Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš

						18

DAGBLAÐID. MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1981.

Veðrið

Spía sr sunnan og suðaustan étt v(ð-

ast hvar á landinu an þó Ifklega aust-

an átt fyrir norðan. Skúrir sunnan-

lands an þurrt f yrlr noröan.

Kkikkan 6 var austan 2, skúrir og

hitJ 3 stjg I Rsykjavik, sunnan 2, rign-

ing og 3 sug á Gufuskékim; suðaust-

an 5, skýjafl og 2 stjg á GaJtarvita;

vsstan 2, skýjað og 0 stJg á Akurayri;

rusgvMri, léttskfjað og -3 stjg á

Raufarhöfn; hssgviðri, skýjað og 2

stjg á Dalatanga; norðan 2, þoku-

bakkar og 4 stjg á Hðfn og sunnan 1

skúrir og 3 stJg á Stórhöf ða.

I Þorshofri var skfjað og 6 stlg,

skýjað og 4 sug I Kaupmannahöfn,

akýJað og -3 stjg 1 OsJó, léttskýjað

og — 1 stJg I Stokkhoknl; rkjnlng og 6

sug í London; skýjað og 9 stjg I

Hamborg; þoka og 8 sug I ParJs; latt-

skfjað og 2 sug I Madrid; skýjað og

12 stJg i Ussabon, léttskýjað og 11

stigiNewVork.

Krislín Gissurardóitir, sem lézt 20.

marz sl., fæddist 6. apríl 1904 á Hvoli í

ölfusi. Foreldrar hennar voru Gissur

Gottskálksson og Jórunn Gislína

Snorradóttir. Kristín fluttist ung til

Reykjavíkur og fór fljótlega að vinna

við saumaskap og rak um árabii kápu-

saumastofu en síðari hluta ævi sinnar

starfaði hún við afgreiðslu hjá Alþýðu-

brauðgcrðinni.

Hermann Hákonarson, sem lézt 24.

marz sl., fæddist 11. nóvember 1909 á

Skáney i Reykholtsdal. Foreldrar hans

voru Hákon Jónsson og Herborg

Þórðardóttir. 1936 réðst Hermann

til Strætisvagna Reykjavíkur, fyrst sem

vagnstjóri en síðar á viðgerðaverstæði

þar sem hann vann æ síðan. Árið 1935

kvæntist Hermann Ragnheiði I.

Magnúsdóttur og áttu þau eina dóttur.

Pétur Matthiasson, Hamrahlíð 5, sem

lézt 25. marz sl., verður jarðsunginn

frá Fossvogskirkju föstudaginn 3. apríl

kl. 13.30.

Guðríður Ingvarsdóttir, Mánagötu 19,

lézt í Landakotsspítala mánudaginn 30.

marz sl.

Sigríður Jóhannsdóttir frá Kirkjubóli,

sem lézt i Kaupmannahöfn 22. marz

sl., verður jarðsungin frá Fossvogs-

kirkju föstudaginn 3. apríl kl. 15.

Georg Jónsson, Reynivöllum Skerja-

firði, verður jarðsunginn frá Neskirkju

fimmtudaginn 2. apríl kl. 15.

Anna María Jónsdóttir, Hæðargarði 4,

verður jarðsungin frá Fossvogskirkju

fimmtudaginn 2. apríl kl. 15.

Aðaifundir

Átthagafólag Strandamanna

í Reykjavik

Aðalfundur   veröur  .haldinn. 'i   Domus   Medica

fimmtudaginn 2. april.

Aðalfundur

Skotveiðifólagsins

Skotveiðifélag ísiands heldur aðalfund sinn Jaugar-

daginn 4. apríl klukkan 9.30 á Hótel Esju.

í tengslum við fundinn mun félagið halda opna

ráðstefnu um skotveiðar.

Ráðstefnan hefst kl. 13.00 á Hótel Esju með fram-

söguerindum. Vilhjálmur Lúðvíksson verkfræðing-

ur fjallar um siðfræði veiðimannsins og Jón

Ármann Héðinsson fyrrverandi alþingísmaður fjall-

ar um stöðu umræðu um skotveiðimál.

