Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš

						„Styð Albert

eindregið"

—segir Eggert Haukdal

„Ég styð Alberi eindregið"," sagði

Eggert Haukdal alþingismaður er DB

innti hann eftir því, hvern hann hygðist,

styðja í komandi forsetakosningum.

„Ég hef kynnzt honum sem'

hreinskiptum drengskaparmanni, auk

þess sem ég tel að forsetinn þurfi að

hafa nokkra stjórnmálareynslu. Ég

held að það sé góður kostur," sagði

Eggert.                                        -GAJ.

Fjórar styttur horfnar

Fjórum skrautstyttum úr gipsi var

stolið úr geymslu áfastri við eldri bóka-

búð Andrésar Nielssonar á Akranesi

aðfaranótt sl. mánudags.

Hér er um nokkuð dýrar styttur að

ræða, eða um 200 þúsund krónur að

útsöluverði. Lögreglan á Akranesi

vinnur að rannsókn málsins og væru

vpplýsingar henni kærkomnar.   -A.Sl.

FA HEILDSALAR

TOLLKRÍTINA

HJÁ „KOMMUIVr?

— Ríkissjóður myndi engu tapa en innflytjendur fengju greiðslufrest

Greiðslufrestur á tollum af

innfluttum vörum er eitt mesta

keppikefli islenzka innflytjenda.

Telja þeir tollkrít mikið hagsmuna-

mál, bæði innflytjenda, kaupmanna

og neytenda. Hefur verið leitað

heimildir fjármálaráðuneytis og

óskað fyrirgreiðslu þess i niálinu.

Telja innflytjendur nú, að hinn

nýi fjármálaráðherra muni sýna

umleitun þeirra meiri skilning en þeir

hafamætt undanfarin ár.

Greiðslufrestur á tollum og ef til

vill öðrum innflutningsgjöldum

myndi að sjálfsögðu þýða seinkun á

innheimtu þessa tekjustofns rikis-

sjóðs um sinn. Fljótlega færi þó i

sama horf og ríkissjóður myndi engu

lapa en innf!ytjendur fengju

greiðslufrest á lollum, sem eru

himinháir á vissum vörutegundum.

Verulegar           fjárhæöir           í

geymslukostnaði í vöruhúsum myridi

sparasl og þannig hefði þessi tilhögun

áhrif til laekkunar vöruverðs til

neylenda og aukinnar og betri

þjónustu. Þetta yrði hvati að þvi að

kaupa inn í stærri einingum og ná

þannig oft á tíðum hagstæðara

vöruverði. Ekki sízt Ieysti það

stöðugt vaxandi rekstrarfjárskort

innflutningsfyrirtæk ja.

-BS.

Sýkna í skipakaupamálh

Harður

árekstur í

sólskininu

Mjög harður árekslur varð á

móliim Bergslaðastrælis ng Njarfiar-

götu í gærdag. Ekki er óliklegt :in

gófla veririn i gær, þ.e. sólskinio,

hafi átt sinn þátl í árekstrinum. Eins

og nynd Kagnars Th. Ijósmyndara

s>ni eru báoar bifreiðirnar inikio

skemmdar eftir áreksturínn.

Dularfull-

ir gestir

í Karnabæ

Þrir menn löluvert slompaðir af vin-

drykkju voru handteknir á Laugavegi á

fjórða timanum i nótt. Hafði lögreglan

fengið vitneskju um að til einkennilegra

mannaferða sæist í verzlun Karna-

bæjar við Laugaveg. Fylgdi upplýsing-

um lögreglunnar lýsing á klæðnaði

þeirra sem um verzlunina gengu þarna

um nóllina.

Er lögreglan kom á siaðinn voru

mennirnir horfnir en fundust nokkrum

minútum siðar. Voru þeir illa viðræðu-

hæfir ogsettir í geymslu.

í fljótu bragði var einskis saknað

íir búðinni en greinileg ummerki um

innbrot af ásetningi voru á hurð á bak-

hlið hússins. Málið verður rannsakað i

dag.

-A.SI.

Sökin var fyrnd

Nýleg voru sýknaðir í Sakadómi

Reykjavikur l'jórir menn sem ákærðir

vöru fyrir misferli i sambandi við

kaupin á toðnuskipinu Guðmundi

RE til landsins á sinum tima. i dóms-

orði segir, að sök þeirra i máliriu

verði að teljast fyrnd. Dóminn kvað

tipp Gunnlaugur Briem sakadómari:

Guðmundur     RE-29     kom     til

landsins 8. marz 1973 en samningar

um kaupin voru gerðir í Noregi 24.

október 1972. í afsali kemur fram að

uppgefið kaupverð skipsins var 6,6

milljónir norskra króna eða 87,3

milljónir islenzkra króna á þáverandi

gengi. Grumir lék á að rangt kaup-

verð hafi verið gefið upp víð íslenzk

yfirvöld þegar skipið var keypt—og

þannig brotin lög og reglur um gjald- ¦

eyrisviðskiptiogskaltframtal.

