Auglýsarinn - 19.01.1902, Blaðsíða 1

Auglýsarinn - 19.01.1902, Blaðsíða 1
K e m u r fi t hvern sunnudag. I. Ár. UGLYSARINN Auglýsingablaö íslands. Inn á hvert einaöta heimili 6 keypi g. 2. blað. Útgefandi: Halldór bórðarson. Sunnudaginn 19. Janúar 1902. Afgreiðsla Laugareg 2. ásamt búð og herbergi óskast til leigu á góðmn stað í bænum. Vinnustofan má ekki vera minni en 10x10, búðin og herbergið ekki minna en 5X5- Langur leigu- timi. Utgef. vísar á. 'v. 'a- T,rr,v;;,'i imi’i'v; ",v 'tt~v, 'z~r7;~,F'Z‘'z ’'7rr7r*Æ*r~7^7;''?.".yv, gg^ g Utan af landi. Landpóstarnir eru nýkomn- ir, höfðu fengið ill veður, einkum norðanpóstur, sem var 24 tíma yfir Holtavörðuheiði. Mestur bruni á íslandi. Þann 19. desémber f. á. gaus upp eldur um nótt á Akureyri í „Hotel Akureyri“; hafði kviknað af olíulampa, sem gestur nokkur hafði sofnað frá en ekki slökkt á Ijósið. Greip eldurinn skjótt um sig og stóð húsið allt með verzlunarbúð áfastri við og jtakk- húsi í björtu báli eptir stundar- korn. Eldurinn læsti sig í næstu ) hús, þrátt fyrir }>að, þótt allt væri j gjört, sem unnt var, til þess að j kæfa hann. Brann þar stórt tví- j loptað hús, íbúðar- og verzlunar- hús Sigvalda Þorsteinssonar kaup- j manns, sýslumannshúsið, hús sjera Geirs Sæmundssonar, svo nefnt „Möllershús“, hús Ola Guðmunds- sonar og hús Margrjetar Halldórs- dóttur, allt til kaldra kola. Miklu varð bjargað af húsgögn- um og öðru úr húsunum, all- mikið brann þó af matvælum og ýmsu fleiru. Á Akureyri er ekkert slökkvilið til, en þó tókst með frá- bærum dugnaði að stemma stigu fyrir eldinum, með vatnsburði, snjó- mokstri og með því að verja búsin með votum járnplötum; gengu þar jafnt að konur sem karlar, en helztu forkólfar fyrir björgun- armönnum voru þeir amtm. Páll Briem, konsúll Havsteen og Guðm. Hannesson læknir. — Þó skemmd- ust ýms fleiri hús að mun og spell urðu mikil á vörum og munurn, sem drifið var út úr næstu húsum og búðum. Sýslu- skjölunum og bókasafni Jóns Borgfirðings varð bjargað. Skað- inn er áætlaður frá 80—100,000 kr., og beið veitingamaður Vigfús Sigfússon þar mesta skaðann, um eða yfir 40,000 kr. 52 menn urðu húsnæðislausir og hefur þeim verið útvegað hús- næði til bráðabyrgða og fje skotið saman handa þeirn fátækustu. Skipströnd. Gufuskipið „Inga“, eign Th. Tulinius strand- aði í f. m., — rak sig á ísjaka 3 rnílur undan Melrakkasljettu, sigldi til lands með hraða og varð mönnum öllum bjargað. „Fram“, norðlenzkt fiskiskip, rak upp á Oddeyrarfjöru 17. f.m. í ofsaroki og brotnaði. Sjálfsmorð. Maður hengdi sig á Akureyri aðfaranótt 20. f. m., Jón Sigurðsson að nafni, frá Eskifirði, kvæntur en barn- laus; mun hafa gjört það af peningaþröng. Jón Guðjónsson, sá er til- raun gerði til að kveykja í húsi sínu á Mjóafirði í haust, drekkti sjer morguninn, sem hann átt- að mæta fyrir rjetti. Mannalát. 21. f. m. andað- ist Viggo Yedholm verzlunar- maður á Isafirði af hjartaslagi. Þann 7. s. m. varð unglings- piltur í Skálavík bráðkvaddur, Þórarinn Guðmun.dson að nafni. Aðrar frjettir utan af landi eru engar, tíðarfar gott, síldarafli talsverður á Eyjafirði og afarhátt verð á síld (yfir 30 kr. tn.), fisk- afli góður í Bolungarvik, en ann- ars lítill afli við Djúpið. — Víða ber á skarlatssóttinni og virðist hún vera að magnast út um land, þó mikið sje gert til þess að stenuna stigu fyrir henni. Barna- veiki og taugaveiki hefir gert vart við sig á ýrnsum stöðum. Skarliitssóttin. A bæjarþingi Reykjavíkur sið- astliðinn fimmtudag kom til urn- ræðu og atkvæða erindi hjeraðs- læknis Guðm. Björnssonar um að halda opnu sóttvarnarhúsi í bæn- um á bæjarins kostnað, þrátt fyrir það þótt einangrun væri upphafm af landlækni. Bæjar- stjórnin sá sjer ekki fært að sinna nrálinu og fjellu öll atkvæði á móti uppástungu hjeraðslæknis. — Nú fá menn að sjá afleiðing- arnar.

x

Auglýsarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Auglýsarinn
https://timarit.is/publication/272

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.