Eftir framsöguerindi verða kaffiveitingar og al-

mennar umræður.

Meginviðfangsefni ráðstefnunnar er að ræða um

skotveiðar sem útilifsíþrótt, umgengni og rétt veiði-

mannsins.

öllum áhugamönnum er boöin þátttaka i ráð-

stefnunni.

Skotveiöifélag íslands hefur sérstaklega boðið

ýmsum opinberum stofnunum, samtökum og

félögum að senda fulltrúa á ráðstefnuna.

Skotveiðifélag íslands var stofnaö 23. september

1978.

Markmið félagsins er aö vinna skotveiðum

verðugan sess meðal útilífsíbrólta með góöri með-

ferð skotvopna, góðri siðfræði veiðimanna, góðri

umgengni við land og lífríki og góðum samskiptum

við landeigendur.

Núverandi formaður félagsins er Finnur Torfi

Hjörleifsson.

AA-samtökin

I dag, míðvikudag. verða fundir á vegum AA

samtakanna sem hér scgir: Tjarnargata 5b kl. 12

lopinnl, 14. l8og2I.Grensáskirkjakl.2l. Hallgrírns

kirkja kl. 21. Akranes. Suðurgata 102 (93-2540) kl. 21.

Borgarnes Læknamiðstöðin kl. 21. Keflavik Klappar

stígur 7 (92-1800) kl. 21. Neskaupstaður Kaffistofa

Netagerðarinnar kl. 21 og Fáskrúðsfjörður. Felags-

heimilikl. 20.30.

í hadegínu á morgun. fimrntudag. verða fundir sem

hcrsegir: Tjarnargata 5 bkl. 14.

Kvenfólag

Hallgrímskirkju

Fundur veröur haldinn í félagsheimilinu fimmtu-

daginn 2. april kl. 20.30. Dagskrá verður fjölbreytt.

l'.lín Pálmadóttir blaðamaður flytur ferðaþátt og

sýnir litskyggnur frá Thailandi. Einsöngur: frú

Jóhanna MUller. Kaffi. Að lokum flytur sr. Karl

Sigurbjörnsson hugvekju. Félagskonur fjölmennið

og takið með ykkur gesti.

Klúbbur 25 eflir starf ið

- Fjölbreytt hátíð

á Hótel Sögu

Nú er ár liðið frá stofnun hins nýja fcrða- og

skemmtiklúbbs unga fólksins, sem stofnaöur var að

tilhlutan Útsýnar í fyrra og nefnist Klúbbur 25. Á

síðastliðnu sumri ferðaðist margt ungt fólk á vegum

klúbbsins bæði í sjálfstæöum ferðum og í hóp-

ferðum Utsýnar á sérsiökuin ;ifsláttarkjörum. Efnt

var til nokkurra skcmtniaiui, in.a. á Þingvöttum og

nutu þær mikilla vinsælda. Á síðasta ári voru

skráðir 500 klúbbfélagar. Árgjaldiðer nú kr. 100, en

gegn greiðslu þ?ss fá félagar 'skírteini, sem veitir

margs konar hlunnindi, auk sc-^takra kjara á ferða-

lögum.

Markmið klúbbsins er að auðvelda ungu fólki að

skoða heiminn á hagkvæman og áhugaverðan hátt í

góðum félagsskap og með hagstæöustu kjörum og

aö bæta skemmtanalífið.

Á sunnudaginn kemur gefst gott tækifæri til að

kynnast markmiðum klúbbsins og starfsemi hans, en

þá heldur klúbburínn sina fyrstu árshátíð á Hötel

Sögu. Boðið verður upp á veizlumat fyrir 75 kr., en

skemmtunin sjálf er alveg ókeypis, og þar er boðið

upp á óvenju vandaða skemmtiskrá.

Gestir verða boönir velkomnir meö ókeypis for-

drykk og ferðahappdrætti meöan Texas-tríóið leikur

fjöruga country-tónlist. Veizlan sjálf hefst kl. 19.30

og auk aðalréttarins verða ostar frá Osta- og smjör-

sölunní í eftirrétt. Meðan á veizlunni stendur verður

skemmtileg tónlist og fjörugar hárgreiðslu- og tizku-

sýningar, sem Papilla og Módelsamtökin annast.

