DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1980. Þórir Baldursson kom við íKeflavík á leið til Bandaríkj- anna og lét skíra börnin tvö: Biðin eftir frgðinni getur orðið löng jajhvel vilöng Aðalerindi okkar heim núna var að lála gefa tveimur börnum okkar hjónanna nafn, öðru nokkurra mánaða og hinu svo stálpuðu, að strákurinn gat sagt nafnið sitt sjálfur, áður en hann var skírður," sagði Þórir Baldursson, hljómlistarmaður- inn góðkunni, i samtali við Suður- nesjatíðindifyrir skömmu. Þórir kom ásamt fjölskyldu sinni til íslands og dvaldi í viku á heima- slóðum i Keflavík. Þau komu við á leiðinni frá Þýzkalandi til Bandaríkj- anna. Þar hyggst Þórir setjast að með sínu fólki og reyna fyrir sér i músík- bransanum. Hann mun vinna að út- setningum og tónlistarflutningi fyrir tvö útgáfufyrirtæki í Bandaríkjun- um. Starl' mitt er vinna og aftur vinna ekki má slaka áef maður á ekkiað falla út, þá getur lekið langan tima að komast inn í hringinn aftur. Eins og aðrir er ég að vona að ég detti í lukkupottinn með útsetningu eða lag. Þá væri ég á grænni grein. En biðin eftir þvi getur verið ærið löng hjá mér eins og öðrum. Og kannski verður hún ævilöng á dægurlaga- Þórir ésamt fjölskyldunni. Fré vinstri: Björn Þárisson, Þórir moð dótturina Carinu, oiginkona Þóris, Christina Lizolli, og Christian Thor. Mynd: Suóurnesjatiðindi. markaðnum eru margir kallaðir en fáir útvaldir," segir Þórir. Hann hafði ekki tíma til að hitta gömlu félagana úr Savannatrióinu. Óneitanlega hefði verið gaman að dvelja með þeim eins og eina kvöld- stund og ylja sér við gamlar minn- ingar með því að hlusta á gömlu plöt- urnar." -ARH. 99 Skemmtilegt og tímajrekt starf' segir Halldór Pálsson sem nú lætur af störfum sem búnaðarmálastjóri ,,.lá. Það er rctt, ég er að hætta. Það er krankleiki sem ræður þvi. Ég hætti að læknisráði," sagði Halldór Pálsson búnaðamálastjóri er Dag- blaði^ spurði hann hvort hann væri að láta af störfum. Halldór hættir sc nbui aðamálastjóri I. mai næst- komandi. ATLIRUNAR HALLDÓRSSON ,,Eg hef alltaf haft eitthvað af aukastörfum með þessu slarfi. Þannig hef ég til dæmis fengizt tals- vert við lifeðlisfræði varðandi kjöt- gæði og ég býsl við að halda þvi áfram," sagði Halldór. ,,í aðra röndina reikna ég með að sjá eftir starfinu. En það er líka gott að geta minnkað við sig þegar starfs- þrekið minnkar. Þetta er skemmtilegt starf og lima- frekt. Það þarf mann í fullu fjöri til að gegna því. Ég geri alveg ráð fyrir að einhverjir verði til að sækja um starfið þar sem það er bæði umsvifa- mikið og skemmtilegt," sagði Halldóraðlokum. -GAJ. Logi Dýrfjörð plótusnúður. DB-mynd Hörður. » Ég á Islandsmet í plötusnúningi" Ég á íslandsmetið í plölusnúningi og Vilhjálmur veit það. Ég sagði við hann síðast á fimmtudag að hann yrði að ná mínu meti áður en hann færi að grobba sig," sagði Logi Dýr- fjörð plötusnú.ðúr í samtali við DB. Dagblaðið hafði samband við Loga eftir að fólk hafði hringt hér inn til að láta i Ijós vanþóknun sina á því að Vilhjálmur Ástráðsson væri íslandsmethafi í plötusnúningi. Unglingaklúbbur Reykjavíkur var með maraþondanskeppni i Saltvik 27. og 28. október. Ég byrjaði að spila kl. 14.00 á laugar- deginum en þá byrjaði dagskrá sem var á undan keppninni. Maraþon- dansinn byrjaði siðan klukkan 18.00 og stóð til klukkan 13.00 næsta dag eða í 19tíma. Krakkarnir dönsuðu stanzlaust nema þau fengu fimm mínútna hlé á klukkutíma fresti. Þau voru 20 sem byrjuðu og fjórir enduðu tímann. Ég spilaði samfleylt i 26 tíma og 48 minútur. Það hefur ekkerl verið sagt frá þessu meti, Logi, hvers vegna ekki? ,,Við létum fjölmiðla viia af þessu áður en það byrjaði en þeir virtust bara engan áhuga hafa. Það mæili enginn frá þeim og þess vegna var ekkert sagt frá þessu. Það var yfir