Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš

						DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1980.

Höldum vöku okkar

— gagnvart f jölmörgum rússneskum sendiráðsmönnum

hérálandi

Fyrir nokkru mátti lesa frétt í

einu blaðanna að ný-sjálenzka

stjórnin hefði visað úr landi þar

einum af starfsmönnum Rússa vegna

þess að hann hafði orðið uppvis að

þvi að styrkja með peningum einhver

samtök (kommúnista?) þar í landi.

Mér   geðjaðist   vel   að   þessum

vinnubrögðum andfætlinga okkar í

Nýja-Sjálandi.

Það hefur verið getið um það

nýlega að Rússar hafí á islandi

stærsta (mannflesta) sendiráð af

þeim sem hér hafa bækistöðvar og

finnst mörgum skrýtið.

Nokkru seinna birtist  frétt    um

,l>ao vaknar sú spuraing, hvað allir þessir sendiráðsmenn i rússneska sendiráðinu

i Keykjavik séu að gera," skrifar Siggi flug.

HEWLETT hp PACKARD

HEWLETT-PACKARD-einkaumboð á íslandi

STALTÆKI

Bankastræti 8.

Slmi 27510.

það, frá Nýja-Sjálandi, að: ef Rússar

(þar) hættu ekki að skipta sér af

verkalýðsmálum þá yrðu þeir

(Rússar) að fækka i sendiráði sinu

niður i 8 starfsmenn í stað eitthvað 30

semeru þar nú.

Það hlýtur að vakna sú spurning

hvað allir þessir sendiráðsmenn í

rússneska sendiráðinu í Reykjavík

séu að gera. Við höfum við þessu

svar , vegna eigin reynslu okkar,

þegar Rússar voru staðnir að þvi að

reyna að beita mútum hér á landi, i

Hafravatnsmálinu alkunna.

Rússar stunda enn þessa iðju sina

hér á landi, en fara sér auðvitað

varlega eftir þetta óhapp við Hafra-

vatn. Rússar eiga hér einnig fast-

eignir, og að sagt er eina vestur við

Selsvör þar sem sjá má mjög vel til

allra skipaferða lil höfuðborg-

arinnar. (Afsal ku ekki vera búið að

géfa fyrir eigninni.)

Að sjálfsögðu eigum við að semja

okkur að andfætlingum okkar, N-

Sjálendingum, og láta fækka í

sendiráði Rússa hér niður í sömu

tölu eins og sendiráð okkar hefur i

Moskvu eða 3 menn, meiri eru nú

viðskiptiokkarvið Rússa ekki.

Liklega yrðu Rússar að fá leyfi

fyrir fleiri menn hér vegna þess

njósnakerfis sem þeim er nauðsynlegt

að hafa vegna eigin manna, en i

þeirra KERFl er gert ráð fyrir þvi, að

hversmannsségætt afþeimnæsta.

Starfsmenn sendiráðs okkar i

Moskvu munu ekki hafa óskorað

ferðafrelsi og mætti slikt einnig vera

okkur leiðarljós í umgengni okkar

við Rússa hérá landi.

Það væri óskandi að við

kynnlumst aldrei þvi KERFI sem

Rússum finnst nauðsynlegt að hafa,

því okkur myndi snögglega bregða í

brún ef slikt ætti eftir að henda

okkur.

Höldum vöku okkar, en fljótum

ekki sofandi að feigðarósi.

Mér datl (þelta) svona í hug.

SIGGÍ flug, 7877—8083.

Raddir

lesenda

„Hvernig f ósköpunum stendur á þvi að islenzk veitingahús skuli ekki bjóða uppi

drekkandi kaffi?" spyr bréfritari.

Kaffi á íslenzkum veitingahúsum:

Gjörsamlega

ódrekkandi

skólp

Kaffiþatnbari skrifar:

Hvernig i ósköpunum slendur á

þvi að islenzk veitingahús skuli ekki

bjóða upp á drekkandi kaffí? Ég er

einn af þeim sem mikið er fyrir

kaffídrykkju og þykir gott að fá mér

kaffi að kvöldi til, hvort sem ég hef

bragðað vín eða ekki. En fari ég á

veitingahús er mér gert þetta

ómögulegt. Að vísu er hægl að fá

kaffi — ef maður er tilbúinn til að

bíða hálft kvöldið eftir því að fá

cilthvert ódrekkandi skólp sem

kallaðer kaffi.