Dans sýna bæði rokkparið Aðalsteinn og Herborg

og sýningarflokkur frá skóla Heiðars Ástvaldssonar.

Danstónlistin verður fjölbreytt, því auk hljómsveitar

hússins leikur hin vinsæla rokkhljómsveit Starl,

Helga Möller syngur og Þorgeir Ástvaldsson velur

nýjustu diskó- og rokklögin. Húsið verður sérstak-

lega skreytt I tilefni hátíðarinnar og skemmtunin

filmuð i video. Aðalpunt kvöldsins verða þó

feguröardísirnar 25, sem Útsýn kynnir í ljósmynda-

fyrirsætukeppni sinni, og fá þær allar ferðaverð-

laun. Einnig verða vatin herra og dama kvötdsins

Inn á milli dansins verður fléttað fjörugri spurninga-

keppni og ferðabingó. Dansað verður tit kí. 2 eftir

miðnætti.

Forsala aðgöngumiða er hjá Útsýn á miðvikudag

og fimmtudag, en borðapantanir á Hótel Sögu á

fimmtudag.

Ýmsar ferðir eru í undirbúningi hjá Klúbb 25 í

sumar, m.a. tit Frakklands og Korsíku, en það er

fyrsta hópferð íslendinga þangað, einnig ferðir til

Spánar, Mallorka og ítalíu, auk ferðar til New

York, Hollywood og Las Vegas. Klúbbur 25 útvegar

einnig skólavist í málaskólum erlendis, t.d. i Eng-

landi, Þýzkalandi, ítallu og Spáni og ódýrastu far-

gjöld.semígildieru.

GÆRKVÖLDI

ERU FATLAÐIR 0G K0NUR

ÁSAMABÁTI?

Það má eiginlega segja að sjón-

varpið í gærkvöjdi Jiafi verið eins

konar karlasjónvarp. Þar kom varla

nokkur kona við sögu örínur en Birna

Hrólfsdóttir sjónvarpsþula.

Allar fréttir sjónvarpsins, en þær

voru hvorki meira né minna en sextán

talsins, fjölluðu um karlmenn að

meira eða minna leyti. Það kom

hvergi kona við sögu á nokkurn hátt.

Fréttaþulur var karlmaður.

Karlmaður var þulur í teiknimynd-

inni eftir fréttirnar. Karlmaður'var

sögumaður í heimildamyndinni um

ljósmyndirnar — að vísu sást kven-

fólki bregða fyrir í þættinum sjálf-

um, þ.e.a.s. myndum af því, karl-

maður lék aðalhlutverkið í brezka

leynilögguþættinum og karlmaður

stjórnaði umræðuþætti um atvinnu-

mál fatlaðra og ræddi eingöngu við

karlmenn, með einni undantekningu

þó.

Ef vera frá öðrum hnetti sæi svona

sjónvarpsprógramm gæti hún hæg-

lega haldið að jarðarbúar væru

aðeins katlmenn. Kvenfólk gæti í

þeirra augum verið jafnmikilvægt og

t.d. hestarnir sem komu við sögu í

fréttunum!

Vel á minnst, hestarnir. Alveg er

það furðulegt að vinstri meirihlutinn

í Reykjavík skuli endilega þurfa að

breyta áður ákveðnu borgarskipulagi

að því er virðist aðeins til þess að

eyðileggja samþykkt skipulag frá

hægri hluta! Ég er viss um að hvergi í

víðri veröld þekkist að hægt sé að

rokka svona með borgarskipulag

fram og aftur að geðþótta meirihlut-

ans aðeins til að gera illt af sér.

