Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš

						DAGBLADID. FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1980.

Washington/Teheran:

Carter boðar lausn

á deílunni um gísla

— stúdentarnír í sendiráðínu ítreka að þeir muni aðeins hlýðnast skipunum

frá Khomeíni trúarleiðtoga

Lausn á deilu Bandaríkjanna og

írans um sendiráð hinna fyrrnefndu

og gislana fífnmtíu er í sjónmáli,

sagði Jimmy Carter Bandaríkjafor-

seti í gær. Hann vildi þvi ekki skýra

neitt frekar frá hugsanlegri lausn

mítlsiiis. A fréttamannafundi sínum i

gær skýrði forsetinn frá því áliti sínu

að stofnun alþjóðlegrar nefndar til

að athuga ákærur írönsku

stjórnarinnar á hendur Banda-

ríkjunum mundi að öllum líkindum

geta leitt    til friðsamlegrar iausnar

málsins. Þar yrði einnig rætt um

ákærur íransstjórnar á hendur fyrr-

verandi keisara landsins, sem nú

dvelst í Panama. Fundurinn í gær var

hinn fyrsti sem Carter forseti heldur

með fréttamönnum í hátt i þrjá

mánuði. Orð hans á fundinum eru

þau fyrstu þar sem bandarískur ráða-

maður tekur undir hugmyndir um

stofnun alþjóðlegrar nefndar um

lausn deilu Bandaríkjanna ognírana.

Talsmenn stúdentanna, sem halda

byggingu bandariska sendiráðsins og

gíslunum fimmtiu, ítrekuðu i gær-

kvöldi fyrri yfirlýsingar sínar um að

þeir mundu aðeins afhenda rikis-

stjórn Bani-Sadr forseta gíslana og

yfirráð yfir byggingunni ef Khom-

eini, trúarleiðtogi skipaði þeim

að gera svo. Telja þeir sig ekki þurfa

að hlíta fyrirskipunum neinna

annarra.

Bani-Sadr forseti Irans sagði í út-

varpsviðtali í Frakklandi í gær að

Khqmeini trúarleiðtogi héfði fallizt á

nýjar 'tillögur'' sínar um • frelsun

gislanna. Er nú aðeins beðið eftir

orðum Kohmeinis sjálfs til að sjá

hvernig næstu skref verða i þessu

máli.

Gíslarnir fimmtíu hafa nú venð

í höndum stúdenta í 103 daga eða

síðan 4. nóvember síðastliðinn. Að

sögn sérfræðinga hafa ekki fyrr

verið svo bjartar vonir um að finna

megi lausn málsins sem allir aðilar

þess geti sætt sig við.

Khomeini trúarleiðtogi i tran og æðsti valdamaður er enn á sjúkrahúsi vegna

kransæðastiflu. Að sögn lækna hans fer heilsa hans batnandi en honum er þó

ráðlagt að fara sér hægt um sinn. Beðið er með óþreyju eftir að trúarleiðtoginn

láti Ijós sitt skina um hvort stúdentarnir sem halda byggingu sendiráðs Banda-

rikjanna i Teheran og fimmtiu starfsmönnum þess i gislingu eigi að afhenda

mönnum i rikisstjórn Bani-Sadr, nýkjörins forseta landsins, gislana. Hingað til

hefur Khomeini staðið með stúdentunum. Á myndinni er hann,að árita fána við

hátiðlega athöfn i sjúkrahúsinu. Sá sem aðstoðar hann er sonur hans, hann

heldur á fánanum en er með penna i munninum.

Washington:

Júgóslövum

in aðstoð

.3L

ii

Jimmy   Carter   Bandaríkjaforseti

sagði í gær að Bandaríkjastjórn væri

reiðubúin til að veita Júgóslövum alla

þá aðstoð sem þeir óskuðu ef Sovét-

ríkin beittu þá einhverjum ógnunum

eða þvingunum í kjölfar væntanlegs

fráfalls Titós, forseta landsins.

