Dagblaðið - 26.01.1980, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 26.01.1980, Blaðsíða 7
7 \ DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 26. JANÚAR,1980. „Hefur til að bera bæði virðuleik og skörungsskap — segja stuðnmgsmenn Peturs Thorsteinssonar í ávatpi til þióðarinnar „Mikið er í húfi fyrir þjóðina, að val hins nýja forseta takist vel. Við þurfum þjóðhöfðingja, sem hefur til að bera bæði virðuleik og skörungs- skap.” Þannig segir meðal annars i ávarpi stuðningsmanna Péturs Thor- steinssonar til kjósenda. „Við þurfum þjóðhöfðingja, sem hefur i heiðri siði og venjur þing- ræðis, en hikar ekki við að taka eigin ákvarðanir og fylgja þeim eftir, þegar hagsmunir þjóðar, þings og stjórnar krefjast.” í ávarpinu segir einnig að leitun muni að manni meðal íslendinga sem er jafnkunnur málefnum þjóða bæði i austri og vestri og Pétur Thorsteins- son sendiherra. „Við treystum Pétri Thorsteins- syni til að skipa embætti forseta íslands af festu, skörungsskap og virðuleik, svo sem hæfir þjóð- höfðingja,” segir í niðurlagi ávarps ins. Eftirtaldir rita undir ávarpið. Arnór Hannibalsson lektor Kópa- vogi, Ágúst Bjarnason s kri fstofust jóri Reykjavík. Árni Kristjánsson píanóleikari Reykjavik, Bjarni Óskarsson byggingafulltrúi Mýrasýslu, Egill Ólafs'son hljómlistarmaður Reykj avík, Emil Jónsson fv. forsætisráðherra Hafnarfirði, dr. Friðrik Einarsson læknir, Reykja- vík, Geirþrúður Hildur Bernhöft ellimála- fulltrúi Reykjavík, Guðjón Sveinsson rithöfundur Breið- dalsvik, Guðmundur Daníelsson rithöfundur Selfossi, Guðrún P. Helgadóttir skólastjóri Reykjavik. Gunnar Egilsson klarinettleikari Reykjavík, Halldór Laxness rithöfundur Mosfellssveit, Haraldur Blöndal héraðsdómslög- maður Reykjavík, Hákon Bjarnason fv. skógræktarstj. Reykjavik, Pétur Thorsteinsson sendiherra. Ingibjörg Eliasdóttir fulltrúi Reykja- vík, Ingvar Vilhjálmsson útgerðarmaður Seltjarnarnesi., DB-mynd Hörður. Jón Pálsson dýralæknir Selfossi Karl T. Sæmundsson kennari Reykjavik, Kristján Ragnarsson frkv ij. I ÍÚ Reykjavík, Kristinn Guðlaugsson verkstjóri Dalvik Ólafur H. Torfason kennari Stykkis- hólmi T- Páll A. Pálsson yfirdýralæknir Reykjavik, — Ragnar Stefánsson bóndr Skaftafelli. Ríkarður Pálsson lannlæknir Revkjavik, Selma Kaldalóns lónskáld Seltjnesi, Sigrún Jónsdótlir kennari Reykjavik, Sigurður Thoroddsen verkfræðingur Rcvkjavik. Sólveig Sveinbjarnardótlii húsfrú Hafnarfirði, Svcinn Tryggvason fv. frkvstj. Stéttarfél. bænda Reykjavík, s <• i;■ 11 B. Vallells iðnrekandi Reykjavík, Skarphéðinn Ásgeirsson forstjóri Akureyri Tryggvi Emilsson verkamaður Reykjavík, Sr. Valdimar Hreiðarsson prestur Reykhólum, Valtyr Péturssoulistmálari levkjavík, Vigd is Gttðl innsdóitii bréfritari Reykjavík. -GAJ. Kampútseu-söfhunin: 146 mlljónir hafa safnazt Alls hafa nú safnazt 146 milljónir í söfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar, Brauð handa hungruðum heimi. Söfnuninni átti að Ijúka 15. janúar en peningar halda áfram að streyma til skrifstofu Hjálpar- stofnunarinnar. Guðmundur Einarsson, fram- kvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar, er nú erlendis ásamt sr. Braga Friðrikssyni, stjórnarformanni stofnunarinnar þar sem þeir ræða um hugsanlegt samstarf við hjálpar- stofnanir hinna Norðurlandanna við að koma matvælunum á framfæri í Kampútseu. -GAJ. Djúpavogslæknishérað: Ófremdarástand í heilbrigðismálum „Fundurinn beinir þeirri eindregnu áskorun til landlæknis, heilbrigðisráðherra, svo og þing- manna Austurlandskjördæmis, að þeir beiti áhrifum sínum til að bætt verði úr því ófremdarástandi sem rikir í heilbrigðismálum Djúpa- vogslæknishéraðs þar sem héraðið hefur verið læknislaust meira og minna síðastliðin