Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš

						Gíf urlegt tjón á höf uðborgarsvæðinu:

Þakplötur eins ogskseða-

drífa—bfíarnir íhrúgur

— líki þessu ekki við neitt nema Vestmannaeyjagosið, sagði lögreglumaður

íReykjavík

„Ég hef aldrei séð annað eins,"

sagði lðgreglumaður í Árbæjarstöð

lögreglunnar i Reykjavik i morgun.

„Þakplötur fuku eins og skæðadrífa,

bílar fuku saman i hrúgur, engum var

stætt og fólk skreið á fjórum fótum.

Stanzlaus útköU voru hj.'i lögreglunni

og björgunarsveitum, sem voru i alla

nótt að bjarga fólki og eignum. Tjón-

ið er svo gífurlegt og viðtækt að ekki

hefur veríð nokkur leið að sinna t.d.

bilatjóninu. Ég get ekki likt þessu við

neitt annað en gosið í Vestmannaeyj-

„Ég er í raun og veru hissa á því að

ekki skyldi verða manntjón i bænum,

þakplöturnar fuku um allt eins og

skæðadrífa," sagði Arnþór Ingólfs-

son aðalvarðstjóri í Reykjavikurlög-

reglu. „Kallaðar voru út hjálparsveit-

ir og viðbótarlögreglulið, ástandið

varskelfilegt."

Ekki er hægt að gera sér grein fyrir

tjóninu, sem varð á höfuðborgar-

svæðinu i óveðrinu i gærkvöldi og

nótt, en ljóst er að það er gifurlegt.

Veðurhæðin var gífurleg og verst var

ástandið í Árbæjar7 og Breiðholts-

hverfum þar sem þakplötur hreinlega

sópuðust af husum. í miðborginni

má sem dæmi taka, að þakplötur

fuku af verzlunarhúsi Viðis i Austur-

stræti, Fjalakötturinn laskaðist, og

hluti af þaki fauk af Iðnaðarbankan-

um. Á Seltjarnarnesi fauk þak af

ibúðarhúsi      á     Skólabraut         i

heilu lagi. Þá fauk uppslátturinn að

barnaheimilinu við Hnitbjörg og

þakið fauk að miklu leyti af fæðing-

ardeild Landspítalans. Þá fuku

plötur af Borgarspitalanum og

húsum á víð og dreif um borgina.

Þrjár vaktir voru kallaðar út til

starfa hjá slökkviliðinu og unnu 40

manns þar í alla nótt við hjálparstörf.

Margir lögreglumenn, sem eiga öfl-

uga jeppa lögðu þá fram til starfa.

Tjón varð i smábátahöfninni í Elliða-

vogi, hesthúsum i Viðidal. „En það

er guðs mildi hve fólk hefur sloppið

vel," sagði einn lögreglumaðurinn í

Reykjavíkímorgun.                 -JH.

Þetta var algeng sjón i nótt: bílar fuku eins og hráviði út af gðtum og vlða mátti sjá marga saman. Hundruð bila skemmdust I Kópavogi cinum og annað eins I Reykjavik.

DB-mynd:S.

Kópavogur:

FLEIRIHUNDRUÐ BILAR

SKEMMDIR 0G TUGIR HÚSA

Geysilegt tjón varð á fleiri hundruð

bílurh hér i Kópavogi, sagði varðstjóri

Kópavogslögreglunnar i morgun. Bil-

arr.ir  eru  allt  frá því  að vera  litið

skemmdir og upp i ónýtir. Þá urðu

skemmdir á fleiri tugum húsa, þðk

fuku, plötur voru eins og skæðadrifa,

raflínur slitnuðu og gler brotnaði í

gluggum. Slys urðu þó ekki alvarleg á

fólki, 3—4 fluttir i slysadeild skornir

eftirgler.

Trúlega hefur mesta tjónið orðið á

Vighólaskólanum, en þar fauk meiri

parturinn af þakinu og rúður brotn-.

uðu. Mjög slæmt ástand var við háu

blokkirnar við Engihjalla, bílar i bendu,

og drasl fjúkandi á þá.                 -jh. !

Mikill viðbúnaður almannavarna, lögreglu og björgunarsveita:

Þúsundir við björgunarstörf

Tilkynning frá Veðurstofu þess

efnis að i uppsiglingu væri fárviðri

um sunnanvert, suðvestanvert og

vestánvert landið barst Almanna-

vörnuiii rikisins laust fyrir kl. 19 í

gærkvöldi, að sögn Hafþórs Jóns-

sonar, fulltrúa hjá Almannavörnum.

Stjórnstöð Almannavarna var

þegar opnuð, viðvörun send tafar-

laust til útvarps og sjónvarps og at-

hygli almannavarnanefnda á hættu-

svæðinu vakin.

