DAGBLADIÐ. FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1980. Hjónin Ingi og Gréta ásamt blm. Neytendasiðunnar sem er þarna að fá sér gómsæta rjómatertu. virkjameistara og eiga þau tvö börn, Þórhildi, sem er í 6. bekk og Ármann, sem er í 9. bekk. Gréta er fædd og uppalin í næsta. nágrenni Húsavíkur, Sandhólum á Tjörnesi. Ingi er aftur á móti Borgfirðingur að ætt og uppruna, en fluttist rúmlega tvítugur til Húsavikur þar sem hann lagði stund á rafvirkjanám. Svoílentist ég hérna og þú getur ímyndað þér hvort ég kann ekki vel við mig," sagði Ingi. Nú, svo hitti ég Grétu og við settumst hér að. Annars er ég stundum dálítið þreyttur á því mikla vetrarríki sem hér er, hér er yfirleitt snjór yfir öllu allan veturinn og fljótt að bregða yfir í snarvitlaust veður." Hann er áreiðánlega búinn að gleyma útsynningi með roki og rign- ingu á suðvesturhorninu, því hann er búinn að vera svo lengi fyrir norðan! Þeim hjónum kom saman um að afkoma fólks úti á landsbyggðinni væri sennilega mun betri heldur en þeirra sem í höfuðstaðnum búa. At- vinna hefur yfirleitt verið yfirfljótan- leg á Húsavík og þar búa langflestir í eigin húsnæði. Gríðarlega mikið hefur verið byggt á undanförnum árum, og eru það að mestu leyti einbýlishús. Er byggðin farin að færast í átt að Reykjaheiðinni, gamla þjóðveginum austur í Kelduhverfi, er raunar komin hátt í hlíðar heiðar- innar. Fólk úti á landi kaupir áreiðan- lega miklu hagkvæmar inn, og það kemur betur út þótt vöruverð sé yfir- leitt hærra úti á landi en í Reykjavík. Það eru líka færri freistingar á vegi manna, því vöruúrval er meira í ¦Reykjavík heldur en á smærri stöð- um," sögðu þau hjón. í Hrunabúð virtist þó vera allra sæmilegasta vöruúrval. Mikið bar á niðursuðuvörum frá Co-op en þar mátti þó sjá aðrar tegundir. Bókalestur í háveg- um hafður Hvernig eyðið þið frístundum ykkar? Ætli við horfum ekki á sjónvarp rétt eins og aðrir landsmenn," sögðu þau hjón. En þar að auki eiga þau mjög gott bókasafn með ýmsum fágætum bókum og sögðust bæði hafa mikla ánægju af bókalestri. Annars vinnur Gréta á Hótel Húsavík annað hvert kvöld. Að auki tekur hún mikinn þátt í féiagsstarfi, er m.a. nýgengin í kvenfélag á Tjörnesi. Daginn sem okkur bar að garði var hún einmitt að taka þátt í undirbúningi fyrir þorrablót sem halda átti á Tjörnesi um kvöldið. Sjónvarpsskilyrði eru mjög góð á Húsavik en þrátt fyrir að mikið sé horft þar á sjónvarp er fjörugt félags- líf þar i bæ. Þar starfa bæði bridge- og taflklúbbar, og ýms félög eins og Lions, Rotary, Kiwanis, Round Table o.fl. hafa með sér gott starf. Unga fólkið er áhugasamt um iþróttaiðkanir og er öflugt starf rekið á vegum Völsunga. Þá er mikill áhugi á skíðaíþróttum á Húsavik, eins og nærri má geta og er skíðaaðstaða prýðileg í Húsavíkurfjalli. Má sjá skiðalyfturnar langt að í fjallinu hvort sem er á björtum degi eða á dimmu kvöldi þegar fjallið er upplýst að hluta. Þau hjón, Gréta og lngi, sögðust samt ekki vera mikið á skííum en það eru börn þeirra aftur á móti. Þau höfðu þó tekið þátt í Iandsgöngu á skíðum fyrir nokkrum árum. Gréta og Ingi búa í einbýlishúsi að Uppsalavegi 19. Er það 146 fermetra hús, sem þau keyptu fyrir nokkrum árum. Innan dyra ber mikið á frá- bærri handavinnu húsmóðurinnar. Hvert sem er litið eru útsaumaðir púðar, myndir og veggstykki. I for- stofunni er eins konar minjasafn". Þar getur að lita bæði gamlan strokk, rokk, svipur, gömul gleraugu og ýmislegt fleira frá gömlum tíma, sem þau hjón og fjölskylda þeirra hafa haldið til haga. Að ógleymdum miklum og góðum bókakosti þeirra hjóna. ¦ Þegar við kvöddum þessa Húsa- víkurfjölskyldu okkar" var það kannski með örlitlum trega. Kannski er bara betra að búa í snjó og hörku gaddi norður undir heimsskautsbaug heldur en að velkjast um í rigningu og roki meiri hluta ársins. Við kom.um til höfuðborgarinnar um kvöldið. Veðrið brást ekki. Það var auðvitað rok og rigning og engu likara en að komið væri i aðra veröld. Myrkur grúfði yfir öllu, bílar og skófatnaður allur í aurslettum, svo varla sá til að aka heimleiðis. -A.Bj. Fjölskyldan á Uppsalavegi