Dagblaðið - 17.03.1980, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 17.03.1980, Blaðsíða 14
14 (S DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 17. MARZ 1980. Iþróttir íþróttir Iþróttir Iþróttir Árni Þ6r Árnason sigraði ðrugglega i stórsviginu á laugardag. DB-mynd Þorri. Njarðvík lifir enn þá í veikri von —eftir átakasigur gegn Fram, 79-76 Framarar kvöddu úrvalsdeildina með lapi eins og við mátti búast en frammistaða þeirra gegn Njarövík sýndi og sannaði að liöið er allt of gott til að falla niður. Njarðvík sigraöi í leiknum 79—76 eftir að hafa leitt 46— 41 í hálfleik en Framarar létu Suður- nesjamennina svo sannarlega hafa fyrir sigrinum. Njarðvík skoraði aðeins 6 stig síðustu 8 og hálfu minútu leiksins á meðan Framarar skoruðu 17 stig. Þessi góði kippur Fram var ekki nógur og Njarðvikingar eygja því enn von um tit- ilinn. Framarar komu strax á óvart og náðu undirtökunum. Varnarleikurinn var mjög góður, leikmenn börðust vel, og árangurinn var sá að þeim tókst að halda Njarðvikingum í skefjum lengst af. Eftir 4 min. leiddi Fram 10—8 og um miðjan hálfleikinn var staðan 20— 17 Fram í vil. Eftir það komust Njarð- vikingar loks yfir en liðin skiptust á um að hafa forystuna og t.d. var jafnt 33— 33 þegar 4 mín. voru til leikhlés. Undir lok hálfleiksins tóku Njarðvíkingar góðan sprett og komust í 46—41. Svo virtist sem Njarðvíkingar ætluðu að stinga Framarana af þvi fljótlega í Ásdís og Ámi unnu og með örugga fomstu — íbikarkeppni Skíðasambandsins íalpagreinum ,,Þaö var auðvitað mjög ánægjulegl að sigra bæði í svigi og stórsvigi — mér tókst mjög vel upp að þessu sinni og hef sennilega aldrei verið betri en núna,” sagði Ásdís Alfreðsdóltir, Keykjavik, eftir að hún sigraöi í svigi og slórsvigi á Bikarmóti SKÍ í Bláfjöll- um um helgina. Hún hefur sýnt mikla framför i vetur og hefur sigrað fimm sinnum í röð á punktamóti. Bikarmót í alpagreinum var haldið i Bláfjöllum um helgina. Keppt var i stórsvigi á laugardag en svigi á sunnu- dag. Minnstu munaði að fresta yrði stórsviginu á laugardag vegna ófærðar — og rafntagnsleysis. En það tókst að koma keppninni á vegna harðfylgis keppenda og starfsliðs skiðadeildar Ármanns, sem sá um framkvæmd mótsins. Árni Þór Árnason, Reykjavík, sigraði i stórsviginu með yfirburðum en hins vegar hlekktist honum á i sviginu og varð að hætla þar keppni. Árni og Ásdis eru komin i fremstu röð íslenzkra skiðamanna í dag — ef ekki þau allra fremslu. Þau hafa nú örugga forustu i Bikarkeppni SKÍ. Árni með 120 stig og Ásdis með 145 stig. Olympíufararnir Sigurður Jónsson og Björn Olgeirsson mættu ekki til keppni — hvorugan keppnisdaginn. Björn er meiddur á fæti en það kom öllum á óvart að Sigurður lét ekki sjá sig. Nú voru tekin i nolkun i fyrsta skipti ný tímatökutæki, sem Björn Kristins- son verkfræðingur, fyrrum formaður skiðadeildar Ármanns, smiðaði. Verð- launaafhending