Hestamenn benda á óhagræðingu

þessa nýja skipulags. Skólastjóri

Melaskólans hefur bent á að skóla-

börn hefðu gróðursett tré á ári trés-

ins, einmitt þar sem nú hefði verið

ákveðið að taka lóðir til bygginga við

Rauðavatn. í sjónvarpsfréttunum í

gær sagði að Sigurður Harðarson,

formaður skipulagsnefndar borgar-

innar, segi að „ekkert sé endanlega

afráðið" um þetta skipulag!

• Er ekki nær fyrir þessa starfsmenn

Reykvíkinga að reyna að. vinna af

heilindum að þeim verkefnum sem

þeim eru falin heldur en að vera að

hringla fram og aftur og sóa þannig

bæði tima og fé?

Ekki féll nýja teiknimyndin í minn

smekk, en þulurinn var stórkostlega

góður. Kannski þykir börnum gaman

að þessari teiknimynd, ég veit það

ekki því ég hef engin börn á heimil-

inu. Sjálfri þykja mér engar teikni-

myndir jafnast á við Tomma óg

Jenna og aðrar bandarískar myndir í

svipuðum dúr. Þó var alltaf gaman

að Gústa og hinni ítölsku línu.

Mér datt í hug þegar ég horfði á

þáttinn um atvinnumál fatlaðra að

þeir eiga heilmikið sameiginlegt með

konum. Báðir aðilar verða að sýna

mun meiri hæfileika heldur en „hinn

æðri" karlkynsstofn. Þórður Ingvi

Guðmundsson stjórnaði umræðun-

um af prýði. Ég minnist þess ekki að

hafa séð hann áður í sjónvarpinu.

Mikið var til í þeim orðum for-

stöðumanns Sólborgar á Akureyri að

það sé draumsýn að allir fatlaðir geti

fengið vinnu við sitt hæfi; frekar en

þeir sem ófatlaðir eru. Forstöðumað-

urinn ræddi um þessi mál af miklum

skilningi og raunsæi. Sama er að

segja um Halldór Rafnar. Hann

sagði frá því, að á íslandi stunda

blindir menn fjölbreytta vinnu, mun

fjölbreyttari en blindir á hinum

Norðurlöndunum. Halldór benti

einnig á að blindir verða jafnan að

standa sig betur en þeir sem sjáandi

eru. Hann sagði m.a. að ef blindum

manni yrðu á einhver mistök segðu

menn gjarnan: Hann er blindur

greyið, honum varð þetta á. Ef

sjáandi maður gerir mistök segir eng-

inn: Hann er sjáandi greyið, honum.

varð þetta á.

Við sem sjáandi erum ættum að

skammast okkar og reyna að vanda

okkur dálítið betur í umgengni hvert

við annað, bæði sjáandi og blinda.

-A.Bj.

Köttur týndur

St. föstudag hvarf frá heimili sínu við Ránargötu í

Reykjavík sva'rtur og hvítur angóru köttur. Þetta er

fullvaxrnn högni. Hann er með ól um hálsinn og

biður eigandinn þá sem gætu gefið upplýsingar um

hann að hringja í síma 20695 sem fyrst.


Hf. Skallagr.mur

AÆTLUN AKRABORGAR

í janúar, febrúar, mars, nóvemberog

desember:

Frá Akranesi          Frá Reykjavík

Kl.      8,30              Kl.    10,00

—    11,30              —     13,00

—      14,30                —    16,00

—     17,30                —  -19,00

I apríl og október verða kvöktfordirá sunnudogum. — í

mai, iuni og scptomber verba kvöktterdir é föstudögum

og sunnudögum. — f ju li og ágúst veröa kvöktferðir alla

daga, nema laugardaga.

Kvöldferðir eru frá Akranesi kl. 20,30

og frá Reykjavík kl. 22,00.

AfgreiÖsla Akranesi simi 2275

Skrifstotan Akranesi simi 1095

Afgreiösia Rvik simi 16050

Simsvan i Rviksími 16420

Talsioðvarsamband við skipið og afgreiðskjr á Akranesi og Reykja-

vik f- R -bykjja, rás 2  Kallnúmer: Akranes 1192, Akraborg 1193,

Reykjavik1194.

