Dagblaðið - 10.10.1981, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 10.10.1981, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1981. 5 Dómur fallinn í lögbannsmálinu: Frjálsu f ramtaki heimilt að nota ABC á barnablaðið Fallinn er dómur í lögbannsmáli því sem ABC hf., auglýsingastofa, höfðaði gegn Frjálsu framtaki hf. vegna nafnsins á barnablaði útgáf- unnar, ABC. Dómsorð kveður á um það að Frjálsu framtaki sé heimilt að nota nafnið ABC og lögbannið er því fellt úr gildi. Málskostnaður var felldur niður. Vegna lögbannsins, sem sett var á barnablaðið ABC í fyrra, var nafni blaðsins breytt í ABCD. Jóhann Briem, framkvæmdastjóri Frjáls framtaks, sagði í gær að hið fyrra nafn yrði nú tekið upp aftur og héti blaðið því ABC. Jóhann sagði að lögbannsmálið hefði verið harkaleg aðgerð sem valdið hefði útgáfunni fjárhagstjóni. Skaðabótakröfur væru því ihugaðar. Lögmenn Frjáls framtaks voru Eiríkur Tómasson og Ólafur Axels- son en lögmaður ABC auglýsinga- stofu var Haraldur Blöndal. Dóminn kvað upp Steingrímur Gautur Kristjánsson. -JH. Féll 15 metra úr mastri Ungur maður slasaðist alvarlega við Hagavatn í gærmorgun er unnið var við linulögn frá Hrauneyjafossvirkjun. Maðurinn féll niður úr mastri og var fallið um 15 metrar. Að sögn Hannesar Hafstein, framkvæmdastjóra Slysa- varnafélagsins, barst hjálparbeiðni frá Landsvirkjun um kl. 10 i gærmorgun. Slysavarnafélagið fór þess þegar á leit við varnarliðið á Keflavikurflugvelli að það sendi þyrlu á staðinn til þess að sækja hinn slasaða mann. ,,Það var auðsótt mál og vélin var komin af stað um 10.30 með lækni innanborðs. Þyrlan kom á slysstaðinn um kl. 11 þar sem læknirinn gerði að meiðslum mannsins eins og unnt var. Þyrlan lenti síðan við Borgarspítalann kl. 12.05. Þar var læknalið tilbúið til aðgerðar. Aðgerðin stóð lengi dags en maður- inn, sem er tvitugur, reyndist vera með innvortis meiðsl í kviðarholi og brjósti og áverka á höfði. Líðan hans var þó talin eftir atvikum góð. -JH/DB-mynd: S. Plastos djúpfrystipokar eru framleiddir í eftirfapandi stærðum: No. 4:20x30 cm. No. 5:25x40 cm. No. 6:30x55 cm. Plastos lokunarbönd og . djúpfrystimiðar fylgja. GERIÐ VERÐSAMANBURÐ, VIÐ ABYRGJUMST GÆÐiNI Með vetraráætlun sinni ætla Flug- leiðir að fjölga ferðum bæði innan- lands og til útlanda. Þannig fjölgar ferðunum innanlands um tíu á viku og ferðum til útlanda um fimm, fjórar til Evrópu og eina til Bandaríkjanna. Vetraráætlun i innanlandsflugi hófst um síðustu mánaðamót og hefst um þau næstu til útlanda. Jafnframt því sem ferðum með far- þega fjölgar í vetur og ef allt fer að óskum enn næsta sumar fjölgar einnig fraktferðum. Mikið verður gert að því að fljúga með bæði fólk og frakt í sömu ferðinni. Til þess að bæta þjónustu við far- þega sina hafa Flugleiðir nú hætt sam- skiptum við Gabríel. Það er tölva sú í Bandaríkjunum sem skráð hefur fram að þessu allar ferðir. Nú hafa Flugleiðir komið sér upp eigin tölvukerfi sem á að gera ferðaskrifstofum kleift að fá mun fyrr upplýsingar um laus sætí og fleira því fylgjandi. Einnig spara Flugleiðir á sama tíma síma og skeytakostnað. En vetraráætlun verður sem hér segir: Landið: Akureyri: þrjár á dag nema fimmtu- daga, föstudaga og sunnudaga, þá 4 ferðir. Egilsstaðir: ein ferðá þriðjudögum og sunnudögum, tvær ferðir aðra daga. Vestmannaeyjar: tvær ferðir á dag. Hornafjörður: ein ferð þriðjudaga, fimmtudaga, föstudaga og sunnu- daga. Húsavik: ein ferð mánudaga, miðviku- daga, fimmtudaga, föstudaga og sunnudaga. ísafjörður: tvær ferðir á dag nema laugardaga og þriðjudaga, þá er ein ferð. Norðfjörður: ein ferð mánudaga, mið- vikudaga og laugardaga. Sauðárkrókur: ein ferð alla daga nema laugardaga. Patreksfjörður: ein ferð mánudaga, miðvikudagaog föstudaga. Þingeyri: ein ferð mánudaga, þriðju- daga og fimmtudaga. Auk þessara ferða verða síðan auka- ferðir um jól og páska sem síðar verður greint frá. Til útlanda: Kaupmannahöfn: ein ferð á dag alla daga nemaþriðjudaga. Með vetraráætlun sinni hafa Fiugleiðir tekið upp þá nýjung að bjóða mðnnum i innan- landsflugi hressingu á 15 krónur. Er það dós af ávaxtasafa, kex, súkkulaði og smur- ostur. Brosandi flugfreyja heldur hér á tveim bökkum með þessum kræsingum. DB-mynd: Bj. Bj. Osló og Stokkhólmur: Ein ferð þriðjudaga og föstudaga. London: ferð á þriðjudögum, fimmtu- dögum, laugardögum og sunnudögum. Glasgow: ferð þriðjudaga og laugar- daga. Luxemburg: ferð þriðjudaga, fimmtu- daga, föstudaga, og Iaugardaga. New York: ferð þriðjudaga, flmmtu- daga, föstudaga og laugardaga. Ferðir til Chicago hefjast 6. marz. Færeyjar: Flogið verður um Egilsstaði á miðvikudögum og laugardögum. -DS. Dagfolaðsvinningur í viku hverri: „Sannfærðist þegar síminn fór að ham- ast um kvöldið” — segir Aðalsteinn Einarsson á Þingeyri sem vann glæsilegt reiðhjól íáskrifendagetraun DB „Vinkona okkar, sem búsett er í Reykjavík, hringdi í konuna mina á föstudag, sama dag og nafnið birtist. Konan kom til mín í vinnuna og sagði mér frá þessu. Ég hélt að hún væri að stríða mér en þegar síminn fór að hamast um kvöldið sannfærðist ég,” sagði Aðalsteinn Einarsson, til heimilis að Brekkugötu 7 á Þingeyri við Dýrafjörð. Gæfuhjólið snerist honum i vil i síðustu viku. Honum gafst kostur á að svara spurningum þeim sem Dag- blaðið leggur fyrir lesendur sínar í hverri viku en aðeins einum áskrif- anda gefst kostur á að svara. „Mér fannst þetta auðvelt. Ég hélt þó fyrst að ég myndi fara i baklás, ég var dálítið spenntur jiegar ég hringdi. En spurningin var létt, nefna staðinn þar sem þessi auglýsing var og segja svo símanúmer auglýsingadeildar- innar,” sagði Aðalsteinn. Hann er Reykvíkingur en flutti vestur árið 1977. Þá var hann ein- hleypur en nú á hann konu og tvö börn. Eiginkona hans, Elísabet Skúladóttir, er frá Gemlufalli sem er við Dýrafjörð, gegnt Þingeyri. ,,Ég kann mikið betur við mig fyrir vestan en fyrir sunnan. Ég hef ekki hugsað mér að breyta til,” sagði vinningshafínn sem að launum fyrir að svara hinum einföldu spurningum rétt fær reiðhjól frá Fálkanum að verðmæti 3.500 krónur. „Yfírleitt labba ég i vinnuna. Ég er svona sjö tíl átta mínútur að því en hjólið gæti stytt ferðatímann veru- lega,” sagði Aðalsteinn Einarsson. Hann vinnur í beinamjölsverksmiðju Kaupfélags Dýrfirðinga og er þar aðstoðarverksmiðjustjóri. -KMU. OPIÐ TIL KL. 4 ÍDAG VERZLUNIN NÓATÚN NÓATÚN117. SÍMI17260. Vetraráætlun Flugleiða: FERDUM FJÖLGAR BÆÐIINN- ANLANDS 0G TIL ÚTLANDA

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.