tvö ár.” Þannig segir í ályktun sem samþykkt var á sameiginlegum stjórnarfundi kven- félaganna Vöku á Djúpavogi, Beru i Beruneshreppi og Hlífar í Breiðdal sem haldinn var i Hamraborg þann 11. janúar sl. j ályktuninni segir einnig að forsenda þess að þessir staðir séu byggilegir sé að bætt verði úr þessu neyðarástandi hið bráðasta með því að ráða lækni og hjúkrunarfræðing í héraðið strax og veitt verði fjár- magni til bættrar heil brigðis- þjónustu svo sem byggingu heilsugæzlustöðvar á Djúpavogi. GAJ/HT, Djúpavogi. Sjúnvarpsmenn mæta til að taka kynningarmynd af kjarnorkuveri en verða þá vitni að óhugnanlegum atburðum. Frá vinstri: Michael Douglas .sem kvikmyndatökumaðurinn, Jane Fonda sem sjónvarpsfréttakonan og loks hljóðmaður. UNIDDLD MYND EN SANNSPÁ — sýningar hefjast á Kjamleiðslu til Kína Engin kvikmynd síðasta árs hlaut eins mikið umlal og The China Syndrome eða Kjarnleiðsla til Kína, ekki aðeins í Bandaríkjunum heldur um allan hinn vestræna heim, enda fjallar hún um eitt viðkvæmasta vanda- mál vorra tíma, nýtingu kjarnorku og kjarnorkuslys. Kom hún á markaðinn rétt áður en slysið fræga varð við Harrisburg og þótti mönnum kvik- myndin sannspá með ólíkindum. Hefur hún ntagnað alla umræðu um kjarn- orkuver en bér a landi birlist þýðing á bók með sama nafni í Vikunni. Sljörnubíó ællaði að sýna myndina um jólin en hún tafðist í flutningi en um þessa helgi hefjast sýningar hennar. Er ekki að efa að hún á eftir að vekja hér- lenda áhorfendur til meðvitundar um kjarnorkuvandann þótt engar likur séu á þvi að við fáum hingað kjarnorkuver. Aðalhlutverk leika Jane Fonda, Jack Lemnton og Miehael Douglas en sá siðastnefndi er einnig framleiðandi myndarinnar. -Al Stjómarmyndunarviðræðumar: Benedikt að gefast upp — framsóknarmenn reidubúnir að reyna aftur „í upphafi bauð ég öllum flokkum þátttöku svo þeir gætu endurskoðað hug sinn til fjögurra flokka stjórnar. Alþýðubandalagið hafði þann hátt á að senda til viðræðna LúðvíkJósepsson einan sem hafnaði tillögum okkar án þess að lesa þær. Er orðuð var þá við hann stjórn Alþýðubandalags, Sjálf- stæðisflokks og Alþýðuflokks hafnaði hann þeim möguleika afdráttarlaust,” sagði Benedikt Gröndal forsætis- ráðherra m.a. á blaðamannafundi i stjórnarráðinu í gær. Þar á borðum lágu frammi tillögur Alþýðuflokks til stjórnarmyndunar og var búið að strika yfir: „Algert trúnaðarmál!” „Eftir miðstjórnarfund Fram- sóknarflokksins tjáðu Steingrímur Hermannsson og Tómas Tómasson mér að flokkurinn hafnaði að.ganga til samstarfs á grundvelli tillagna Alþýðu- flokks en buðust sjálfir til að leggja fram nýjan grundvöll. Þegar mér er falin stjórnarmyndun bíð ég ekki eftir tillögum frá öðrum flokkum,” sagði Benedikt. Á meðan á blaðamannafundinum stóð fundaði Sjálfstæðisflokkurinn um tillögurnar og lágu niðurstöður ekki fyrir. Hverjar sem niðurstöður hafa orðið sagði Benedikt: „Sjálfstæðis- Benedikt Gröndal á blaöamannafund- inum i gær. DB-mynd Bjarnleifur. flokkur og Alþýðuflokkur hafa ekki meirihluta i báðum deildum Alþingis og því gæti ekki orðið um meirihluta- stjórn þeirra að ræða, eins og forseti fól mér að mynda. Á morgun mun ég ganga á fund forseta, að loknum þing- flokksfundi Alþýðuflokksins, og gera honum grein fyrir stöðu málsins,” sagði hann. Fastar vildi hann ekki kveða að orði að svn stnddu. Hann var inntur eftir frétt DB í gær þess efnis að nú stæðu ylir viðræður áhrifamanna Alþýðuflokks, Alþýðu- bandalags og Framsóknarflokks um stjórnarmyndun þrátt fyrir allt. „Ég hef ekki heyrt um það fyrr en ég las það í blaðinu cn að mínu áiiti er enn eltir að fullreyna tvo til þrjá möguleika áður en gripa verður til utanþingsstjórnar. -GS.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.