„Upp úr kl. 20 var veðrið orðið

þannig að sýnt þótti að kalla þyrfti út

meiri háttar hjálparsveitalið til að

sinna brýnustu hjálparverkefnum,"

sagði Hafþór. „Almannavarna-

nefndir byrjuðu að kalla út hjálpar-

sveitir og um kl. 22 voru þær komnar

tilstarfa."

Voru þúsundir manna við björg-

unarstörf víða um land í gærkvöld og

nótt..

„Erfitt var að ná þeim saman

vegna álags á sima. Gífurlegt álag var

á simakerflnu og var það meira og

minna vandamál á öllu svæöinu.

Útvarpiö var því notað til að boða út

hjálparsveitir.

Þær sinntu aðallega brýnustu

skyndiverkefnum,   að. byrgja  fyrir

brotnar rúður og hefta fok lausra

muna," sagði Hafþór.

Lögreglan í Reykjavík sinnti 260

útköllum frá kl. 20 i gærkvöldi til 3 i

nótt. A sama tíma bárust um það bil

200 hjálparbeiðnir til Almannavarna.

Veðrið fór að ganga niður um 2-

leytið í nótt og um 4-leytið va^ástand

orðið það skaplegt i Reykjavík að

ákveðið var að fresta aðgerðum þar

f ram í birtingu.                     . KMU

frjálst, áháð dagblað

ÞRIÐJUDAGUR 17. FEB. 1981.

Gífurlegttjón

á Suðurlandi:

Gróðurhús

brotnuðu

ogþökfuku

— en hvergi vitað um

slyseða

mannskaða

„Ég veit hvergi um mannskaða eða

slys á fólki en það er Ijóst að mikið tjón

hefur hlotizt á mannvirkjum f þessum

veðurofsa," sagði Jón Guðmundsson

yfirlögregluþjónn á Selfossi. „Á Sel-

fossi fuku fáein þök eða þakhlutar.

Víða fóru plötur af húsþökum, talsvert

er um gluggarúðubrot og ótalinn fjöldi

bila fauk til með ýmsum afieiðingum,"

sagði Jón.

Þessa sömu sögu sagði Jón að mætti

segja frá öllu Suðurlandi. Hann vissi

um þak á Stokkseyri sem fokið hafði

og þar sem annars staðar, t.d. á Eyrar-

bakka og í Þorlákshöfn, hefði orðið

mikið tjón af lausafoki og af veðurofs-

anum.

í Hveragerði varð mikið tjón í

igróðurhúsum er gler brotnaði, en af-

leiðingarnar eru langt frá því fullkann-

aðar. Víða út um sveitir varð ýmiss

konar tjón, m.a. fuku þök í heilu lagi.

Víða voru sveitir björgunarmanna að

istörfum í allt gærkvöld og lengi nætur,

t.d. í Þorlákshöfn, en á flestum stöðum

urðu menn að fara varlega vegna slysa-

hættu af fjúkandi hlutum húsa.

J6n taldi að i hryðjum hefði veður-

hæðin verið um 80 hnútar en 12 vind-

stig jafngilda 63 hnútum.

-A.St.

Miklarvindhviður

á Flateyri:

Fórsjöveltur

með bílnum

— en slapp

með skrámur

í gærkvöldi, um tíuleytið, var starfs-

maður á leið heim úr spennistöðinni á

Flateyri. Ofsarok var óg var hann að

bíða af sér vindhviðu þegar hann vissi

ekki fyrr til en bifreið hans tókst á loft

og fór einar sjö veltur. Hann komst þó

af sjálfsdáðum út úr bilnum, lítiis

háttar marinn en annars ómeiddur. Var

það snjónum að þakka, sem hér er mik-

ill.

Fjórtán tonna vörubill var sendur til

að bjarga honum en minnstu munaði

að hann fyki líka niður fyrir veginn.

Bílstjórinn skeilti sér þá upp fyrir veg-

innogalltgekk vel.

Hingaö til Flateyrar hefur ekki

komið mjólk í viku og er orðið algjört

neyðarástand í- mjólkurmálunum. í

gær voru allar tiktúrur um mjólk á

fernum látnar lönd og leið og farið að

selja mjólk á brúsum upp á gamla mát-

ann. Á flugvellinum er mikill snjór og

ivika síðan hingað hefur verið flogið.

- -IHH/ÞJT,Flateyri.

Reyðarfjörður:

Fjárhúsfauk

Fjárhús fauk á bænum Kolmúla við

Reyðarfjörð i gærkvöldi. Tjón varð

ekki á skepnum að því bezt er vitað.

Brak úr húsinu dreifðist um nágreiinið

og braut meðal annars fjölda af rúðum

i ibúðarhúsinu. Mjólkurbill sem

staddur var. við bæinn fauk á hliðina út

af veginum i eihni hryðjunni. Bilstjór-

inn hafði brugðið sér heim að bænum,

en kom að fararskjótanum afvelta þeg-

ar hann ætlaði að halda áfram ferð-

inni.

Ægir, Fáskrúflsf Irfli / ARH

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
14-15
14-15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28