Carter lét þessi orð falla á blaða-

mannafundi vegna spurninga um ný

viðhorf i ljósi mjög hrakandi heilsu

Titós. Sagði Bandaríkjaforseti að

hann. hefði stöðugt samband og

samráð við vestræna þjóðarleiðtoga

um þróun mála í Júgóslaviu.

Carter tók þó fram að

júgóslavneskir leiðtogar hefðu

fullvissað hann um að þeir væru

menn til að fást við aðsteðjandi

breytingar. Samkvæmt frásögn

þeirra er Júgóslavía frjálst, öflugt og

vel búið ríki þar sem hugrakkir

þegnar eru fullfærir um að standa á

eigin fótum og verja hendur sínar, —

sagði Jimmy Carter.

Hann ítrekaði síðan að öll aðstoð

væri til reiðu frá Bandarikjunum.

OPEC-fundur í London

Samtök olíuútflutningsríkja,

OPEC, hafa boðað til sameigin-

legs fundar olíuráðherra sinna i

London dagana 21. og 22. þessa

mánaðar. Það var Ali Akbar olíu-

ráðherra írans sem upplýsti þetta

í gær. Hann var spurður hvort

ætlunin væri að reyna að ná sam-

komulagi aftur um sameiginlegt

verð á hráolíu. Sagði ráðherrann

þaðallsekki vera.

Bretland:

Iþróttaljósmyndari ársins

Erlendar

fréttir

OLAFUR

GEIRSSON

REUTER

David Janssen,

flóttamaðurinn,

látinn 49 ára

Kvikmyndaleikarinn David Janssen

lézt í gær af hjartaslagi, 49 ára gamall.

Þekktastur var hann fyrir leik sinn í

sjónvarpsmyndaflokknum              The

Fugitive, Á flótta, sem meðal annars

var sýndur í íslenzka sjónvarpinu.

Janssen var oftast í hlutverki hins

illúðlega töffara, sem fremur vildi láta

hnefana leysa úr vandamálunum en

beita fjölskrúðugum orðræðum. Er

hann lézt var hann einn á heimili sínu á

Malibuströnd í Kaliforníu en þar búa

margir kvikmyndaleikarar. Var það

leikarinn og kunningi Janssen, Stuart

Whitman, sem fyrstur kom að líki

hans.

Lake Placid:

Þrír f arast

í f lugslysi

Þrír fórust er litil tveggja hreyfla

flugvél hrapaði í skóglendi á fjöllum

nærri Lake Placid, ólympíubænum í

New York fylki í gær. Meðal þeirra

sem fórust var læknir einn bandarískur

sem ætlaði að gerast sjálfboðaliði með

bandarísku íþróttamönnunum sem

keppa á vetrarleikunum. Enginn komst

lífs af úr flugslysinu en vélin hrapaði

um það bil átta kílómetra frá flugvell-

inum i LakePlacid.

Brezkir Ijósmyndarar völdu

nýlega iþróttaljósmyndara ársins sem

var að líða. Það var brezka íþrótta-

ráðið og Konunglega brezka Ijós-

myndafélagið, sem stóðu að valinu

sameiginlega. Hefur það tíðkazt

möre undanfarin ár.

Fyrir valinu var Eamonn McCabe,

Ijósmyndari brezka blaðsins The

Observer. McCabe hlaut þessa

viðurkenningu einnig í fyrra og er

fyrstur til að hljóta titilinn tvisvar.

Hann var talinn hafa tekið beztu

einstöku    iþróttamyndina    og    var

einnig valinn almennt bezti íþrótta-

Ijósmyndarinn sem tekið hafði

svarthvítar myndir. Verðlauna-

myndin var af lömuðum íþrótta-

manni sem var að kasta kringlu úr

hjólastól.

Eamonn McCabe Ijósmyndari The

Observer varð fyrstur til að hljóta

titilinn bezti iþróttaljósmyndari

Bretlands tvö ár i röo. Aíí neðan eru

nokkrar af myndum hans.

I

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28