DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1980. Mötuneyti vantar í framhaldsskólana: SK0LAF0LK SE EKKI KÚGAÐUR MINNIHLUTI LMF nefnd Fjölbrautaskólans við Arnn'ila skrifar: Við íslendingar (eljum okkur mikla menningarþjóð. Við státum okkur af miklum snillingum, sem búið hafa á Fróni allt frá landnámi. Okkur vantar ekki stoltið og sjálfs- ánægjuna. Hér eru stofnanir, sem nefnast skólar, er meðal annars þjóna því hlutverki að innræta ungviði þjóðarinnar speki hinna fyrrnefndu snillinga, en þó við illan aðbúnað. Hér er ætlunin að nefna einungis eitt atriði í þessu sambandi, næringu nemenda innan skólanna. í flestum tilfellum er enginn möguleiki fyrir nemendur að snæða í skólunum, þrátt fyrir langan vinnudag. Þetta vandamál hefur aukizt með tilkomu fjölbrauta- skólanna, eri í þeim þurfa nemendur í flestöllum tilfellum að vera lengur daglega en í gamla bekkjakerfinu. Ástæðan er ósamfelld stundatafla á- fangaskólanna. Samt er ekki gert ráð fyrir mötuneytum fyrr en á síðasta byggingarstigi skólanna, samanber Fjölbrautaskólann við Ármúla, en enginn (svo við vitum) lætur sig dreyma um þetta siðasta byggingar- stig skólans, enda nýorðinn fram- haldsskóli; var áður gagnfræðaskóli með framhaldsdeildum. Nemendur sjá aðeins fram á áframhaldandi öldrykkju og sam- lokuát, eins og það er holl og góð næring. Þess vegna er eðlilegt að samtök mennta- og fjölbrautaskólanema hafi samþykkt á síðasta landsþingi sam- takanna að gera mötuneytismál að aðalbaráttumáli samtakanna á yfir- standandi vetri. Hér er ekki um nein smásamtök að ræða, ef lesandi held- ur það, þetta eru samtök 7000 fram- haldsskólanema á landinu öllu. Aðstaða nemenda til skólagöngu er misjöfn. Margir þurfa að sækja skóla langan veg og jafnframt greiða fæði og húsnæði af litlum sumar- lekjum, en aðstandendur veita aðstoð í mörgum tilfellum. Þrátt fyrir að lífskjör fólks séu almennt orðin góð hafa ekki allir peninga til tíring^Á \\~- Þvotturínn hvarf af snúrunum: Klemmurn- ar dingluðu einar eftir Útivinnandi kona skrifar: Kona nokkur i Hlíðahverfi ætlaði að taka inn þvott sinn af snúrum að morgni dags en greip í tómt. Allur þvotturinn var horfinn og klemmurnar dingluðu einar eftir á snúrunum. Tilfinnanlegast þótti henni að missa fatnað af börnunum. Minna gerði til með handklæði og sængur- fatnað. Börnin ganga i skóla og því tekur tíma að fá á þau fatnað. Væri því vel þegið að barna- fatnaðinum væri skilað aftur. Honum má henda í plastpoka inn i portið i skjóli myrkurs, þar sem sá er þvottinn tók ratar svo vel að snúrunum. Úr mötuneyti. Ekki er gert ráð fyrir mötuneytum i fjölbrautaskólunum i'yrr en á siðasta byggingarstigi þeirra." þeirra útgjalda, sem eru samfara námi fjarri heimabyggð. Heima hafa nemendur ókeypis þjónustu sem þeir verða að greiða fyrir fjarri heima- byggð sinni. Mötuneytiskostnaður er gott dæmi umþetta. Samfélagokkar ætti að hafa rænu á að draga úr þessum útgjöldum, þ.e. við rekstur mötuneyta, en hráefni greiði nemendur sjálfir, enda verður hvort sem er aðgreiða fyrirhráefniðheima. Heimilt er að mötuneyti nemenda fái laun handa einum manni, og t.d. má nefna að einum manni er greitt til að sjá um mat kennara, sem eru miklu færri. En það er ekki nóg að hafa starfs- fólk, ef aðstaða til að matbúa og borða er ekki til. í okkar skóla, Fjölbrautaskólanum við Armúla, er engin aðstaða til þessa eins og er. Nú geta nemendur keypt sjoppufæðu, sem lokaársnemendur selja, og farið inn í hinn stóra og mikla hátiðasal skólans, sem rúmar alls ekki helming nemenda skólans. En þetta er engin undantekning hjá okkur, því á- standið er svona i flestum framhalds- skólum. Það er því auðséð að yfirvöld verða að láta hendur standa fram úr ermum og koma þessu á laggirnar um landallt. Hér ætti hin nýja ríkisstjórn, sem er að fæðast eða er fædd þegar þú lest þetta, að gripa inn i og bæta þjónustu þessa, sem talin er sjálfsögð á flestum vinnustöðum, og sýna um leið að skólafólk sé ekki hinn kúgaði minnihluti í samfélaginu. CITROÉN Nú býðst tækifærið CITROÉN VISA ;. Af sérstökum ástæðum eigum viö fyrirtiggjandi til afgreiðslu strax nokkra Citroén Visa Club bíla, árgerð 1979 á sérstaklega hagkvæmu verði, ca. kr. 4.330.000.- miðað við gengi 11/2. Citroén Visa er sérlega sparneytinn og aksturs- eiginleikar eru þeir sömu og hjá öðrum Citroén bflum. Hafíð samband við sölumann. Globusn LAGMULI5. SÍMI81555 Spurning dagsins Ætlarðu á Stjörnumessu Dagblaðsins og Vikunn- ar? Hildur Heba Theódórsdóttir, vinnur i Hampiojunni: Ég hef ekkert heyrt um þessa Stjörnumessu. Og þar af leiðandi ferégekkiá hana. Hrönn Valintinusdótlir nemi: Ég veit það ekki. Ég hef ekkert hugsað um það. Olafur Björnsson, vinuur í Hluna- prenti: Ég reikna ekki með því. Ég er í vetrarfriii þessa viku og ætla að nota það til þess að gera ýmislegt heima hjá mér. Þórhallur l)an Jóhannsen stýrimanur: Nei, það ætla ég ekki. Ég fer nokkuð mikið á skemmtanir en ælla ekki á þessa. **»<Í' '¦-¦-"' Dagrún Þóroardnttir nemi: Nei, ég reikna ekki með þvi. Ég fer fremur litið á skemmtanir. mdd. Ingibjörg Þurfinnsdóltir húsmnAir: Nei, hún vekur ekki áhuga hjá mér. DB-myndir Lilja.