DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1981. I Erlent Erlent Erlent Erlent Mikil reiði ogáhyggjur fólks vegna morðt ilraunarinnar: ,,Ég bjóst v/ð að eitt- hvað slíkt gæti gerzt" Reagan hef ur sjálfur verið andstæðingur hertra reglna um sölu og meðf erð skotvopna Mikill mannfjöldi safnaðist saman í rigningunni fyrir framan Sjúkrahús Georges Washington háskólans eftir að fréttist að Ronald Reagan forseti hefði verið fluttur þangað særður eftir skotárás. Fólkið stóð með ferðaútvarpstæki á grasflöt fyrir utan sjúkrahúsið og var hún ¦ ekki lengi að breytast í drullusvað. Fólkið'var bæði úr hópi stuðningsmanna Reagans og and- stæðinga en allir létu í Ijós reiði sína oghneykslan. Renata Johnson, 33 ára ritari frá New York, sagði: Það var mikið áfall að heyra þetta. Þrátt fyrir alla gagnrýnina sem forsetinn hefur sætt fyrir að skera niður félagslega þjón- ustu þá var hann enn að ganga í gegn- um reynslutímann." Hún bætti því við að morðið á Bítl- inum fyrrverandi, John Lennon, fyrir skömmu og hið stöðuga ofbeldi í Bandarikjunum hefði gert hana áhyggjufulla um að eitthvað slíkt ætti eftir að gerast. Ég átti von á þessu," sagði hún. Ég taldi að þetta væri aðeins spurn- ingum tíma." Tom Chandler, 25 ára laganemi, sem hljóp að sjúkrahúsinu.eftir að vinur hans hafði hringt fréttina til hans hafði þetta að segja: Þetta er hörmulegt. Þetta ætlar engan endi að taka." Patricia Owens, húsmóðir í Washington, sagði: Ég veit ekki hvað er að verða um land mitt. Mér verður flökurt við tilhugsunina um allt þetta sjúka, unga fólk sem gengur laust." Meðal þeirra sem voru fyrir utan Hvíta húsið var Nancy Costlow, 24 ára gamall ferðamaður, sem keyrði frá Virginia þegar hún heyrði frétt- irnar í útvarpinu. Hún hafði þetta að segja: Ég var undrandi yfir að hann skyldi vera skotinn svona snemma. Þeir höfðu ekki gefið honum tæki- færi til að gera neitt. Hann var alveg nýbyrjaður." Nancy Starkey frá Michigan, stuðningsmaður Reagans, kom til Hvíta hússins ásamt tveimur dætrum sínum. Hún sagði: Ég bjóst við því að eitthvað slíkt gæti gerzt. Mér finnst hann hafi verið mjög hreinskil- inn og hann berst fyrir því sem hann trúirá." Edward Kennedy öldungadeildar- þingmaður hvatti Bandaríkjamenn til að útiloka ofbeldi og hatur eins og við höfum orðið vitni að í dag". Bróðir Kennedys, John forseti, var myrtur í Dallas í nóvember 1963 og hinn bróðir hans, Robert, var myrtur árið 1968 er hann barðist fyrir því að verða útnefndur forsetaefni demó- krata. Ford, fyrrum forseti, sem tvívegis slapp naumlega undan morðtilraun- um, var staddur í Tokyo í Japan þegar honum bárust fréttirnar frá Washington. Hann kvaðst hafa vottað Hvíta húsinu og frú Reagan samhug sinn. Eins og áður þegar slíkir atburðir Reagan og Ford, fyrruin forseti. Tvivegis var reynt að ráða Ford af dögum meðan hann gegndi embætti t'orseta. hafa gerzt í Bandaríkjunum hafa kröfur þeirra sem krefjast aukins eftirlits með sölu skotvopna orðið há- værari. En Ronald Reagan var sjálfur í hópi þeirra sem hafa verið á móti hertum reglum um sölu skot- vopna. Hann benti nýverið á að í vissu'm ríkjum Bandaríkjanna, eins og til dæmis Arizona, væri fólk mun öruggara vegna þess að það mætti eigaogberavopn. Tillaga Reagans til að.stemma stigu við hinni auknu glæpatiðni var sú að refsing þeirra sem fremdu afbrot með skotvopnum yrði þyngd um fimm til fimmtán ár. Reagan hefur oft haldið fram slagorðinu: Byssur drepa ekki heldurmenn." Furðulegt morðmál í Connecticut í Bandaríkjunum: Veröur morðið skrifað á reikning djöf ulsins? Verjandinn reynir að sanna að d jöf ullinn haf i tekið sér hólfestu ímorðingjanum Arne C. Johnson kemur fyrir rétt i fylgd með lögreglu ákærður fyrir mamis- morð. Neyddi djöfullinn hinn 19 ára gamla Arne Johnson til að drepa vin sinn, Alan