fór fram við Ármanns- skálann að loknu sviginu i gær. Móts- stjóri var Þorsteinn Þorvaldsson, Þorri. íþróttir Siguröur Sverrisson Helztu úrslit urðu þessi: Slórsvig kvenna: 1. Ásdis Alfreðsdóttir R 105.74 2. Steinunn Sæmundsd. R 107.55 3. Nanna Leifsdóttir A 108.90 4. Halldóra Björnsdóttir R 111.55 5. Asta Ásmuridsdóttir A 112.39 Stórsvig karla: 1. Árni Þór Árnason R 104.71 2. Haukur Jóhannsson A 106.94 3. Valdimar Birgisson Í 108.59 4. Helgi Geirharðsson R 109.41 5. Bjarni Sigurðsson H 109.43 6. Björn Vikingsson A 110.41 Svig karla: 1. Haukur Jóhannsson A 95.30 2. Karl Frímannsson A 97.28 3. Kristinn Sigurðsson R 98.65 4. Bjarni Sigurðsson H 99.26 5. Valdimar Birgisson í 99.44 6. Elias Bjarnason A 100.34 Svig 1. Ásdís Alfreðsdótlir R 106.99 2. Nanna Leifsdóttir A 111.37 3. Halldóra Björnsdóttir R 111.50 4. Ásta Ásmundsdóttir A 117.24 byrjun s.h. komust þeir í 54-44. Fram- ararnir gáfust ekki upp og smáminnk- uðu muninn. Aftur tóku Njarðvikingar kipp og komust 14 stigum yfir 73—59. Voru þá 8 og hálf mínúta til leiksloka. Þá var eins og liðið hryndi á taugum og leikreyndir menn hittu ekki úr upp- lögðum færum. Þrátt fyrir ótímabær skot oft á tíðum tókst Fram að saxa á forskotið og þegar tæpar 3 mín. voru til leiksloka var munurinn kominn í 1 stig, 75—74 Njarðvik í vil. Njarðvík- ingar höfðu þá aðeins 2 stig á tæpum 6 mínútum. Ekki beint meistarataktar. Þeir héldu þó haus í lokin og tókst að hala inn sigur 79—76. Ekki hefði þurft að spyrja að leikslokum ef.Framarar hefðu verið með góðan Bandaríkja- mann í liði sínu. Vafalítið hafa Njarðvíkingar verið taugastrekktir fyrir leikinn því þeir urðu að sigra til að eiga möguleika á sigri í mótinu. Það tókst þeim og nú mæna þeir á erkióvininn, KR, og vona að það leggi Val að velli í kvöld. Fari svo fá Njarðvíkingar aukaúrslitaleik við Val. Flestir í UMFN léku undir getu í gær. Það var helzt að ungu mennirnir væru afslappaðir og bæði Júlíus og Jón Viðar komu vel út. Þá setti Smári skemmtilegan svip á leikinn undir lok- in. Hjá Fram átti Símon frábæran fyrri hálfleik en þreyttist i þeim siðari. Þor- valdur Geirssontókþá við og sýndi stór- góðan leik, Hilmar lék mjög vel framan af en ótimabær skot hans undir lokin voru þung á metunum. Bjöm Jónsson átti góðan leik í vörn svo og nafni hans Magnússon sem hirti mörg fráköst. í raun synd að horfa á eftir Fram niður í 1. deildina. Dómarar voru þeir Hörður Tulinius og Jón Olti Ólafsson og voru nokkuð mistækir — ósamræmi of algengt í dómum þeirra. Vafalítið er orsökin of litil samæfing en Hörður er búsettur á Akureyri og á því ekki hægt um vik. Stig Fram: Símon Ólafsson 33, Þor- valdur Geirsson 21, Guðmundur Hall- steinsson 6, Ómar Þráinsson 6, Hilmar Gunnarsson 6 og Björn Magnússon 4. Stig UMFN: Ted Bee, 22, Gunnar Þorvarðarson 16, Guðsteinn Ingimars- son II, Július Valgeirsson 8, Jónas