Ég skal nefna dæmi. A dögunum

brá ég mér í Súlnasal Hótel Sögu og

snæddi þar kvöldverð. Að honum

loknum bað é& um kaffi. Það kom

eftir hálftíma, eftir að búið var að

færa fólki i kringum mig írskt kaffi

fyrir löngu. Kaffið sem ég fékk var

gjörsamlega ódrekkandi. Engu var

likara en að það hefði staðið á heitri

eldavél i marga klukkutima. Ég

kvartaði við þjóninn sem kom óðara

með nýja könnu af sama skólpinu

nema hann kvað það hafa verið

þynnt með vatni.

Ég sagði að mér geðjaðist ekki

belur að þvi fyrir það, hvort virkilega

væri ekki hægi að fá almennilegt

kaffi á einu virtasta skemmtihúsi

borgarinnar þar sem lærðir mat-

reiðslumenn væru i hverju horni.

Hann gerði eina tilraun enn og kom

enn með sama skólpið, sem

sannfærði mig um að á Sögu væri

greinilegaekki hægt að fágotl kaffí.

Því sel ég þetta á blað að þetla er

ekkeri einsdæmi. íslenzkum veitinga-

húsum er til skammar sú þjónusta

sem veitl er i kaffimálum, hvort

heldur er seinagangur við afgreiðslu

eða „gæði" þess sem er borið á

borð. Engin afsökun er að fáir komi

sem drekki kaffið þar eð allt kvöldið

er verið að bera fram írskl kaffi.

SjáJfstæðísflokkurinn:

Gunnari tókst það

sem Geir tókst ekki

Helgi      Vigfússon,      Bólstaðarhlíð

50,skrifar:

Ráðgátusamþykkt flokksráðs

Sjálfstæðisflokksins hefur valdið

almenhum kjósanda flokksins

miklum vonbrigðum. Má gera ráð

fyrir að margir merkir og mikilhæfir

sjálfslæðismenn segi sig úr

flokknum.

Hinn almenni félagsmaður fylgir

nefnilega eindregið dr. Gunnari

Thoroddsen og er brennheitur

lærisveinn hans. Hinn almenni

félagsmaður i Sjálfstæðisflokknum

telur sér hættu búna af framkomu

109 flokksráðsmanna og kvíðir því

að fremur þröngt muni verða að búa

áfram i Sjálfstæðisflokknum.

Líkja má flokkssamþykklinni,

miðstjórnarsamþykktinni,         þing-

flokkssamþykktinni   við  váldhafa  i

' Kreml   í   Rússlandi,   þar   sem   sér-

hverjum      sjálfstæðum      hugsandi

manni er varpað í-útlegð.

Hugsunin, sem átti að rúmast

hér í þessu hugvekjukorni, var sú, að'

það sem heldur uppi stjórnmála-

flokki á að vera að minum dómi

gagnið, nytsemdin, heillin og

blessunin fyrir þjóðina. Og á-

greiningurinn   milli   hinna   tveggja

Kggert Haukdal, einn stuðnings-

manna Gunnars Thoroddsen innan

Sjálfstæðisflokksins. „Á framkomu

og malflutningi stuðnlngsmanna dr.

Gunnars vcltur þafl mest, hvað geríst

i Sjálfstæðisflokknum á næstunni,"

skrif ur Helgi Vigfússon.

DB-mynd Bjarnleifur.

slórbrotnu          stjórnmálaskörunga

innan Sjálfstæðisflokksins er ekki

málefnalegur heldur snýst hann um

hvor var betur fallinn til þess að

mynda meirihlutastjórri á Alþingi.

Dr. Gunnari Thoroddsen tóksl það

sem Geir Hallgrimsson gafst upp við,

að mynda meirihlutastjórn á Alþingi.

Til þessarar stjórnarmyndunar

hefur dr. Gunnar Thoroddsen

algjöran stuðning margra merkra

manna og kvenna úr hópi sjálfstæðis-

flokksmanna, meðeiginhandarundir-

skrift hefur fólk staðfest þetta.

Eftirtekt fólksins i borg og sveit hefur

fest við dr. Gunnar Thoroddsen, nú-

verandi forsætisráðherra íslands,

sjálfan manninn og stórkostlega

hæfíleika hans og vitsmuni. Mál-

flutningur dr. Gunnars Thoroddsen

er meginefnið óg áhrif mál-

flutningsins hafa verið svo mikil.

Vandinn og vegsemdin fara saman

og sú kenning er óbrigðul að á fram-

kpmu og málflutningi stuðnings-

manna dr. Gunnars, Friðjóns

Þórðarsonar, Pálma Jónssonar á

Akri, Alberts Guðmundssonar,

Eggerts Haukdal og Jóns Sólnes,

veltur það mest, hvað gerist í Sjálf-

stæðisflokknumá næstunni.    *-

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28