Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš

						DAGBLADID. FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1980.

Enn lekur geislavirkt e/t-

ur á Þriggja mílna eyjui

i

Geislavirkt efni lak enn einu sinni

úr tækjum kjarnorkuversins á

Þriggja mílna eyju rétt við Harris-

burg í Pennsylvaníu í gær. Er þetta i

annað sinn, sem þetta verður á einni

viku. í fyrra varð alvarlegasta

kjarnorkuslys sem um getur i kjarn-

orkuknúinni raforkustöð í þessu

sama orkuveri. Lekinn í gær var sá

fjórði   úr   kjarnorkustöð   i   Banda-

ríkjunum á þrem siðustu dögum.

Talsmenn þeirra sem reka

orkuverin á Þriggja mílna eyju, og

annars sem er rétt við Lusby í

Marylandríki, fullyrða aðalmenningi

hafi engin hætta verið búin vegna at-

burðanna.

-   Kjarnorkuverið  á   Þriggja   mílné

eyju   hefur  verið  lokað  og  ekki   í .

rekstri siðan hinn 28.  marz sl.  Þá

komst geislavirkt efni frá verinu út i

andrúmsloftið. Var þá fjöldi fólks

fluttur frá heimilum sínum í nágrenni

stöðvarinnar og óttazt var að börnum

og þunguðum konum væri hætt við

heilsutjóni af völdum geislavirkni. í

þaðminnsta eitt mál er nú rekið fyrir

rétli í Bandaríkjunum þar sem kona

sem missti fóstur vill fá bætur vegna

þess þar sem hún telur að geislavirkni

frá orkuverinu á Þriggja mílna eyju

hafi valdið fósturlátinu.

Síðasta bilunin í orkuverinu olli

því að geislavirkt efni komst út fyrir

það svæði i stöðinni sem þvi er ætlað

að vera. Stóð hún í sextán

klukkustundir en nú hefur tekizt

komast fyrir bilunina að sögn sér-

fræðinga.

Lekinn kom i Ijós við reglubundið

eftirlit og sýnatöku i byggingum

kjarnorkuversins. í orkuverinu i

Maryland fóru viðvörunartæki hins

vegar í gang og talið var nauðsynlegt

að flytja nokkra starfsmenn frá þeim

stöðum, þar sem þeir starfa undir

eðlilegum kringumstæðum. I.ckinn

var sagður hafa verið mjög

óverulcgur.

El Salvador:

Vinstrí

menn taka

sendiráð

Panama

Vinstri sinnaður hópur búinn

vopnum tók sendiráð Panama í

San Salvador höfuðborg El

Salvador i gærkvöldi. Einnig

tóku þeir nokkrar stjórnarbygg-

ingar á sitt vald. Kemur þetta i

kjölfar átaka á milli vinstri sinna

og liðssveita hægrisinna i fyrra-

dag en þá féllu tíu manns i borg-

inni við mótmælafund vinstri

manna. Sjá nánar um ástandið í

El Salvador á blaðsíðu tiu og

ellefu.

íran:

Danir gæta

hagsmuna

Kanada-

manna

Danska sendiráðið í Teheran

hefur nú tekið að sér að annast

mál Kanada i íran. Er þetta vegna

þess að Kanada hefur lokað

sendiráði sinu í landinu. Áður

hafði nýsjálenzka sendiráðið séð

um málefni Kandamanna en því

hefur nú einnig verið lokað.

Fangar i rfkisfangelsinu i Nýjti Mexlkó, sem er i borginni Santa Fe urðu að dúsa utandyra um hrið eftir að uppreisn nokkurs

liluta þeirra hafði verið bæld niður á dögunum. Uppreisnarástandið stóð yllr i um það bil einn og hálfan sólarhring og féllu

þrjátfu og fimm manns. Aðallega voru þeir myrtir af samföngum sinum, sem gengu berserksgang og notuðu tækifærið f upp-

lausninni og komu óvinum sfnum fyrir kattarnef. Fanganna á myndinni gæta þjóðvarðliðar, sem komu gæzluliði fangelsisins

til aðstoðar.

Bretland:

Drápust hvalirnir þrír

af eiturefnum?

Sérfræðingar voru kallaðir til vegna

dauða þriggja hvala við suðurströnd

Englands, en þar rak þá á land fyrr í

vikunni. Grunur leikur á að dánarmein

hvalanna hafi verið eitrun frá efnum,

sem mengað hafi hafið á þessu svæði,

eftir að grískt flutningaskip sökk þar í

nóvember síðastliðnum. í lestum þess

voru dunkar með alls konar banvænum

sýrum og vörum til efnaiðnaðar, þegar

það sökk á eitt hundrað faðma dýpi.

Strandgæzlan við borgina Barton hefur

tilkynnt að rúmlega fimmtán hundruð

dunkar með eiturefnum hafi fundizt á

hafsbotni auk þess sem eitthvað af

þeim hefur rekið á fjörur.