Jóhannesson 9, Smári Traustason 6, Brynjar Sigmundsson 4, Jón Viðar Matthíasson 3. - SSv. KR-ingar í undanúrslitin KR-ingar tryggðu sér sæti í undanúr- slilum bikarkeppni HSÍ á laugardag er þeir sigruðu 3. deildarlið ÍA með 28 mörkum gegn 22 á Akranesi I skemmti- legum leik. I hálfleik leiddi KR 14—11. Skagamenn voru sterkari I byrjun og komust í 3—1 og síöan 5—2 en KR- ingar náðu að komast yfir fyrir hálf- leik. í siðari hálfleiknum var alil í járnum lengi vel en KR-ingar voru sterkari í lokin og sigruðu með áður- nefndum tölum. Mörk KR: Björn P. 8/3, Simon 7, Konráð 4, Haukur Ottesen 4, Jóhannes 2, Ingi Steinn 2 og Friðrik 1. Mörk ÍA: Haukur 8/3, Krislján 4, Jón Hjaltalín 3, Guðjón 3, Daði 2 og Þórður F.l. 2. Áhorfendur voru tæplega 400 og var góð stemmning í húsinu enda ekki á hverjum degi sem 1. deildarliö kemur í heimsókn á Skagann. - SSv. Smock skoraði sigurkörfuna einni sekúndu fyrir leikslok —tryggði ÍS106-104 sigur yf ir ÍR á laugardag íleik hinna slöku vama Trenl Smock Iryggöi Stúdenlum skemmtilegan endi á Islandsmótinu i velur er hann skoraöi sigurkörfuna í leik ÍR og ÍS á laugardag þegar aöeins 1 sek. var til lciksloka. Þegar staðan var Skemmtileg keppni í yngri f lokkunum — úrslit á hreint f öllum f lokkum nema 3. flokki kvenna Urslitakeppnin í yngri flokkunum í handknattleik fór fram um helgina og var viðast hvar hörkukeppni. í 3. flokki kvenna var þó ekki hægt að Ijúka keppninni og mun henni Ijúka í kvöld. Vegna þrengsla verðum viö að fara afar hratt yfir sögu en munum reyna að bæta úr því á morgun og birta þá öll úrslit og hugsanlega myndir af sigurvegurunum. í Eyjum fóru úrslitin í 3. flokki karla fram og þar sigraði KR. FH varð i öðru sæti, Fram í þriðja, Stjarnan i fjórða, ÍR í fimmta, Þór, Vm. i-sýötta og lestina rak KA. í 4. flokki, sem leikinn var í Hafnar- firði, sigraði Þór, Akureyri. HK varð i 2. sæti og Valur i 3. sætinu. Fimmti flokkur karla var háður að Varmá. Þar sigraði Fram eftir aukaúr- slitaleik við Hauka. Lokatölur i þeim leik urðu 11—6. Víkingur varð svo í 3. sætinu. Valsstúlkurnar urðu íslands- meistarar i 2. flokki eins og búizt var við fyrirfrani. Þær unnu alla leiki sina i úrslitunum á Akranesi. Fram varð í 2. sæti, ÍA í 3. sæti eftir aukaleik við ÍR, sem lauk 11—7, Fylkir varð i 5. sæti og Huginn rak lestina. Lið Þórs frá Akur- eyri komst ekki til leiks. Á Selfossi átti úrslitakeppninni i 3. flokki kvenna að ljúka. Það tókst þó ekki því lið Þórs á Akureyri kom allt of seint suður vegna veðurhamsins um helgina og því verður að klára leikina á morgun. Ljóst er þó að Fram er Íslandsmeistari i flokknum og Fylkir í 2. sæti. í þriðja sætihu eins og er eru stúlkurnar úr ÍR en ekki er vís't að þær haldi þvi. Þór, sem nú hefur 4 stig, á eftir 2 leiki gegn FH og Víkingi og með sigri í þeim báðum verður aukaleikur á milli ÍR og Þórs um 3. sætið. -SSv. 