 18 ára viðvaningur, sem starfað
hefur í Gæzlunni síðan í ársbyrjun
1979. Jón D. Guðmundsson, þriðji
vélstjóri á Tý, sá er varð félögum sín-
um að bana og hvarf síðan og er tal-
inn af, var 32 ára gamall. Hinir látnu
voru allir Reykvikingar, Jóhannes og
Einar Óli ókvæntir og bjuggu í for-
eldrahúsum en Jón fjölskyldumaður.
- GAJ / A.St. Akureyri.
— sjá nánar á baksíöu
Dularfull rödd hríngdi til Dagblaðsins:
„Skjöldurinn
eráleiðiJóns
Sigurðssonar”
— DB fann þjóðfundarskjöldinn, sem
stolið var af MR
Dularfull rödd hringdi í Dagblaðið
á sjöunda tímanum í gærkvöldi og
sagði: „Jóns Sigurðssonar skjöldur-
inn, sem stolið var af húsi Mennta-
skólans í Reykjavík, er á leiði Jóns
Sigurðssonar í gamla kirkjugarðin-
um.” Þar með var því símtali lokið.
Efagjörnum blaðamanni þótti sím-
tal þetta einkennilegt en þó var viss-
ara að kanna hvað þarna bjó að baki.
Því var hringt í Guðna Guðmunds-
son, rektor Menntaskólans, og spurt
hvort hann saknaði skjaldar. Jú,
mikið rétt, þjóðfundarskjöldurinn til
minningar um þjóðfundinn 1851 var
horfinn og hafði rektor tilkynnt það
lögreglu. Skjöldurinn hefur verið við
fordyr skólahússins sl. tæpa þrjá ára-
tugi eða frá árinu 1951.
Nú lifnaði heldur yfir spæjurum
Dagblaðsins. Blaðamaður og Ijós-
myndari vopnaðir myndavélum
lögðu af stað og könnuðu gamla
kirkjugarðinn í skjóli myrkurs.
Þar blasti skjöldurinn við og á
honum bréf, stílað á Dagblaðið.
Spæjarar DB mundu það úr glæpa-
þáttum sjónvarpsins að notaðir eru
hanskar þegar slík bréf eru könnuð.
Því var leitað i bílnum og fannst þar
einn hanzki og ullarvettlingur og
voru þeir notaðir við rannsóknina.
Bréfið var undirritað af „Vakn-
ingarmönnum” og i umslaginu var
mynd af tveimur úlpuklæddum
mönnum við stuld skjaldarins. í bréf-
inu sagði að stuldur skjaldarins væri
ekki sjúklegt gerræði heldur mót-
mæli gegn rótleysi og glæpum i þjóð-
félaginu.
Mótmælt var ofríki Guðna rektors
í MR og greint frá því að nú skorti
föðurlega festu í anda Jóns Sigurðs-
sonar. Bent er á að föðurlegt einræði
sé eina lausnin. Ýmsu öðru var mót-
mælt í bréfinu.
Dagblaðsmenn héldu að sjálfsögðu
á fund lögreglu og tilkynntu um at-
burðinn. Lögreglan lét rannsóknar-
lögregluna vita, sem tekið hefur að
sér rannsókn málsins, og skjöldurinn
var sóttur á leiðið og kemst væntan-
lega fljótt á sinn fyrri stað.
- JH
„Spæjari” DB, með hanzka á vinstri hendi og ullarvettling á hægri, teygir sig eftir bréfinu á leiði Jóns forseta. Skjöldurinn er
þar undir. DB-mynd: Hörður.
YFIRHEYRSLUR í DAG
— strangur lögregluvörður um áhöfnina
— líkin flutt til Reykjavíkur í dag
„Við munum yfirheyra og taka heyrð í gær, en þeir menn voru skipverjar halda sig neðan þilja og
skýrslur af öllum þeim skipverjum, staddir i eldhúsi skipsins er Jón greip mega ekki hafa samband við fólk i
sem voru sjónarvottar að at- til hnífsins. Annars var i morgun eftir landi.
burðunumogástæðaertilaðætlaað að yfirheyra um 20 manns áður en til Langhelgisgæzluflugvél var i
skýrt geti málin,” sagði ívar Hannes- sjóréttar kæmi. morgun stödd á Akureyri og var hún
son rannsóknarlögreglumaður í Strangur lögregluvörður er nú við vq*ntanleg til Reykjavikur með lik
viðtaliviðDBímorgun. skipið í Akureyrarhöfn, þar kemst tveggja hinna látnu um hádegisbilið.
Tvö aðalvitnin voru einkum yfir- enginn óviðkomandi um borð, -GS/ASl., Akureyri.
L0DNUFL0TINN
í STARTHOLUNUM
„Hér er allt tilbúið til að taka við Eitt leitarskip, sem verið hefur þar
fyrstu meldingunum, en við eigum um slóðir undanfarið, hefur ekki
ekki von á fréttum fyrr en í nótt, eða orðið vart við loðnu, a.m.k. ekki í
með morgninum,” sagði Andrés umtalsverðu magni, en Andrés var
Finnbogason hjá loðnunefnd í morg- bjartsýnn á að hún fyndist þegar
un. Yfir 40 skip eru lögð af stað á leitarskipin yrðu orðin yfir 40.
miðin fyrir norðan og mörg komin Veiðarnar mega hefjast nú á hádegi.
þangaðogbyrjuðleit. -GS