Bono? Verjandi hans heldur því fram í málaferlum sem fara fram í Brookfield, Connecticut í Bandaríkjunum, að yfirnáttúrlegir hlutir eigi stærstan þátt í þessu morð- máli. Er lögreglan kom á brotastaðinn, neðanjarðargöng í Brookfield, í febrúar sl. og fann fórnarlambið stungið til bana með hníf, sökudólg- inn við hliðina með blóðugan hníf í höndunum og vitni að atburðinum var talið að þetta myndi ekki krefjast mikillar rannsóknar og málið leyst. Hinn grunaði var strax ákærður fyrir dráp að yfirlögðu ráði en nú hafa komið fram nýir þættir í málinu. Komið hefur fram við yfirheyrslur að hinn ákærði hafði ásamt fjórum kaþólskum prestum, hjónum og vinafólki reynt að reka út djöfulinn úr bróður Deborah Glatzels, sem var vinkona ákærða og vitni að atburðin- um. í viðtölum heldur Deborah Glatzel því fram að Arne Johnson hafi loks- ins tekizt að reka þessa illu anda úr bróður hennar. Það gerðist sama dag og morðið var framið. Hún heldur þvi fram' að við útrekstur hins illa anda úr bróður hennar hafi hann tekið sér bólfestu í Arne Johnson. Lögreglustjórinn, John Anderson, segir að mál sem þetta hafi aldrei komið til kasta þeirra áður. í þessum litla bæ eru morð og útrekstur illra anda ekki daglegt brauð. En hann segir jafnframt að þeir sem standa að rannsókn málsins séu ákveðnir í að komast til botns í því hver sé aðdragandi þessa atburðar. í júní á síðastliðnu ári flutti Arne Johnson til vinkonu sinnar, inn á heimili hennar. Mánuði seinna hóf bróðir hennar að hegða sér allundar- lega. Hann sparkaði, beit, bölvaði og ragnaði og sagði andstyggilega hluti. Ennfremur virtist ósýnilegur kraftur kvelja hann. Strákurinn barðist eins og vitleysingur við ósýnilegar hendur sem tóku hann kverkatakí og snéru honum i rúmi hans. Þessa sögu hefur systir hans að segja um hátterni hans. Ennfremur sá hann lítinn mann, brenndan í framan, rétta út fingur honum til viðvörunar," segir De- borah. Móðir drengsins, Judy Glatzel, fór á fund prestsins í St. Joseph-kirkj- unni í Brookfield. Hann kom á fund- um með fjölskyldunni bg hjónunum Ed og Lorraine Warren, sem telja sig vera sérfræðinga í að reka út illa anda. Fjórir prestar voru einnig settir í málið en kirkjan hefur ekki viljað staðfesta þessar fréttir. Samkvæmt því sem Ed Warren hefur látið hafa eftir sér fóru prestarnir á fund biskups- síns og báðu um leyfi til að fram- kvæma þennan brottrekstur. Ekki er ljóst hvort þeir fengu samþykkið. í október síðastliðnum fóru Warren-hjónin á fund lögreglustjór- ans Anderson og tilkynntu honum að þau væru í þann veginn að hefja brottrekstur ills anda hjá Glatzelfjöl- skyldunni ásamt fjórum prestum og að til átaka gæti komið. Sá sem tókst að reka djöfulinn úr stráknum var Arne Johnson. Honum tókst það með því að biðja hann um að taka frekar bólfestu í sér, eftir því sem Warren-hjónin segja. Arne Johnson gekk of Iangt, hann ögraði djöflinum. Það var greinilegt að hann varð djöfulóður," sagði Ed Warren. Verjandi Johnsons ætlar að stefna Warren-hjónunuim og prestunum inn í málið til að sanna það að Arne Johnson hafi verið djöfulóður er hann framdi verknaðinn. Mál þetta kemur upp nú er miklar umræður eru um yfirnáttúrleg fyrir- bæri í Bandaríkjunum. Samkvæmt skoðanakönnun trúa 34% af Banda- ríkjamönnum að djöfullinn sé til í persónum. Kvikmyndir, bækur og vikublöð græða milljónir á þessari trú manna. Deborah Glatzel segir í viðtali við New York Times ' að hún hafi lengi haft áhuga á yfir- náttúrlegum fyrirbærum og að hún hafi séð myndina Særingamaðurinn (Sem var sýnd hérlendis fyrir nokkru). Hún segir jafntramt að bróðir hennar sé til með að vitna í málinu og'segist hann hafa séð er diöfultinn yfirgaf hann og tók sér bólfestu í líkama Arne Johnson og að það hafi verið djöfullinn sem framdi þennan verknað en ekki Johnson sjálfur.