104—104 og 4 sek. eftir fékk ÍS boltann eftir misheppnaö skot Kristins Jörundssonar, sem annars átti mjög góðan ieik. Boltinn var sendur á Smock, sem rétt hafði tíma til að líta á klukkana og lét síðan skotið ríða af rétt innan miðlinu. Klukkan gall á miðri leið knattarins, en hann fór rakleiöis ofan i körfuna, 106—104 og sigurinn i höfn. Staðan i hálfleik var 59—55 ÍS í vil. Það var greinilegt á leikmönnum beggja liða að ekkert var í húfi í þessari viðureign. Bæði liðin með trygga stöðu í deildinni og varnarleikurinn 'var því látinn lönd og leið. ÍS hafði alltaf yfir- höndina og eftir 6 mín. var staðan orðin 24—14 Stúdentunum i vil. ÍR smásaxaði á forskotið en tókst ekki að minnka það nema í 4 stig fyrir hlé. ÍR-ingar náðu fljótlega að minnka muninn niður í 1 stig í síðari hálfleikn- um og þegar rúmar 6 mín. voru af honum var staðan 71—70 ÍS í vil. Réttum sex min. síðar var munurinn enn aðeins I stig, 85—84. ÍR komst síðan yfir 88—87 en Stúdenlar kræktu i forystuna aftur en síðan voru liðin hnifjöfn allan lokakaflann. Það leit út fyrir sigur ÍR þegar 34 sek. voru eftir því þá fengu þeir knött- inn. Þeir héldu honum skynsamlega og Kristinn Jörundsson lét skot ríða af er 5 sek. voru eftir.Knötturinn fór í körfu- hringinn og þar náðu Stúdentar frá- kastinu. Úrslitakörfunni hefur áður verið lýst. Stúdentar geta því vel við unað að hafa fengið 12 stig í mótinu eftir að hafa aðeins unnið 1 af fyrstu 9 leikjum sinum i mótinu. Þrir sigrar gegn Fram, tveir gegn KR og einn gegn ÍR færir þeim að visu aðeins 5. sætið i deildinni en liðið á varla skilið hærra sæti. Liðið hefur tekið augljósum framförum á undanförnum vikum og endurkoma þeirra Inga Stefánssonar og Steins Sveinssonar hefur hleypt nýju blóði í liðið ef hægt er að komast svo að orði þvi báðir eru þeir félagar vel yfir þrí- tugt. Kolbeinn Kristinsson lék ekki með ÍR i þessumleiken þrátt fyrir tapið lék liðið ágætlega á köflum. Sóknarleikur- inn gekk oft vel upp — samvinna Krist- ins og Christensen stundum stór- skemmtileg. Hins vegar var vörnin öll í molum. Jón Jörundsson kom vel frá sóknarleiknum og skoraði fallegar körfur en varnarleikur hans var að sama skapi slakur. Þá var Stefán með fjörugra móti núna og þandi kassann að vanda hressilega. Dómarar voru þeir Kristbjörn Al- bertsson og HörðurTulinius og komust þeir vel frá sínu verkefni hvað svo sem Tim Dwyer kann að finnast. Stig ÍR: Mark Christensen 36, Krist- inn Jörundsson 31, Jón Jörundsson 23, Stefán Kristjánsson 6, Jón Indriðason 4, Þorsteinn Hallgrímsson 3 og Sigmar Karlsson 1. Stig ÍS: Trent Smock 32, Jón Héðinsson 19, Ingi Stefánsson 16, Steinn Sveinsson 13, Bjarni Gunnar Sveinsson II, Atli Arason 6, Gunnar Thors 4, Albert Guðmundsson 4 og Gisli Gislason I. - SSv. I 1 III’ III ííiltlllt I' [lUIiIlt____ ; i r t t; c' 11

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.