Kaupendur Guðrhundar RE voru

Fiskiðjan s.f. i Keflavík, sem á4ö% í

skipínu, og skipstjórarnir Hrölfur

Gunnarsson og Páll Guðmundsson

með 30% hvor.

-GAJ.

Hundsa loðnuskipsf jórar bannið?

AÐALLEGA TIL-

BÚIÐ í PÓLI-

TÍKINNI í LANDI

— segir Andrés Finnbogason í loðnunefnd

„Mér  sýnist   þetta  aðallega  vera     markið, eins og til stóð, en ekki nú         Hvort 300 þúsund tonna markið

tilbúið i pólitíkinni i landi þvi ég hef     þegar þeim hefur verið leyft að veiða     væri svo rétt, væri álitamál eins og

ekki heyrt frá skipstjórunum að nein     nær allan kvótann,"  sagði Andrés     stæði, sagði hann. Laust eftir kl. 8 i

samtök séu um að hundsa bannið.     Finnbogason     í     Loðnunefnd     i     morgun höfðu ekki borizt fréttir af

Það hefði ef til vill frekar komið til     morgun,   er   hann   beið   aflafrétta     neinni    veiði,    enda    veður    ekki

greina     hefðu      veiðarnar     verið     loðnubátanna, sem eiga eftir að Ijúka     ákjósanlegtá miðunum.

stöðvaðar   við   100   þúsund   tonna     sinnisíðustu veiðiferð.                                                                               -GS.

frjálst, áháð daghlað

FIMMTUDAGUR14. FEBRÚAR 1980.

Verður Sverr-

ir áf ram

kommissar?

Margt bendir til þess, að Sverrir

Hermannsson alþingismaður verði á-

fram „kommissar" í Framkvæmda-

stofnun ríkisins, þótt hann sé í and-

stöðu við núverandi ríkissljórn.

Sverrir mun hafa eins árs

uppsagnarfrest. Óvíst er að stjórnar-

liðar muni reyna að hreyfa við honum.

Sverrir hefur verið hvass í gagnrýni á

Gunnar Thoroddsen og nýju stjórnina.

Hinn „kommissarinn" er Tómas

Árnason, sem nú er viðskiptaráðherra.

Eftir að Tómas lét af ráðherraembætti

við fall vinstristjórnarinnar í haust,

hefur hann sinnt störfum i Fram-

kvæmdastofnun. Nú er hann orðinn

ráðherra og vilja framsóknarmenn fá

mann úr sínum röðum í kommissara-

starfið fyrir Tómas. Alþýðubandalags-

menn vilja þá einnig fá mann úr sínum

herbúðum í kommissarastarf.

Gæli svo farið, að kommissarar

yrðu þrir.

Þá hafa stjórnarliðar ráðgert að

Eggert Haukdal alþingismaður verði

stjórnarformaður i Framkvæmda-

stofnun.

-HH.

Skattafrum-

varp afgreitt

fyrir heigi

Tómas Ámason sat fund fjárhags-

og viðskiptanefndar neðri deildar í

gærkvöld, þótt hann sé orðinn

ráðherra. Má vera að aðrir ráðherrar

muni einnig sitja nefndafundi og halda

sætum sinum í riefndum, því að

stjórnarliðar eiga erfitt með að fylla i

skörðin, víki ráðherrar úr nefndum.

Fjárhags- og viðskiptanefnd af-

greiddi skattafrumvarpið, og verður

þvi hraðaðgegnum þingið. Frumvarpið

hefur verið til meðferðar í tvo mánuði.

í því eru ýmis ákvæði um framkvæmd-

aratriði, uppfærslu eigna og fleira en

ekkiskaltstigar.

Reynt verður að afgreiða málið fyrir

helgi.

-HH.

Páll Pétursson

formaður

þingflokksins

Páll Pétursson var í gær kjörinn for-

maður þingflokks Framsóknar. Hann

tekur við af Ingvari G'islasyni, sem er

orðinn ráðherra.

-HH.

LUKKUDAGAR:

14. FEBRÚAR  593

Kodak EK 100

myndavél.

Vinningshafar hríngi

ísíma 33622.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28