var ekkert bangin við að skreppa út og moka frá dyrunum snjóinn, sem margir norðan heiða eru þreyttir á, i það minnsta þegar komið er fram á vor. DB-myndir Evert Evertsson. Öndvegis- tónleikar Tónktikur Tonlistarfélagsins í Austurbjarbfói 8. febrúar. Flytjendur: Pina Carmirelli fiðluleikari og Ámi Kristjánsson pfanólerkeri. Efnisskrá: Johannes Brahms: Sónata f G-<lúr, op. 78, nr. 1; Sonata f A-dúr, op. 100, nr. 2 og Sonata f D-dúr, op. 108, nr. 3. Ekki getur það kallast að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur, að flytja allar sónötur Brahms, fyrir fiðlu og píanó á einum og sömu tón- leikunum. Svo keimlíkar eru þær, en þó hver með sínum séreinkennum. Þar er þvi ærinn vandi að greina á milli án þess að fyrirgera heildar- svipnum. f sónötum sínum birtir Brahms ef til vill meira af sínum persónuleika en i öðrum verkum. Hann, sem sjálfur hafði svo mikið yndi af að leika kammermúsík i hópi góðra félaga. Það er því ekki a færi neinna au- kvisa að takast á vjð slík verkefni svo vel fari. Jafnvel þótt flytjendur ráði prýðilega við tæknihlið verkefnisins, eru kröfurnar svo miklar til túlkunar og stíls, að aðeins er á snillinga færi að gera þvi viðhlítandi skil. En í þeim sökum var heldur ekki í kot visað á þessum tónleikum. Pina Carmirelli, sem kvöldið áður lék erfiðan konsert með Sinf.óníu- hljómsveitinni, lék nú með Árna Kristjánssyni þessar þrjár undrafall- egu sónötur snillingsins Brahms. Tónn hennar er eins og skapaður fyrir þær. En ekki nægir tónninn einn sér, þar þarf túlkun lika. Á köflum var eins og hún léki ekki á strengi fiðlunnar heldur teygði tón- ana út úr hljóðfærinu, líkt og sjón- hverfingameistari. Túlkun hennar á Brahms var hreint út sagt töfrandi. Pina Carmirelli var ekki ein um þennan stórkostlega flutning. Hún naut ríkulega hins makalausa meðleiks Árna Kristjánssonar, nestors íslenskra stórpianista. Það var ekki síður Árna að þakka, hversu vel þessir tónleikar tókust. Hann er þessi ótrúlega sveigjanlegi undir- leikari, sem getur fellt leik sinn að stíl þess, sem hann leikur með, en þó haldið sínum eigin blæ i leik. Það er enginn svikinn af liðveislu Árna, enda er hann löngu rómaður af stór- um listamönnum, viða um jarðir. Ýmsir þeirra hafa sóst eftir liðveislu hans á erlendum vettvangi, en Árni hefur ætið haldið sig við heimaslóð og talið sinn vettvang hér heima. Þegar samvinna tveggja stórlista- manna er með slíkum ágætum, sem á þessum tónleikum Pinu Carmirelli og Árna Kristjánssonar, verður útkom- an að sjálfsögðu aðeins á einn veg. Tónleikar á borð við það besta, sem boðið er upp á á alþjóðavettvangi. -EM. Pina Carmirelli Árni Kristjánsson 1. janúar 1981: HUNDRAÐFÖLDUN KRÓNUNNAR Frá og með 1. janúar 1981 hundraðfaldast verðgildi krónunnar. Jafngildir þá ein króna eitt hundrað gömlum krónum og á sama hát.t jafn- gildir einn eyrir nýrrar krónu einni gamalli krónu. Verð eldri seðla og myntar, sem í umferð eru um ára- mótin, breytast í samræmi við það. Heiti nýja gjaldmiðilsins verður óbreytt og aurar teknir í notkun á ný . Með verðgildisbreytingunni koma nýir seðlar og mynt í umferð, samhliða því að núgildandi seðlar og mynt fara smám saman úr umferð. Hvers konar fjárhæðir í verðbréfum, vixlum, samningum, gjaldskrám og dómum, svo að nokkuð sé nefnt, sem stofnað er til fyrir næstu áramót en greiddar eftir þau, breytast þannig, að hin nýja fjárhæð telst einn hundraðasti hluti af hinni eldri fjár-. hæð. -GAJ.- ALMENNINGSHLUTAFELAG UM FISKELDI Undirbúningsfundur fyrir stofnun almenningshlutafélags um fiskeldi verður haldinn í kvöld. Er félaginu ætlað að koma skriði á fiskeldismál eftir að kannað hefur verið hvernig bezt verður staðið að slíku líffrteðilega, tæknilega og fjárhagslega. 'Undirbúningsnefnd að stofnun hlutafélagsins hefur verið starfandi undanfarna mánuði og verður gerð grein fyrir störfum hennar á fundinum. Þar verða einnig lögð fram gögn um stöðu fiskeldismála, lögð fram og afgreidd drög að stofnsamningi og kosin nefnd til að undirbúa stofnun almenningshluta- félagsins. Fundurinn hefst klukkan 20.30 í Kristalsal Hótels Loftleiða. -DS.