Dagblaðið - 18.01.1980, Blaðsíða 1
friálst,
úháð
dagblað
6. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1980. 15. TBI..
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐAl.SÍMI 27022.
Agæt reynsla af er-
lendum kreditkortum
— segir Haukur Gunnarsson í Rammagenðinni
„Reynsla okkar hjá Rammagerð- ferðatékka.
inni af viðskiptum með kreditkorlum
er ágæt og hefur stöðugt farið vax-
andi á undanförnum árum,” sagði
Haukur Gunnarsson framkvæmda-
stjóri hjá Rammagerðinni í viðtali við
DB í gær. Erlendir ferðamenn verzla
mikið i verzlunum Rammagerðar-
innar, sem eru bæði á Hótel Loftleið-
um og Esju, auk verzlunarinnar í
Hafnarstræti.
Haukur sagði, að algengustu
kreditkortin væru frá American
exprés, Visa, Master Charge og Euro-
card. Afgreiðsla væri mjög auðveld
með þessum kortum og þau ynnu
stöðugt á í hlutfalli við venjulega
„Notkun kortanna er sérstaklega
algeng meðal bandariskra ferða-
manna og hún eykst mikið, til dæmis
hjá Þjóðverjunum líka,” sagði
Haukur Gunnarsson. „Ég tel að sú
nýbreytni að gefa fólki kost á að gera
viðskipti sín með þessum hætti hér á
landi sé ekki nema af því góða og
vona sannarlega að þetta fyrsta skref
hér innanlands verði lykillinn að þvi
að íslendingum verði heimilað að
nota kreditkort erlendis. Það er bæði
öruggasti og þægilegasti viðskipta-
mátinn sem þekkist,” sagði Haukur
að lokum.
- ÓG
Þeir eiga næsta leik
Verjendur sakborninga í Guð-
mundar- og Geirfinnsmálum: Guð-
mundur Ingvi Sigurðsson hrl., verj-
andi Erlu Bolladóttur, Jón Oddsson
hrl., verjandi Sævars Marinós
Ciecielskis, Hilmar Ingimundarson
hrl., verjandi Tryggva Rúnars Leifs-
sonar, Benedikt Blöndal hrl., verj-
andi Guðjóns Skarphéðinssonar, Örn
Clausen hrl., verjandi Alberts Klahn
Skaftasonar, og Páll A.Pálsson hdl„
verjandi Kristjáns Viðars Viðars-
sonar.
Fyrstu varnarræðuna flytur Páll
A. Pálsson i sínu fyrsta prófmáli i
Hæstarétti. Hófst hún kl. 10 í morg-
— Sjá ennfremur um Geir-
finnsmálið á bls. 9 og bak-
síðu.
Horfur á alvarleg-
um snjóskorti á
óiympíuleikunum
— erl. fréttlr
bls. 6 og 7
Tónverk - ekki
myrkraverk
— sjá bls. 8
Seðlabankinn
mun fylgjast með
þróun mála í
sambandi við
kreditkortin
hérlendis
— sjá bls. 5
Miklar skipulags-
breytingar hjá
Eimskip
— sjá bls. 5
„nóttinn” frá
Keflavík heldur
enn áfram v
— forráðamenn
sænsks 3.
deildarliðs koma til
landsins í dag í
leikmannaleit
— sjá íþróttir
Fíkniefnadómstóllinn:
Ungur maður
í viku gæzlu
Ungur Seyðfirðingur hefur nú setið manninn landleiðina til Hafnar i
í tæpa viku i gæzluvarðhaldi að Hornafirði, þaðan sem hann flaug til
kröfu Fíkniefnadómstólsins, en hann Reykjavíkur.
verður væntanlega látinn laus í dag Hann mun ekki stórtækur á þessu
eða á morgun, að sögn fulltrúa dóm- sviði afbrota heldur tengist hann lítil-
stólsins i morgun. lega stóru fikniefnamál sem verið
Lögreglan á Seyðisfirði flutti hefur til rannsóknar undanfarið. - GS
Tillögum Alþýðubandalagsins illa tekið:
ÞAÐEREKKIHÆGTAÐ
BYGGJA Á ÓSKAUSTA”
„Miklar breytingar þarf frá þess-
um tillögum, til þess að þær séu raun-
hæf lausn á þeim vanda sem við er að
fást,” sagði Tómas Árnason fyrrver-
andi ráðherra (F) í viðtali við DB i
morgun um tillögur Alþýðubanda-
lagsins. Tómas taldi mikið vanta i til-
lögurnar, meðal annars vantaði
algerlega launamálastefnu.
„Þetta eru ævintýri, sem hafa
verið reynd áður og ekki gengið,
gamalkunnar leiðir,” sagði Vilmund-
ur Gylfason ráðherra í morgun um
tillögur Alþýðubandalagsins í því
formi, sem þær nú eru. Hann sagði,
að spurningin væri hvort Alþýðu-
bandalagið gæfi möguleika á miklum
sveigjanleika frá tillögunum i núver-
andi mynd. Magnús H. Magnússon
ráðherra sagði í morgun, að sumt
væri gott i tillögunum en annað ósk-
hyggja.
Forystumenn Framsóknar- og
Alþýðuflokks töldu í gær engar líkur
til að byggja mætti nýtt vinstra sam-
starf á tillögum Alþýðubandalags-
ins.” Það er ekki hægt að byggja á
óskalista,” sagði einn forystumaður
Framsóknar. „Sennilegt er, að tillög-
unum verði hafnað,” sagði forystu-
maður i Alþýðuflokki.
Þingflokkur Alþýðuflokksins mun
ekki taka afstöðu til tillagnanna fyrr
en á morgun, skömmu fyrir næsta
formlega fundinn um vinstri stjórn.
Efnahagsnefnd Framsóknar skoðar
tillögurnar gaumgæfilega í dag en
mun ekki taka afstöðu fyrr en á
morgun. Búizt er við, að
framsóknarmenn svari tillögunum lið
fyrir lið, þar sem fram komi mikil
gagnrýni á þær.
Þjóðhagsstofnun vinnur að
útreikningum á tillögum Alþýðu-
bandalagsins og skilar þeim væntan-
•legaámorgun. -HH.
Sji tillögur Alþýðubandalagsins á
bls.8.
Byggingarskúlptúr
Þennan skúlptúr kannast landsmenn mœtavel við, enda okkar uppú-
haldsiðja. Við byggjum og byggjum, enda erþað ein tryggasta leiðin
til þess að viðhalda verðgildi veikbyggðrar krónunnar. Það er hús
verzlunarinnar í nýja miðbœnum sem býr yfir þessum listrœnu verk-
pöllum. DB-mynd Ragnar Th.