Tveir hvalirnir fundust dauðir i

fjöruborðinu á mánudaginn var en sá

þriðji í gær.

Zimbabwe/Ródesía:

KOSNINGAR HViflRA

í tottugu sæh

— búizt við yfirburðasigri flokks lans Smiths

Hvítir íbúar Zimbabwe/Ródesíu

ganga til kosninga í dag og eiga að

kjósa tuttugu þingmenn úr sinum

hópi til að sitja á þingi landsins þar

sem verða eitt hundrað þingmenn. Ef

allt fer samkvæmt áætlun verða þetta

siðustu kosningarnar áður en Bretar

sleppa hendinni af þessari síðustu

nýlendu sinni i Afríku og fela stjórn

landsins í hendur leiðtoga svarta

meirihlutans.

Ekki þykir neinn vafi á að flokkur

lan Smith, fyrrum forsætisráðherra

Ródesíu, muni bera sigur úr býtum í

kosningunum. Af þeim tuttugu þing-

sætum sem kosið er um er aðeins

talinn möguleiki á að hann tapi sex.

Samkvæmt nýgerðu samkomulagi á

Lundúnafundinum, þar sem gengið

var frá friðarsamningum í Zimb-

abwe/Ródesiu, hafa hvitir menn ekki

lengur neins konar neitunarvald á

þingi landsins. Hlutfall þingmanna

þeirra, miðað við fjölda ibúa, er að

vísu hátt. Þeir hafa fimmtung þing-

manna en eru aðeins um það bil

tultugasti hluti ibúanna.

lan Smith er ekki í landinu þegar

kosningarar afar fram. Hann fór til

Bandarikjanna i gær en þar hefur

honum verið boðið að halda fyrir-

lestra viðs vegar um landið. Er Smith

með þessu að sýna andstöðu sina

gegn friðarsamningunum sem gerðir

voru í desember síðastliðnum, undir

forustu Carringtons lávarðar ulan-

ríkisráðherra Bretlands.

Kosningar svartra i Zimb-

abwe/Ródesíu verða haldnar 27. til

29. þessa mánaðar. Þar með verður

að öllum likindum lokið sjö ára bar-

áttu skæruliða gegn völdum hvítra í

landinu. Þeir lýstu einhliða yfir sjálf-

stæði Ródesíu frá Brezka heims-

veldinu árið 1965. Sú stjórn fékk

aðeins viðurkenningu Suður-Afríku,

og fyrri stjórnar i Portúgal en var

fordæmd af Bretum og nær öllum

öðrum þjóðum sem eru i Sameinuðu

þjóðunum. Var viðskiptabann sam-

þykkt gegn stjórn hvítra manna, sem

að lokum neyddj þá til að láta undan

kröfum svartra um völd og frelsi.

J»

Kkki eru taldar neinar horfur á að

andstæðingar Ian Smith í hópi hvitra

fái nema í mesta lagi sex af þeim

tullugu þingsætum, sem hvitir ibúar

Zimbabwe/Ródesiu gætu fengið i

kosningunum.

Mjög

fullkomið

CASIOtölvuúr

á hagstæðu verði.

einkaumbofl á Islandi

Bankastræti 8. Sími 27510

CITROEIM

VARAHLUTIR

Driföxlar FGS

Pústkerfi FGS

Viðgerðir — Varahlutir

m

E. Oskarsson

Skeifunni 5.

Simi 34504.

P


SKIPAUKiCRB   BÍKI^INS

Coaster Emmy

fer frá Reykjavík þriðjudaginn 19.

þ.m. vestur um land til Húsavíkur

og tekur vörur á eftirtaldar hafnir:

ísafjörð, (Flateyri, Súgandafjörð

og Bnlungarvík um Ísafjórð),

Akureyri, Húsavík, Siglufjórð og

Sauðárkrók. Vörumóttaka alla

virkadaga til 18. þ.m.

m/s Baldur

fer frá Reykjavík þriðjudaginn 19.

þ.m. og tekur vörur á eftirtaldar

hafnir: Þingeyri, Patreksfjórð,

(Tálknafjórð og Bíldudal um Pat-

reksfjórð) og Breiðafjarðarhafnir.

Vórumóttaka alla virka daga til

18.þ.m.

m/sEsja

ferfrá Reykjavik fimmtudaginn 21.

þ.m. austur um land i hringferð og

tekur vörur á eftirtaldar hafnir:

Vestmannaeyjar,         Hornafjnrð,

Djúpavog, Breiðdalsvik, Stóðvar-

fjörö, Fáskrúösfjörð, Reyðarfjörð,

Eskifjörð, Neskaupstað, Mjóa-

fjörð, Seyðisfjórð, Borgarfjórð

eystri, Vopnafjórð, Bakkafjórð,

Þórshöfn, Raufarhöfn, Húsavik og

Akureyri. Vörumóttaka alla virka

daga til 20. þ.m.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28