hundrað manns á slaðnum sem eru vitni. Síminn hjá mér hefur ekki stoppað síðan það kom i blöðunum að Vilhjálmur væri íslandsmethafi. Það fólk veit nefnilega um þetta," sagði Logi Dýr- fjörð. Logi hefur verið plötusnúður i Hollywood, í Óðali og i Sigtúni. Nú hefur hann fengið starf i H-100 á Akureyri og byrjarþar innan skamms að snúa skifum. Ekki náðist i Vilhjálm til að fá hans svar við þessu máli. -ÉLA. Verða þeir fórnarlömb Jréttavarga? Alþingi er óvenju mikið í kastljósi fjölmiðlanna þessa dagana. Þar springa ríkissljórnir á limminu og nýjar fæðast. Nýjasti stjórnarkróg- .nn var að vísu tekinn með keisara- skurði úr kviði stærsta þingflokksins. En þaðei onnur saga. Grái steinkassinn við Austurvöll er orðið annað heimili fréttamanna. Þar snúast þeir valkrunkaralegir í kringum þingmenn á göngum. Farandsögur um þingmannaplolt fljúga um gangana og menn spá spekingslega í spilin. Hörður Ijósmyndari sneri vopni sínu um stund gegn samherjum á Alþingisvaktinni. Til vinstri er Helgi H. Jónsson á fréttastofu útvarps. Með honum er Árni Johnsen á Morgunblaðinu. Báðir voru þeir í framboði i síðustu þingkosningum, Helgi H. fyrir Framsókn í Reykjanes- kjördæmi og Árni fyrir Sjálfstæðis- flokk á Suðurlandi. Kannski stefna þeir að þvi að verða sjálfir fórnar- lömb fréttavarga á göngum þing- hússins. Hver veit? -ARH F0LK Spilaðiekki bridge Um það var rætt yfir kaffibolla, hversu frjálslega stjórnmálamenn færu með hugtökin hægri og vinstri þessa dagana.Voru viðstaddir sam- mála um, að þau segðu harla lítið um pólitiska skoðun eins og þau væru al- mennt notuð. Merking hugtakanna hefði slappazt í samræmi við hálf- velgju tíðarandans og óglögg landa- mæri milli flokka og forystumanna. Stefán heitinn Thorarensen, apótekari í Laugavegsapóteki, var gagnmerkur maður fyrir margra hluta sakir. Hann tróð ekki skoðun sinni upp á samferðamenn en tók sjálfur afstöðu til þess er honum þólti máli skipta. Þorði hann að standa á meiningu sinni á hverju sem gekk. Stefán var ekki samvinnumaður i stjórnmálaviðhorfi. Kunnugur maður sagði, að hann hefði ekki spil- að bridge vegna þess að í því spili var samvinna tveggja. Þá voru til menn, sem gerðu glögg skil á hægri og vinstri og vissu lika hvað þeir vildu og meintu, líka í landsmálum," sagði sögumaður. Klósett eru tilmargra hluta nytsamleg íslenzk stúlka fór til Danmerkur í atvinnuleit og kunni fátt fyrir sér í móðumáli Bauna. Hún var ákveðin í að afla sér staðgóðrar þekkingar á dönsku á sem stytzlum tíma og hellti sér óhrædd út í samræður við vinnu- félagana. Einn daginn spurði hún kvenkyns yfirmann sinn hvort hún færi einhvern tíma á skiði. Konan skildi ekki spurninguna og sú íslenzka reyndi afiur: Gaar dú ikke paaskide?" Yfirmaðurinn leit kuldalega á starfsmann sinn og sagði iskaldri röddu: Hér i Danmörku heitir það að gaa paa loilettet." Jasaa," svaraði íslendingurinn. Þið kalliðþaðloilett!" Og i næsta kaffitíma mátti heyra þá islenzku í hrókasamræðum við vinnufélagana. Hún var að skýra út fyrir þeim að helzta ánægja íslend- inga væri fólgin i þvi að prila upp á fjallatinda með klósettin sín undir hendinni og láta sig hvina niður á þeim. ... ^ Löggur allra sólarlanda, sameinizt! Eysteinn Helgason, forstjóri Sam- vinnuferða-Landsýnar, sagði á Sam- vinnuferðakvöldi um síðustu helgi að næstkomandi sunnudag myndu 60 lögregluþjónar halda utan og dvelja á sólarströndum. Heimildarmaður Fleira fólks á samkundunni sá fljótt aðef allur þessi löggufloti væri úr liði höfuðborgarinnar þýddi það sælu- tíma fyrir alla þá sem vilja halda sér öfugum megin við landamæri laga og réttar. Alls eru starfandi um 150 lögregluþjónar í Reykjavík. Við verðum að vona að farandflensur og hettusóttir höggvi ekki skörði raðir varða laganna sem sitja eftir heima. F0LK