Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš

						DAGBLAÐID. FIMMTUDAGUR 14. FEBRUAR 1980.


DB á neytendamarkaði

ANNA

BJARNASON,

5>

Vinnings-

hafi

desember-

úttekt-

arínnar:

„Það hefur komið mér dálltið

undarlega fyrir sjónir að ég skuli vera

sú eina sem séndi inn upplýsingaseðla

héðan, þvi ég veit að það eru margir

sem halda heimilisbókhald hér aðrir

en ég," sagði Gréta Sigfúsdóttir á

Húsavík í samtali við DB.

Gréta var vinningshafi desember-

matarúttektarinnar okkar sem að

þessu sinni var upp á 162 þúsund kr.

Það var meðaltalseyðsla fjögurra

manna fjölskyldu 1 desember sl., en

Gréta er einmitt með fjögurra manna

fjölskyldu. Gréta kaus aö verzla

fyrir upphæðina í Kaupfélaginu á

Húsavík, útibúi þess er nefnist

Hrunabúð. Við skruppum til Húsa-

víkur í síðustu viku og verzluðum

með Grétu fyrir hluta upphæðar-

innar. Síðan áttum við með henni

góðadagsstund.

Heimilisbókhaldið

gagnlegt

„Mér finnst alveg bráðnauðsynlegt

að halda heimilisbókhaldið. Mér

finnst það hreint engin fyrirhöfn.

Mér finnst mjög gaman að því að lesa

bréfin sem birtast á Neytendasíðunni

frá konum í öðrum byggðarlögum og

bera mínar niðurstöðutölur saman

við þeirra," sagði Gréta. Hún hefur

verið með i heimilisbókhaldinu okkar

frá því í október 1978 og sent okkur.

seðla alla þá mánuöi. Hún hefur líka

oft sent okkur línu með seðlinum,

línur sem birtar hafa verið hér á síð-

unni. — Það má því segja að vinn-

ingurinn hafi komið á „góðan stað"

að þessu sinni, eins og reyndar oft

áður.

„Ég  er  alveg   viss   um   að-það

Færri freistingar úti á

landsbyggöinni

þótt vöruverð sé hærra

Gréta gleymdi „tossaseðlinum" heima, en líikst samt að kaupa inn fvrir rúmlega 52 þúsund. kr. á einum fimmtári minútum.

I lún sagðist ætla að láta sitt hvað eftir sér og fjölskyldunni, fyrst ekki þyrfti að gera annað en að skrifa nafnið sitt við kass-

ann.

hjálpar manni til þess að spara

svolítið að halda heimilisbókhald. í

það minnsta er það huggun að vita í

hvað peningarnir hafa farið. En það

sem undrar mig mest er hve liðurinn

„ahnað" er oft lágur hjá fólki. Mér

fínnst að sá tiður sé eiginlega miklu

hærri að jafnaði heldur en sjálf mat-

vælin og hreinlætisvörurnar. Það er

alltaf eitthvað sem kemur upp á hjá

manni að borga. Eins og t.d. hjá

okkur. Við erum ekki búin að borga

húsið, erum að borga af bilnum og

sjónvarpinu sem við keyptum í vetur.

Maður eignast áreiðanlega miklu

meira með því að kaupa hlutina upp

á afborgun heldur en ef maður þarf

að safna sér fyrir hlutunum fyrir-

fram. En við reykjum ekki og notum

ekki áfengi þannig að við getum leyft

okkur talsvert meira heldur en þeir

sem það.gera.

Ég réyni jafnan að vera ekki með

alltof dýran mat. Ég verð einnig að

kannast við að ég fæ eiginlega allan

fisk sem ég nota gefins. Svo fáum við

oft gefins kjötmeti. Það eru þá

kannski eins konar vöruskipti, við

ökum kannski eitthvað eða útréttum

fyrir vinafólk okkar i sveitinni og það

gefur okkur svo kjötmeti í staðinn.

Ég kaupi aldrei kjöt nema i heilum

skrokkum, nema. kannski stöku

sinnum ef mjög sérstaklega stendur

á. Ég reyni líka að nota sem allra

minnst af unnum kjötvörum. Ég bý

bæði til kæfu og rúllupylsu sjálf, ég

baka líka sjálf nema matarbrauðin,

sem ég kaupi í bakariinu."

Betri af koma

úti á landi

Gréta er gift Inga Magnússyni raf-

Gestabókin á heimilinu var mjög óvenjuleg. Dúkur sem var þakinn nöfnum sem

gestir hafa skrifað. I lúsmððirin sezt svo við að sauma þegar gestirnir eru farnir.

Á dúknum eru nokkur hundruð nöfn.

Birna Sigurbjörnsdóttir afgreiðslumær i Hrunabúð var snögg að leggja saman á

kassanum.

TUTTUGU 0G EIN TEGUND AF

SJAMPÓI0G GÓDUR

ASPARGUS Á FÍNU VERDI

— voni til í Kaupfélaginu á Húsavík

„Það þarf að vera nokkuð gott

vöruiírval i svona verzlun. Við erum

sjálfir með kjötiðnaðarstöð og

mjólkursamlag, þannig að við erum

nokkuð vel settir," sagði Sigtryggur

Albertsson         verzlunarstjóri         í

Hrunabúð K.Þ. i samtali við DB.

Hann er að byrja sitt annað ár i

starfinu, en var áður um árabil hjá

kaupfélaginu við Mývatn og rak þar

áður gamla Hótel Húsavík.

Gott úrval var á boðstólum af

ýmsum unnum kjötvörum svo sem

áleggi. Flestar mjólkurvörur eru

framleiddar hjá mjólkursamlaginu,

sem er lands-ef ekki heimsfrægt fyrir

hinn frábæra Port Salut ost sinn.

Þær tegundir sem ekki eru framleidd-

ar á Húsavík eins og smurostar og

ýmsar mjólkurtegundir eins og t.d.

jógúrt     fær         kaupfélagið    ,,að

sunnan".

Ekki gátum við séð að verðmunur

á vörum í kaupfélaginu, svona fljótt

á litið, væri því í óhag miðað við verð

i verzlunum i Reykjavík. Innan

vöruflokkanna virtist úrvalið vera

mjög gott. Sem dæmi má nefna að til

voru tuttugu og ein tegund af hár-

þvottalegi, auk þriggja tegunda af

Vinningsfjölskyldan ásamt Sigtryggi Albertssyni verzlunarstjóra I útibúi kaup-

félagsins á Húsavik, Hrunabúð. Talið frá vinstri Ingi Magnússon, Sigtryggur,

Þórhildur og Gréta Sigfúsdóttir.

bamasjampói          og          sérstöku

flösusjampói. Þarna var til strasykur

á 290 kr. kg og 500 g af flórsykri

kostuðu 230 kr. í sumum verzlunum

„sunnan heiða" kóstar sykurinn á

fjórða hundrað kr. kg. Þarna var

lika til aspastegund, sem er bæði á

tiltölulega góðu verði og mjög góð

tegund, Festal, 15 únsur á 1180 kr.,

sem ekki sést i verzlunum höfuðborg-

arinnar og önnur tegund, Steel

Country, einnig 15 únsur, á ekki

nema775 kr.

-A.Bj.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28