Tónleikar míövikudagskvöld-

ið 1. apríl kl. 7.15 í Austur-

bæjarbíói:

Á 9. tónleikum Tónlistarfélagsins starfsveturinn

1980—1981 sem haldnir verða í Austurbæjarbíó 1.

apríl kl. 7.15 koma fram Allan Sternfield, píanóleik-

ari, Nina G. Flier, sellóleikari, og Guðný

Guðmundsdóttir, fiðluleikari. Á efnisskrá tónleik-

anna er Gaspard de la Nuit eftir Ravel, Sónata fyrir

fiðlu og selló eftir Ravel og tríó fyrir fiðlu, selló oi

pianó op. 90 eftir Antonin Dvorák.

Kvenfélagið

Fjallkonurnar

Basar verður haldinn laugardaginn 4. april k). 14 i

Fellahelli. Þær sem ætla að gefa á basarinn komi þvi

til skila í Fellahelli á föstudagskvöld eða fyrir hádegi

á laugardag. Upplýsingar gefa Ágústa i síma 74897

og Brynhildur í síma 73240.

Farsóttir í Reykjavik

i   febrúarmánuði   1981,  samkvæmt  skýrslum   13

lækna.

Inflúensa 309, lungnabólga 47, kvef, hálsbólga,

bronchitís     etc.     690,     streptókokka-hálsbólga,

scarlatina   11,   einkirningasótt      1,   mislingar   1,

hettusótt 4, iðrakvef og niðurgangur 95, kláði 4.

Framrás hafíss fyrir norðan

hefur stöðvast

Samkvæmt frétt frá hafísrannsóknadeild Veðurstof-

unnar hefur síðasta framrás hafissins" fyrir norðan

land verið stöðvuð en.ísinn hefur verið til alls vís I

norðtægu vindáttunum undanfariö. Hagstæðir,

suðlægir vindar halda nú hafísjaðrinum í skefjum

þótt dreifðir jakar séu enn á reiki á hafissvæðinu

sunnan við jaðarinn.

Sl. föstudag, 27. marz 1981, gafst flugveður og

skyggni tit ískönnunar og kannaðí þá landhelgís-

gæzlan jaðarsvæðið, allt frá 66. gráðu til 70. gráðu

norðlægrar breiddar. (sjá kort). Meginísinn var um

130 sjómílur vestur af Barða, 85 sjómílur norðnorð-

vestur af Kögri og um 85 sjómílur norðvestur af

Kolbeinsey. Suðaustan við meginísinn var belti af

gisnari ís, 12 til 33 sjómílna breitt.

—   VVMSC50AMVtié>^MA«tju«

GEIMGIÐ				

GENGISSKRÁNING				Feroamanna-

Nr. 63 - 31. marz 1981.				gjaldeyrir

Einingkl. 12.00		Kaup	Sala	Sala

1 Bandarikiadollar		6,518	6,536	7,190

1 Starlingspund		14,628	14,668	16,135

1 KanadadoRar		5,497	5,513	6,064

1 Odnskkröna		0,9844	0,9871	1,0858

1 Norskkróna		1,2138	1,2171	1,3388

1 Samskkróna		1,4193	1,4132	1,5655

1 Flnnsktmark		1,6030	1,6075	1,7683

1 Franskur franki		1,3142	1,3179	1,4497    .

1 Belg.frankl		0,1883	0,1888	0,2088

1 Svissn. franki		3,4048	3,4139	3,7553

1 HoUanzk florina		2,7995	2,9073	3,0881

1 V.-þýzktmark		3,1009	3,1094	3,4203

1 Itöbkllra		0,00622	0,00623	0,00685

1 Auslurr. Sch.		0,4385	0,4397	0,4837

1 Portug. Escudo		0,1149	0,1152	0,1267

1 Spanskur pasatí		0,0764	0,0766	0,0843

1 Japansktysn		0,03089	0,03098	0,03406

1 Irakt ound		11,296	11,327	12,460

SDR (sérstðk drtttarrettindi) S/1		8,0121	8,0341	

* Breyting frá siðustu skréningu.			Sfmsvari vegna	gengisskraningar 22190.

				

				

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
14-15
14-15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28